Frjáls verslun - 01.11.1976, Síða 17
byggingu. Umhverfið í mið-
bænum breytist þó hratt þessa
dagana, t.d. er búið að taka í
notkun félagsmiðstöð á vegum
bæjarins að Hamraborg 1, og
ennfremur verzlanir og þjón-
ustufyrirtæki. Þá er verið að
innrétta heilsugæzlustöð, Út-
vegsbankinn er kominn í eigið
húsnæði og stór kjörbúð tekur
til starfa um áramótin. Þá er
búið að taka hluta af bílastæð-
unum í notkun t.d. 300 lokuð
stæði. Þá er Öryrkjabandalagið
að byggja yfir starfsemi sína
m.a. 4 íbúðir og ég held að
miðbæjarkjarninn muni mótast
að mestu á næstu tveimur ár-
unum.
í næsta áfanga miðbæjar-
kjarnans er meðal annars gert
ráð fyrir menntaskólabyggingu
og menningarstarfsemi verður
þar meiri en í þeim áfanga, sem
nú er í byggingu, t.d. leikhús
o.fl.
— Nú hefur fjöldi iðnfyrir-
tækja byggt yfir sig í norðan-
verð'um Kónavogshálsinum. Er
úthlutun Ióða þar að fullu lok-
ið?
— Með makaskintum við
Reykjavíkurborg eignuðumst
við 30 hektara land á þessu
svæði og var það skipulagt sem
iðnaðarsvæði. Búið er að út-
hluta öllum lóðunum og fram-
kvæmdir alls staðar hafnar, og
heildargólfrými þeirra fyrir-
tækja, sem byggja þarna er um
120 þúsund fermetrar. Nú þeg-
ar hafa nokkur stór fyrirtæki
tekið húsnæði sitt í notkun eins
og t.d. Víðir og Skeifan.
— Atvinnustarfsemi í Kópa-
vogi hefur vaxið ákaflega mik-
ið undanfarin ár og með til-
komu nýja iðnaðarhverfisins
fer að styttast í að Kópavogur
verði svipaður og Hafnarfjörð-
ur þannig að atvinnutækifæri
verði næg. Nú er verið að gera
úttekt á því hve margir Kópa-
vogsbúar sæki vinnu til
Reykjavíkur og hve margir
Reykvíkingar til Kópavogs, en
það hefur aldrei verið gert áð-
ur. En eitt er víst; svefnbæjar-
einkenni Kópavogs hurfu fyrir
nokkrum árum.
— Hver er ástæðan fyrir
hinni miklu ásókn í iðnaðar-
lóðirnar?
— Iðnaðarsvæðið liggur
mjög vel við öllum samgöng-
um, ekki síst þegar lokið verð-
ur við lagningu Reykjanes-
brautarinnar. Þá er stórt og
nýtt ibúðarhverfi í KÓDavogi
skammt undan og Breiðholtið
einnig, en þar er lítið um at-
vinnutækifæri. Þá má geta þess
að skammt frá iðnaðarsvæðinu
á að rísa þjónustukjarni og eru
fyrstu aðilarnir búnir að fá út-
hlutað lcð þar.
— Er enn mikil cftirspurn
eflir lóðum í Kónavogi?
— Eftirspurnin er enn tölu-
verð og mun alltaf verða. Það
sem stendur í veginum fyrir
frekari úthlutunum í bili, er
fyrst og fremst fjármagnsskort-
ur og hins vegar erfðalegir
samningar á bújörðum, sem
þarf að kaupa með tilheyrandi
samningum. Það er okkur held-
ur ekkert sérstakt keppikefli,
að þenja bæinn út á sem styst-
um tíma en líka slæmt að geta
ekki orðið við óskum allra um
lóðir. Nú er fyrsta kynslóð inn-
fæddra Kópavogsbúa að vaxa
úr grasi og það er stefna bæj-
aryfirvalda, að þessu fólki
verði að sjá fyrir lóðum.
— Hvað má búast við að
íbúar Kópavogs geti orðið
margir í framtíðinni?
— Það er gert ráð fyrir 40—
50 þúsund manna byggð hér og
þá á byggðin að ná upp í Vatns-
enda og Rjúpnahæð. Kópavog-
ur á líka mikið land í Lækjar-
botnum, en það er ekki vitað
hvort eitthvað verður byggt
þar af ýmsum ástæðum t.d.
vegna mengunarhættu vatns.
— Hvað hafið þið hugsað
ykkur um framtíð Fossvogsdals.
— Ákveðið er að gera sam-
eiginlega áætlun Reykjavikur
og Kópavogs vegna hraðbraut-
arinnar eftir dalnum sem er á
skipulagi Reykjavíkur frá gam-
alli tíð.
Við í Kópavogi erum andvíg
lagningu þessarar hraðbrautar.
Við teljum að dalurinn með
sínu gróðurríki og legu, bjóði
upp á skemmtilega möguleika,
sem útivistarsvæði. Þetta er
okkar skoðun og við munum
berjast fyrir henni. Og ekki
síst þar sem að dalnum liggja
stór íbúðahverfi á báða vegu.
MÓNA
BAKKAHRAUNI 1
— SÍMI 50300
qott
FV 11 1976
15