Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 63
hugafólk til að leggja vinnu af
mörkum við gerð iþróttavall-
arins, en margir áhugamenn
um gerð vallarins eru á Þórs-
höfn.
RAFORKUMÁL
' Á þessu sumri hafa vinmu-
flokkar frá Rafmagnsveitum
ríkisins unnið að því að koma
öllum rafleiðslum í jörð og
einnig að endurnýjun á götu-
lýsingu á staðnum. Kostnað við
rafleiðslur ber ríkið, en við
götulýsingu þarf hreppurinn að
bera kostnað af ljósastaurum
og ljóskerjum. Mun sá kostn-
aður verða einar 7—8 millj-
ónir.
GATNAGERÐ
Að sögn Bjarna hefur gatna-
gerð gleypt megnið af fram-
kvsemdafé sveitarfélagsins á
undanfö.rnum árum. Nú er ver-
ið að endurnýja holræsi í einni
götu og á að ljúka jarðvegs-
skiptum í annarri fyrir vetur-
inn. Ef það tekst verða IV2—2
kílómetrar tilbúnir undir bund-
ið slitlag, sem vonast er til að
hægt verði að leggja á næsta
ári. Umnið hefur verið að end-
urnýjun lagna og jarðvegsskipt-
um á sl. 3 árum og telur Bjarni
að Þórshafnarbúar yrðu fegn-
ir ef þeir fæ.ru að sjá fyrir end-
ann á öllu raskinu sem fylgir.
í sambandi við gatnagerðar-
framkvæmdirnar hefur verið
unnið lítillega að endurnýjun
vatnsveitukerfisins. Vatm er nú
tekið úr lind skammt frá þorp-
inu, en eftir þurrviðrasamt
sumar var lítið orðið af vatni.
Því var virkjuð önnur lind, en
í framtíðinni verður sennilega
farið út í bo.run.
SKÓLABYGGING
Um þessar mundir er verið
að vinna að hönnun viðbótar-
byggingar fyrir skólahúsið á
staðnum og á hönnun að Ijúka
áður en gerð fjárlaga hefst í
haust. Gamli skólinn er orðinn
allt of lítill og b,rýn nauðsyn að
stækka hann. Þegar stækkun
verður lokið verður hægt að
ljúka grunnskólastigi á Þórs-
höfn, en hingað til hafa nem-
endur farið að Laugum eða
Eiðum.
HEILSU GÆSLUSTÖÐ
Samkvæmt lögum á að vera
heilsugæslustöð með tveimur
læknum á staðnum og á hún að
þjóna Raufarhöfn líka og svæð-
inu í kring. Ekkert hefur verið
ákveðið um byggingu þessarar
stöðvar, en Svalbarðshreppur
og Sauðaneshreppur auk Þórs-
hafnarhrepps hafa ákveðið að
standa saman að byggingu
dvalarheimilis fyrir aldraða í
sambandi við heilsugæslustöð-
ima. Þarna verða 6 litlar íbúðir,
4 fyrir einstaklinga og 2 fyrir
hjón og er heimilið ætlað fólki
sem er að öllu leyti sjálfbjarga.
Vonast er til að framkvæmdir
við heimilið geti hafist á næsta
ári.
SKIPULAGSMÁL
Skipulag fyrir Þórshöfn er
ekki fullunnið, en byggt hefur
verið á tillögum að skipulagi
hingað til. í sumar kom maður
frá skipulagsstjóra til að vinna
að skipulaginu og er ætlunin
að fara að ljúka við skipulag
staðarins. Áætlað er að skipu-
leggja byggðakjarna fyrir um
1000 íbúa. Eins og er eru engar
götur tilbúnar í sumar.
LEIGUÍBÚÐIR
Þórshafnarhreppur sótti upp-
haflega um að fá að byggja 6
leiguíbúðir en bætti síðan fjór-
um við umsóknina. Fimm
þeirra eru byggð á vegum ein-
staklinga, eitt er leiguíbúð sem
hreppurinn byggir og eitt er
dýralæknisbústaður. Núna er
verið að byggja þriðja húsið í
röðinni. Þetta eru allt eininga-
hús. Ekki er ákveðið hvað verð-
ur um framhald á byggingu
þessara íbúða, en á staðnum var
komið upp trésmiðju í sumar
og ætti hún að koma að gagni
við áframhaldandi byggingar.
HAFNARMÁL
Næsta sumar á að vinna að
viðlegukanti í höfninni á Þórs-
höfn, en að auki stendur til að
koma upp löndunarkanti og
kví fyrir smábáta og dýpka
höfnina. Það eru gerðir út um
25 bátar undir 12 tonnum frá
Þórshöfn og nýr skuttogari og
nýr 100 tonna bátur auka þörf-
ina á viðleguplássi. Á bilinu 12
—50 tonn eru 5 bátar á staðn-
um svo sjá má að útgerðin er
lífleg þó aflinn sé e.t.v. ekki í
samræmi við það núna. Sveit-
arfélagið er stærsti hluthafi í
nýju frystihúsi á staðnum, en
frystihúsið og sveitarfélagið
standa síðan að útgerðarfélagi
sem geri.r út nýjan togara.
BYGGÐAÞRÓUNAR-
ÁÆTLUN
I byggðaþróunaráætlun fyrir
Norður-Þingeyjarsýslu er Þórs-
höfn ætlað talsvert hlutverk í
sambandi við bæði þjónustu-
iðnað og heilbrigðisþjónustu,
svo einhver dæmi séu nefnd.
Að sögn Bjarna er þessi áætlun
þó máttlaust plagg þar til hún
fær viðurkenningu fjárveit-
ingavaldsins. Hins vegar sagði
Bjarni að þessi áætlun hefði að
vissu leyti þegar komið að
gagni, því hún hefði stuðlað að
samstarfi milli sveitarfélaga í
sýslunni. Sýslan er fámenn en
stór að flatarmáli og því er
nauðsynlegt fyrir fólk að sýna
samstöðu á svæðinu, sagði
Bjarni.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
er vettvangur
57 þúsund
meðlima
íþrótta- og
ungmennafélaga
víðs vegar um
landið.
ÍÞRÓTTABIAÐIÐ
LAUGAVEGI 178.
SÍMI 82300.
FV 11 1976
61