Frjáls verslun - 01.01.1976, Side 51
gjörningur að spá því, hvort
um aukningu yrði að ræða eða
aðeins tilfærslu milli félag-
anna, sem kæmi illa við Flug-
leiðir.
„Þegar á heildina er litið
eigum við von á svipuðum
flutningum til og frá íslandi og
í fyrra“, sagði Martin, „en milli
Evrópu og Ameríku gerum við
ráð fyrir 10% aukningu og á
leiðinni Luxemborg—Chicago
gæti aukningin orðið 25% en á
þeirri leið er líka bætt við einni
ferð“.
MISJAFNLEGA MIKIÐ
BÓKAÐ
Misjafnlega mikið liggur fyr-
ir af bókunum í flug Flugleiða
næsta sumar. Frá Kaupmanna-
höfn er búið að panta um helm-
ing sætaframboðs en miklu
minna frá Bretlandi. Ekki er
enn vitað hvernig flugið frá
Diisseldorf verður notað, en
þegar í byrjun desember sl.
voru flestar Frankfurtar-ferð-
irnar bókaðar. Þá er enn ekki
að marka bókanir fyrir N-Atl-
antshafsleiðina, því að þær ger-
ast nú með mun styttri fyrir-
vara en áður og farþegar vilja
halda að sér höndum í bili, því
að til umræðu hefur komið að
leyfa sérstakar leiguferðir milli
Bandaríkjanna og Evrópu með
lágum fargjöldum en ólíklegt
er að þau verði samþykkt af
viðkomandi yfirvöldum. Góð
staða dollarans út á við og fyr-
irliggjandi upplýsingar um
fjölda útgefinna vegabréfa í
Bandaríkjunum gefa mönnum
þó vonir um að Bandaríkja-
menn muni ferðast mikið á ár-
inu og gæti aukningin í fei’ða-
lögum þeirra orðið einhvers
staðar á bilinu 5—-14% sam-
kvæmt bráðabirgðaspámbanda-
rískra ferðamálasérfræðinga.
60—65 LEIGUFLUG TIL
SÓLARLANDA
Það eru aðallega erlendar
ferðaskrifstofur, sem hafa bók-
að sæti fyrir farþega sína. Einn-
ig eru ákveðnar allmargar
leiguferðir til íslands fyrir er-
lendar ferðaskrifstofur, t.d. ein-
ar 10 fyrir American Express.
Lítið hefur enn verið bókað í
áætlunarflugið frá íslandi en
viðræður hafa staðið yfir milli
Flugleiða og ferðaskrifstofanna
Úrvals og Útsýnar um leigu-
flug í sumar og verða þær
ferðir sennilega milli 60 og 65,
til sólarlanda og Norðurland-
anna. Er það nokkru meiri
ferðafjöldi en í fyrrasumar.
í MÖRG HORN AÐ LÍTA
í samtalinu við Martin Pet-
ersen var vikið að brottfarar-
tímum héðan af íslandi í áætl-
unarflugi Flugleiða, en mörg-
um þykir fullsnemma farið af
stað þannig að af því hljótist
bein óþægindi.
Af þessu tilefni tók Martin
fram, að margs væri að gæta
við gerð áætlunar, svo sem nýt-
ingar flugvéla, heppilegra
komutíma erlendis miðað við
framhaldsflug, góðra komu-
tíma hingað til lands og síðast
en ekki sízt þeirra tímamarka,
sem flugmálayfirvöld erlendis
setja. Morgunflug hefjast sam-
kvæmt sumaráætlun klukkan
8.30 og 9.00. Ef ferðirnar til
Kaupmannahafnar eru teknar
sérstaklega til athugunar er
heppilegasti komutími þar ytra
milli kl. 12 og 12.30 ef farþeg-
ar ætla í framhaldsflugi lengra
áfram síðdegis sama dag, þegar
flestar ferðir eru frá Kastrup-
flugvelli. Reynslan hefur líka
sýnt að frá Kaupmannahöfn er
ákjósanlegast að fara aftur til
íslands á tímabilinu kl. 14.00
til 15.00.
Það hefur og komið í ljós, að
þeir, sem fara í viðskiptaerind-
um til Evrópu vilja gjarnan
nýta daginn vel og geta það
með þessari áætlun. Markaður-
inn erlendis skiptir líka tölu-
verðu máli. Þannig hefur tek-
izt að fá fjölda fastra viðskipta-
vina í ferðir Flugfélags íslands
milli Kaupmannahafnar og
Glasgow og ræður tímasetning-
in áreiðanlega miklu um. Fast-
ir og óbreyttir áætlunartímar
árum saman hafa mikið gildi,
sérstaklega af því að starfs-
menn ferðaskrifstofa læra þá
FLUGLEIÐIR HF
smám saman að bóka í ferð-
ir án fyrirhafnar við að fletta
upp í flugáætlunum og leita.
Þannig hefur daglegt flug
Loftleiða frá Luxemborg til
New York kl. 14.00 allan árs-
ins hring áunnið sér fastan
sess í vitund ferðaskrifstofu-
fólks víða um lönd, sem selur í
ferðirnar til Ameríku.
AFSTAÐA FLUGVALLA-
YFIRVALDA
Enn eitt atriði er einnig þýð-
ingarmikið í þessu sambandi,
en það er afstaða yfirvalda á
erlendum flugvöllum til áætl-
ana, sem Flugleiðir setja upp.
Flugáætlunin verður að vera
tilbúin með 6—8 mánaða fyrir-
vara og sumaráætlunin næsta
var t.d. lögð fyrir fund í Genf
Farþegaflutningur í millilandaflugi 1975 (þús.)
FV 1 1976
51