Frjáls verslun - 01.11.1976, Blaðsíða 71
Verzlunin Línan
Yfirbragð
framleiðslu
fjarlægra
landa
ið, og eins væri mjög þægilegt
að skoða í gluggana þar á
kvöldin og um helgar.
— Framleiðslan okkar eru
bæði húsgögn, sem íslenzkir
arkitektar hafa teiknað og eins
vörur sem við framleiðum sam-
kværnt leyfi erlendis frá. Mest
áherzla er lögð á framleiðslu
sófasetta, svefnsófa og svefn-
bekkja, en þessar vörur fram-
leiðum við algjörlega sjálfir.
Þá erum við einmg með erlend
sófasett á boðstólum.
Aðspurður um gæði íslenzku
framleiðslunnar sagði Magnús,
að þeir hefðu oft verið með ná-
kvæmlega eins erlend og ís-
lenzk sófasett, og mætti ekki á
milli sjá hvort hvað væri. ís-
lenzka framleiðslan stæði fylli-
lega jaf-nfætist þeirri erlendu.
— Það er hins vegar óskrifað
plagg, hvernig aðstaða íslenzks
húsgagnaiðnaðar verður, er
tollar á húsgögnum lækka úr
35% í 25% nú um áramótin og
smá saman niður í ekki neitt.
— f upphafi bjóst ég ekki
við, að við gætum flutt inn í
Teppa-
deildin í
Skeif'unni.
þetta nýja húsnæði aðeins ári
eftir að við hófum framkvæmd-
ir, en við fengum lán úr Iðn-
þróunarsjóði og Iðnlánasjóði,
þannig að við gátum haldið á-
fram framkvæmdum án þess að
stanza. Hins vegar eru nú ýms-
ar blikur á lofti í húsgagnaiðn-
aðinum. Það hefur verið sam-
dráttur í þjóðfélaginu, en við
höfum ekki tiltölulega orðið
varir við það hjá fólki. Hins
vegar vantar nú alla fyrir-
greiðslu í bönkum og bitnar
það mjög á bólsturiðnaðinum.
Ég 'hef trú á að hann geti lifað
af, ef fjárhagsleg fyrirgreiðsla
fæst, og þá um leið er hægt að
gera reksturinn hagkvæman,
en þetta ætlar allt að stranda á
samdrættinum í bankakerfinu
hér á landi. Það er orðið mjög
erfitt að standa undir þessum
rekstri, þegar maður þarf sífellt
að liggja með mjög stóran lag-
er og erfitt er að velta víxlun-
um gegnum bankana..
Um þessar mundir starfa yfir
20 manns við Skeifuna og Bæj-
arbólstrarann.
— Við höfum það á tilfinn-
ingunni að Kópavogsbúar séu
ánægðir með þá þjónustu sem
við veituin, sagði Kristján Ól-
afsson hluthafi í nýrri verslun
í hinum upprennandi miðbæ
Kópavogs. — Og ef dæma má
af því hve mikið var um það
að miðar væru límdir á vör-
'urnar, þar sem á stóð „selt“
eða ,,frátekið“ mætti ætla að
Kristján hefði rétt fyrir sér um
þetta.
Verslunin ber nafnið Línan
og hefur hún aðeins starfað í
fáar vikur og vörurnar sem
hún hefur á boðstólnum eru
margar hverjar með yfirbragð
framleiðslu fjarlægra landa.
T.d. ber mikið á sérkennilegum
bambushúsgögnum og ítölsk-
um lömpum auk tískufatnaðar.
Kristján sagði að hugmyndin
væri sú að versla framvegis
með tískufatnað og húsgögn á
viðráðanlegu verði.
— Við viljum helst ekki
versla með hluti sem fara mik-
ið yfir 50 þúsund krónur, sagði
Kristjáni. — Bambushúsgögnin,
sem við höfum selt mikið af
undanfarnar vikur, voru öll
innan við það verð og það sýndi
sig líka fljótt að fólk kunni að
meta þessa vöru. Núna eigum
við von á ítölskum stálhúsgögn-
um i léttum stíl, sem við von-
umst til að verði ekki síður vin-
sæl. Einnig er ætlun okkar að
kanna það hvort hér innan-
lands séu fáanlegar vörur á
þolanlegu verði og finnum við
einhver slik húsgögn munum
við reyna að fá þau hingað í
Línuna.
FV 11 1976
69