Frjáls verslun - 01.11.1976, Page 77
*
Utvegsbankinn, Kópavogi:
Innlánsaukning yfir meðaltali
Yngsta útibú Útvegsbanka
íslands er staðsett í nýja mið-
bænum í Kópavogi og þó að-
eins séu Iiðin um átta ár frá
stofnun bess er það þegar orðið
þriðja stærsta útibú Útvegs-
bankans. Alls rekur Útvegs-
banki íslands 9 útibú, 2 í
Reykjavík og 7 úti á landi og
cr Kópavogsútibúið talið með
þeim síðarnefndu þó mörkin
séu óglögg í augum margra
milli Reykjavíkur og Kópa-
vogs.
Útibúið í Kópavogi tók til
starfa 7. júní 1968 í leiguhús-
næði að Álfhólsvegi 7. Upphaf-
lega störfuðu 4 menn í útibúinu
en þeim hefur fjölgað eftir því
sem útibúið hefur stækkað og
eru fastráðnir starfsmenn nú 22
auk starfsfólks í eldhúsi og
ræstingarkvenna. Fljótt varð
augljóst að útibúið þyrfti á
auknu húsnæði að halda og í
október 1972 tókust samningar
við bæjarstjórn Kópavogs um
að kaupa af bæjarsjóði húseigmr
ina nr. 5 við Digranesveg, sem
þá var í byggingu. Hús þetta
er mjög vel staðsett í nýja mið-
bænum og var starfsemi útibús-
ins flutt þangað um miðjan
desember 1974. Hið nýja hús
Útvegsbankans í Kópavogi er
glæsileg og stílhrein bygging á
fjórum hæðum. Útvegsbankinn
nýtir sjálfur 1. og 2. hæð húss-
ins að tveim þriðju hlutum,
auk kjallara, en það sem bank-
inn notar ekki sjálfur af hús-
næði er leigt Seðlabanka ís-
lands fyrir reiknistofu bank-
anna.
Eins og áður er vikið að þá
eru mörkin milli Reykjavíkur
og Kópavogs óglögg í margra
augum. Margir lita á Kópavog
sem svefnbæ í Reykjavík. Loft-
ur J. Guðbjartsson útibússtjóri
Útvegsbankans í Kópavogi var
nýlega inntur eftir því hvort ná-
býlið við Reykjavík stæði
bankanum ekki fyrir þrifum að
einhverju leyti. Loftur sagði að
því væri ekki að neita að marg-
ir ibúar Kópavogs, sem hefðu
atvinnu sína í Reykjavík hefðu
einnig öll bankaviðskipti sín
þar líka. Hins vegar hefði þró-
unin á undanförnum árum ver-
ið sú að æ fleiri Kópavogsbúar
flyttu viðskipti sín til Kópa-
vogs enda hefði innlánsaukn-
ing útibúsins verið nokkuð yfir
landsmeðaltali að undanförnu.
Benti það einmitt til þess að
heimamenn hefðu komið auga á
þá kosti sem fylgdu því að eiga
bankaviðskipti í heimabæ sín-
um.
Áður en útibú Útvegsbank-
ans var opnað í Kópavogi starf-
aði Sparisjóður Kópapvogs á
staðnum. Loftur var að því
spurður hvernig nábýli þessara
tveggja lánastofnana hefði
gengið, en bankarnir tveir
standa svo til hvor á móti öðr-
um við Digranesveginn. Hann
sagði að vissulega væri sam-
keppni milli þessara tveggja
stofnana, en sú samkeppni
væri öll á mjög friðsamlegum
og góðum grundvelli.
Að lokum var útibússtjórinn
spurður að því hvort bankinn
þjónaði eingöngu íbúum Kópa-
vogs, eða hvort það þýddi eitt-
hvað fyrir utanbæjarfólk að
leita til bankans. Loftur sagði
að til skamms tíma hefði útibú-
ið ekki aðeins þjónað Kópavogi
heldur einnig Garðabæ. En nú
nýverið opnaði Búnaðarbank-
inn útibú í Garðabæ og kvaðst
hann þvi ekki vita hver þróun-
in yrði í viðskiptum íbúa
Garðabæjar við lánastofnanir.
Hins vegar væri ljóst að heima-
menn í Kópavogi sætu fyrir
með lán, en þegar lán væru
veitt þá væri það þungt á voga-
skálunum hvort viðkomandi
hefði sín almennu viðskipti við
bankann eða ekki. Og stjórn
útibúsins liti það ekki sérstak-
lega hýru auga að menn kæmu
til að biðja um lán, ef þeir leit-
uðu eitthvað annað með öll
önnur bankaviðskipti sín.
FV 11 1976
75