Frjáls verslun - 01.11.1976, Page 20
Ákvörðun Volkswagen var
tekin að mjög vel athuguðu
máli. Æðstu stjó.rnendur fyrir-
tækisins endurskoðuðu áætlun-
ina hvað eftir annað áður en
lokaniðurstaða var fengin. En
vafalaust hefur sú gífurlega
breyting á kostnaðarsaman-
burði milli Vestur-Þýzkalands
og Bandaríkjanna, sem varð á
tiltölulega skömmum tíma, veg-
ið þyngst. Þetta átti sérstaklega
við um launakostnaðinn. Á
undanförnum árum hefur
launakostnaður hækkað mun
minna í Bandaríkjunum en öðr-
um iðnríkjum heims, þar á
meðal Vestur-Þýzkalandi.
Launakostnaðurinn í einu landi
getur í samanburði við launa-
kostnað annarra landa ráðið úr-
slitum um samkeppnishæfni
viðkomandi lands á alþjóðleg-
um mörkuðum. f skýrslu
Bandaríkjaforseta um alþjóðleg
efnahagsmál fyrr á þessu ári
var tekið fram, að í fram-
leiðsluiðnaði væri launaliður-
inn stærsti kostnaðarliðurinn.
í framleiðsluiðnaði Bandaríkj-
anna nema laun um 75% af
verðmætaau'kningunnd, 70% í
Vestur-Evrópu og 50% í Japan.
Með verðmætaaukningu er átt
við mismuninn á sölu fyrirtæk-
isins og innkaupum á hráefnum
og öðrum nauðsynjum til fram-
leiðslunnar.
• Samanburður erfiður
Samanburður á launakostn-
aði milli landa getur verið
harla erfiður. Þetta er vítt hug-
tak, sem felur í sér brúttó
kaupgreiðslur og framlög
vinnuveitandans til sjóða og
trygginga launþega. Bezta að-
ferðin til að bera saman launa-
kostnað í ýmsum löndum er að
kanna taxtana yfir tímakaup
starfsmanna.
Meðfylgjandi tafla sýnir slík-
an samanburð milli 10 forystu-
þjóða í iðnaði og sýnir hverjar
breytingar hafa orðið á tíma-
kaupi miðað við dollaragengi
frá 1970 til miðs árs 1975. Flest-
ar þessar breytingar hafa
styrkt samkeppnisaðstöðu
Bandaríkjanna.
TAFX.A 1.
Tímakaup
# Bandaríkin hafa
ekki lengur
yfirburði
Mitt ár
1970 1974 1975
Belgía $2.08 $5.10 $6.46
Bretland 1.48 2.61 3.20
Kanada 3.46 5.50 6.20
Frakkland 1.74 3.41 4.57
Þýzkaland 2.32 5.31 6.19
Ítalía 1.75 3.48 4.52
Japan 0.99 2.70 3.10
Holland 1.99 4.96 5.98
Svíþjóð 2.93 5.48 7.12
Banda.ríkin 4.20 5.66 6.22
Árið 1970 var tímakaupið í
Bandaríkjunum í algjörri sér-
stöðu, miklu hærra en annars
staðar. Kanadamenn voru í
næsta sæti en bilið var samt
mikið. En á miðju ári 1975
hafði kaup í Kanada og Vestur-
Þýzkalandi hækkað svo, að það
var orðið sambærilegt við það
bandaríska. En í Belgíu var
tímakaup o.rðið hærra en í þess-
um þremur löndum og Svíþjóð
var enn hærri en Ðelgía. Bilið
milli Bandaríkjanna og hinna
landanna fjögurra hafði sem
sagt verið brúað og Bretland
var eina undantekningin, sem
skar sig áberandi úr.
# IUinnst hækkun í
Bandaríkjunum
Á töflu númer 2 er nánar
vi'kið að því, hvernig þessi um-
skipti urðu. Hún sýnir, að frá
1970 fram á mitt ár 1975 hækk-
uðu launagreiðslur til verka-
fólks í framleiðsluiðnaði að
meðaltali um 48% í Bandaríkj-
unum. Hún sýnir ennfremur,
að miðað við gengi þarlendra
gjaldmiðla, var hækkunin
miklu meiri í hinum löndunum
níu.
í sex af þessum níu löndum
hækkaði gengi gjaldmiðla
gagnvart dollarnum verulega
á alþjóðagjaldeyrismörkuðum
eins og fram kemur á töfl-
unni. A'fleiðingin var sú, að
þegar kauphækkanir í þess-
um sex löndum voru yfirfærð-
ar í dollara vógu þær miklu
þyngra um leið og gengið
breyttist.
Hvað viðkemu.r þeim þremur
löndum, sem eftir eru, Kanada,
Bretlandi og Ítalíu, þá verða
óverulegar breytingar á gengi
gjaldmiðla þeirra miðað við
dollarann á þessu tímabili.
Gengismál höfðu lítil áhrif á
dollaravirði tímakaups, þó að-
eins til hækkunar í Kanada og
lítillega til lækkunar í Bret-
landi og á Ítalíu.
Samanburður á meðaltali,
sem tekið er af framleiðsluiðn-
aði viðkomandi landa í 'heild,
gefur aðeins gró'fa vísbendingu
um mismun milli einstakra
greina í iðnaði frá einu landi til
annars. Nákvæmari upplýsing-
a,r um launakostnað í tiltekinni
iðngrein frá einu landi til ann-
ars eru nauðsynleg forsenda
fyrir þá framleiðendur, sem
þurfa að taka ákvarðanir um
staðsetningu vefksmiðja sinna.
TAFLA 2.
Gengisbreytingar og kauphækkanir
# Hvernig breytingarnar voru frá 1970 til 1975
Hækk'un tímakaups
Gengi miðað við Heima- Bandaríkja-
bandaríkjadollar gjaldmiðill dollar
Belgía +35% 130% 211%
Bretland — 7 134 116
Kanada + 3 75 79
Frakkland +29 104 163
Þýzkaland +48 80 167
Ítalía — 4 168 158
Japan +21 159 213
Holland +43 110 200
Svíþjóð +25 94 143
Bandaríkin —. 48 48