Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 41
öllum kjötvinnsluvörum. Dag-
lega eru tekin sýni, sem rann-
sökuð eru. Gerladeild rann-
sóknarstofunnar hefur daglegt
eftirlit með hreinlæti í vinnslu-
sölum og fylgist með geymslu-
þoli. Rannsóknarstofan hefur
einnig eftirlit með verkun af-
urða frá sláturhúsum kaupfé-
laganna.
Forstöðumaður rannsóknar-
stofunnar er Guðrún Hall-
grímsdóttir matvælaverkfræð-
ingur.
12 MATARPYLSUTEGUNDIR
OG 26 TEGUNDIR AF
ÁLEGGI FRAMLEIDDAR
Á síðasta ári var unnið úr
350 tonnum af kindakjöti, 200
tonnum af nautakjöti og 180
tonnum af svínakjöti hjá kjöt-
iðnaðarstöð Sambandsins. Þar
eru framleiddar allar unnar
kjötvörur sem eru á markaði
hér, 12 matarpylsutegundir,
s.s. vínarpylsur, medisterpyls-
ur, óðalspylsur, kindabjúgu,
kjötbúðingur og búrpytlsur.
Auk þess eru framleiddar 26
tegundir af áleggi. Á þessu ári
var bætt við nýjum tegund-
um af áleggi og er það Mada-
gaskar salami, búlgörsk spægi-
pylsa, Mílanó salami og lamba-
spægipylsa.
Framleitt er kjötfars og salt-
kjötfars, kinda- og nautahakk,
sem fryst er strax að lokinni
framleiðslu og halda vörurnar
þannig öllum ferskleika sínum.
TILBÚNIR FRYSTIR RÉTTIR
— NÝJUNG
í júní s.l. hóf kjötiðnaðarstöð
Sambandsins sölu á tilbúnum
frystum réttum. Yfir 20 réttir
eru á boðstólum og er matur-
inn allur lagaður í stóreldhúsi
stöðvarinnar, hraðfrystur og
seldur í öskjum 6-10 skammta,
sem skammtað er upp úr í
mötuneytum eða matsölustöð-
um. Samvinnubankinn í Banka-
stræti varð fyrsti viðskiptavin-
ur stóreldhússins.
í stóreldhúsinu eru einnig
framleiddir eins manns
skammtar, sem eru sérstaklega
ætlaðir fyrir söluskála og sum-
arveitingastaði. M.a. er hægt að
hita réttina upp í örbylgjuofn-
um.
Undanfarið hefur kjötiðnað-
arstöðin boðið upp á Goða
vörukynningar, en þá fer hús-
mæðrakennari á vegum Sam-
bandsins í verslanir og kynnir
nýjungar frá kjötiðnaðarstöð-
inni og matreiðslu á þessum
vörum. Hafa vörukynningar
þessar gefist mjög vel. Daglega
eru Goða vörur seldar í 120—
130 verslunum út um allt land
svo og í hótel, mötuineyti og
skip.
ORA NIÐURSUÐUVERK-
SMIÐJAN FRAMLEIÐIR 14
VÖRUTEGUNDIR
Þó nýtt grænmeti sé ekki
ávallt á boðstólum má fá niður-
soðið grænmeti allt árið um
kring. Ora niðursuðuverksmiðj-
an hf. hefur frá því árið 1952
soðið niður grænmeti, fiskiboll-
ur og fiskbúðinga ásamt öðrum
niðursuðuvörum. Hér á landi
eru nokkur fyrirtæki sem sjóða
niður grænmeti auk Ora m.a.
K. Jónsson og KEA á Akureyri,
Sambandið og ennfremur fyrir-
tæki á ísafirði og í Keflavík.
Framleiðslutegundir Ora eru
14, en mest hefur verið soðið
niður af grænum baunum og
fiskibollum, en auk þessara
framleiðsluvara eru einnig aðr-
ar tegundir grænmetis niður-
soðnar s.s. gulrætur og bland-
að grænmeti, rauðbeður, rauð-
kál, asíur og agúrkusalar.
Nú er einnig verið að hefja
ndðursuðu á maískornum,
sem seld verða í Va og Vi
dósum. Verður maískornið í
nýjum gerðum af dósum, sem
ekki þarf að nota upptakara
við.
Lifrarkæfa, hrognakæfa,
murta og kryddsíldarflök eru
einnig framleidd en murtan
hefur verið flutt út um langt
árabil, aðallega til Bandaríkj-
anna og líkar mjög vel þar.
TILRAUNAFRAMLEIÐSLA Á
FISKIBOLLUM f SÓSU TIL
ÚTFLUTNINGS
Nú fyrir áramót verður hafin
tilraunaframleiðsla á fiskiboll-
um í sósu til útflutnings. Verða
bollurnar heldur minni en þær,
sem nú eru framleiddar, og
einnig verða 'lagaðar ýrnsar
gerðir af sósum. Fyrirhugað er
að flytja þessa framleiðslu út
til Svíþjóðar, en einnig verður
fslendingum gefinn kostur á að
kynnast þessari framleiðslu.
Ein vinsælasta framleiðslutegund Ora eru grænar baunir. Vélar
geta Iokað allt að 10.000 V2 dósum á klst.
FV 11 1976
39