Frjáls verslun - 01.01.1976, Síða 24
Glæsilegur finnst þér ekki?
Bíll sem hver einasti maður væri stoltur af að eiga.
Við gætum sagt þér margt. T. d. um hina geysimörgu tæknilegu kosti,
vökva- og loftfjöðrunina, stiIlanlegu hæðina, sparneytnina, straumlínulöguðu
línu hans. — En við gerum það ekki.
Við ráðleggjum þér að fara í prufukeyrslu í dag eða á morgun og sannfærast
af eigin reynd, því við trúum að sjón og reynsla sé ,,sögu“ ríkari.
Ef þú verður einn af þessum lukkunnar pamfílum, sem eignast Citroen CX
þá erum við vissir um að þú átt eftir að brosa í kampinn á nístingsköldum
vetrarmorgni, syngja alla leið í vinnuna, klappa honum á stýrið
og þakka fyrir góða ferð.
P.S. Annars, ef þú þarfnast sannfæringar, þá viljum við geta um einn mikil-
vægan punkt og hann er, að Citroen CX bíllinn er aftur í ár bíll ársins.
Hann er arftaki hins vinsæla Citroen DS, sem var tækniundur á sínum tíma
í bílaiðnaðinum. Og núna eftir tuttugu ára sleitulausar umbætur
hefur Citroen verksmiðjunni tekist að skapa Citroen CX, sem var umsvifa-
laust kosinn bíll ársins.
Með beztu kveðjum.
GLÓBUS HF.
LÁGMÚLA 5. - Sími 8 15 15.
24
FV 1 1976