Frjáls verslun - 01.11.1976, Qupperneq 67
Fáskrúðsf jörður:
„Efni dráttarbrautar-
innar grotnar níður ef
ekki verður haldið
áfram”
Viðtal við Helga V. Guðmundsson sveitarstjóra
— Hér í Búðakauptúni hefur verið unnið mest við gatnagerð
í sumar, bæði holræsalagnir og undirbúning undir varanlega
gatnagerð, niðurföll o. fl. Þá er skipt ,um jarðveg þar sem þess
þarf. Við liöfuin gert samning við Olíumöl h.f. og Miðfell h.f. um
kaup á töluverðu magni af olíumöl og eins um útlagningu á því.
Ætlunin er að leggja olíumöl á 450 metra kafla inn að svokölluð-
um Búðavegi og einnig höfum við hug á að leggja olíumöl á Skóla-
veg, þ. e. a. s. ef veður og fjármagn leyfir, sagði Helgi V. Guð-
mundsson, hinn nýi sveitastjóri þeirra Fáskrúðsfirðinga, þegar
F.V. ræddi við hann síðla sumars.
ári, þannig að hægt verði að
Hefjast handa af fullum krafti
með byggingu hússins á næsta
ári og tollvörugeymslan tekið
til starfa síðari hluta árs.
— Hvað eru hluthafar toll-
vörugeymsl'unnar margir?
— Þeir eru mjög margir eða
111 talsins og eru af svæðinu
frá Vopnafirði til Hornafjarð-
ar. Hlutafé félagsins er áætlað
15 milljónir króna, en ekki er
fyllilega gengið frá þeim mál-
um enn.
— Eigið þið von á, að vöru-
verð á Austurlandi, lækki með
tilkomu tollvörugeymslu við
bæjardyrnar?
— Ég veit ekki hvort vöru-
verð á eftir að lækka, en starf-
semi sem þessi býður upp á
ýmsa möguleika til að hjálpa
verzlunarfyrirtækjum og ekki
síður iðnfyrirtækjum. Reynsl-
an verður hins vegar að leiða
í ljós hvort tollvörugeymslan
hafi einhver á'hrif á vöruverðið.
En ég held að þessi starfsemi
komi öllum Austfirðingum til
góða.
— Hvar á tollvörugeymslan
að standa?
— Hún á að standa á nýja
hafnarsvæðinu, og verður ö.r-
ugglega lyftistöng fyrir Reyð-
arfjörð sem þjónustumiðstöð.
Annars er það svo að hér á
Reyðarfirði vinna um % við
útgerð og fiskvinnslu, % við
opinbera þjónustu og flutninga
og % við aðra þjónustu og á ég
ekki von á því að þetta hlutfall
b.reytist tiltakanlega mikið á
allra næstu árum.
ERFITT AÐ REKA KAUPTÚN
AF STÆRÐINNI 500—1000
MANNS
— Hvert er helzta vandamál
kauptúns af stærðargráðu
Reyðarf jarðar?
— Ég held að helzta vanda-
málið sé fyrst og fremst að það
er of lítið til að mæta þeim
kröfum, sem íbúarnir gera til
þess og jafnvel of stórt til að
gera lítið. Að mínu mati er
mjög erfitt að reka kauptún af
stærðargráðunni 500—1000
manns. í slíkum kauptúnum
koma fram flestar kröfur um
opinbera þjónustu, en getan
er þá bara ekki alltaf fyrir
hendi.
Helgi V. Guðmundsson.
— Hingað komu tveir farmar
af olíumöl eða 800 tonn, en við
höfum gert samning um kaup á
1600 tonnum alls, en eins og
kunnugt er geymist olíumölin
vel á milli ára.
— Hverjar eru aðrar helztu
framkvæmdir á Fáskrúðsfirði?
BARN ASKÓLABYGGIN G
SITUR í FYRIRRÚMI
— Nú undanfarin ár hefur
verið unnið að byggingu skóla
og í sumar er lögð mest áherzla
á byggingu barnaskóla. Það
hefur verið gengið frá grunn-
inum og platan steypt. Ætlun-
in er að koma innri álmunni
undir þar, þannig að skólinn
verði fokheldur fyrir veturinn.
Það er ljóst, samkvæmt nýrri
áætlun, ef svo verður þá för-
um við f.ramyfir fjárhagsáætl-
anir hjá okkur og eins ríkis-
framlags. Hins vegar er ekki
gott að hætta við hálfnað verk
og þarf því einhvern veginn að
brúa það bil. Annars hljóðar
kostnaðaráætlunin fyrir þann
helming skólans, sem 'nú er í
byggingu upp á 175 millj.
króna. Skólabyggingin hefur
lengi verið á döfinni og m.a.
hefur tvívegis verið breytt um
teikningar.
GAMLI SKÓLINN FRÁ 1936
— Gamla skólahúsnæðið er
alls ófullnægjandi en það var
reist árið 1936. Nýi skólinn á
að fullnægja þörfinni fyrir
Búða- og Fáskrúðsfjarðarhrepp,
og er skólinn verður tekinn í
notkun leggst heimavistin nið-
ur. Við vonumst til að skólinn
FV 11 1976
65