Frjáls verslun - 01.11.1976, Page 33
sér af enn meiri krafti fyrir
því, að raunhæf endurskoðun-
arframkvæmd komist á hjá
þessum stofnunum, en á það
vantar mjög mikið, eins og áð-
ur hefur verið minnst á. Telja
verður að forsendur nauðsyn-
legra breytinga á þessu sviði
sé, að strangar kröfur séu
gerðar í löggjöf til kunnáttu
þeirra, er taka að sér endur-
skoðun hjá innlánsstofnunum.
Enn eitt verkefni, sem hlýt-
ur að vera ofarlega á baugi hjá
bankaeftirlitinu er samræm-
ing á reikningsskilum innláns-
stofnana. Gefa þarf út reglu-
gerð, þar sem reikningsskil inn-
lánsstofnana eru samræmd,
þannig að hægt verði að túlka
niðurstöður reikniniga á sama
hátt. Það má benda á það hér,
að slík reglugerð var gefin út
fyrir vátryggingarfélög um
samræmingu reikningsskila
fyrir tæpum tveimur árum.
LOKAORÐ
Nú þegar komið er að lokum
þessarar greinar, væri ekki úr
vegi í lokin að varpa fram
spurningunni: Hefur þjóðfé-
lagið þörf fyrir slíka stofnun
sem bankaeftirlit og skilar
kostnaðurinn við hana sér til
baka á einhvern hátt?
Fyrri hluta spurningarinnar
er tvímælalaust hægt að svara
játandi. Bankaeftirlitið hefur
sýnt það, einkum undanfarin
ár, að það er nauðsynleg stofn-
un fyrir þjóðarheildina. Að-
hald frá bankaeftirliti tryggir
að bókhald sparisjóða sé í
traustu horfi. Mikil bót hefur
orðið á því að bankar og spari-
sjóðir taki nauðsynlegar trygg-
ingar fyrir útlánum sínum, í
nokkrum tilfellum hefur
bankaeftirlitið komið upp um
fjársvikamál og tilvist banka-
eftirlits veitir stjórnendum inn-
lánsstofnana tvímælalaust mik-
ið aðhald á öllum sviðum. Á
þessari upptalningu sést, að
bankaeftirlit hlýtur að vera
nauðsynleg stofnun, og það hef-
ur sýnt sig að kostnaðurinn við
eftirlitið hefur skilað sér fylli-
lega í auknu öryggi fyrir inn-
lánaeigendur og bættum við-
skiptaháttum innlánsstofnana.
Bankamál og viðskiptahættir
banka og annarra innlánsstofn-
ana hafa allt frá því, að Lands-
banki íslands var stofnaður í
lok síðustu aldar, verið mikið í
sviðsljósinu. Hlýtur þetta að
teljast eðlilegt vegna hinnar
miklu þýðingar, sem starfsemi
þessarra stofnana hefur í þjóð-
félaginu. Upp á síðkastið hafa
innlánsstofnanir sætt vaxandi
gagnrýni opinberlega og sú
spurning hefur æ oftar verið
sett fram opinberlega, hvort
ekki sé þörf á meira aðhaldi
með innlánsstofnunum. Án þess
að tekið sé undir þá gagnrýni,
sem uppi hefur verið höfð er
ljóst, að þessar stofnanir sem
aðrar mikilvægar þjónustu-
stofnanir við almenning verða
að sæta hæfilegu opinberu eft-
irliti og aðhaldi á hverjum
tíma. Störf bankaeftirlitsins á
undanförnum árum hafa verið
unnin í kyrrþey, enda efcki
heppilegt að auglýsa slíka
starfsemi um of.
Hótel Egilsbúð
NESKAUPSTAÐ
Ferðafólki á Austurlandi viljum við benda á þá staðreynd,
að við starfrækjum hótel allt árið í hinum nýju og glæsi-
legu húsakynnum félagsheimilisins.
Bjóðum gistingu, svefnpokapláss, mat, kaffi og alla þá
þjónustu, sem hægt er að veita.
Verið velkomin til Neskaupstaðar.
Ilótel Egiísbúð
EGILSBRAUT 1 — SÍMI 97-7321
FV 11 1976
31