Frjáls verslun - 01.11.1976, Page 96
Philip Rosenthal:
Jóladiskur
metinn
Fæstir mun'u vita að stofn-
andi fyrirtækisins Philip Rosen-
thal sem ættaður var frá West-
falen í Þýzkalandi ætlaði sér
aldrei að framleiða postulín,
heldur geta sér frægðar og
frama á allt öðru sviði í fyrir-
hcitna landinu Ameríku, og
hélt þangað aðeins 17 ára að
aldri.
Philip Rosenthal vann m.a.
sem kúreki en eftir nokkuð
ævintýralegan feril i Ameríku
varð hann forsvarsmaður
þekkts fyrirtækis sem flutti inn
postulín og glervörur.
í þessu starfi varð honum
ljóst að þýzkt postulín gat orð-
ið enn vinsælla ef rétt væri að
farið og ákvað að snúa heim á
leið. Philip Rosenthal leigði sér
nokkur herbergi i rokokkokast-
alanum Erkersreut í bænum
Seln, en þessi bær var einmitt
þekktur fyrir postulínsfram-
leiðslu.
Rosenthal byrjaði starfsemi
sína með einum aðstoðarmanni
og handmáluðu þeir á hvítt
postulín sem flutt var til þeirra
frá framleiðendum í bænum.
Þetta gerðist árið 1879 og þar
--- AUGLÝSING ----------
1971 frá ROSENTHAL
á ísl. kr. 220.000
með hafði Philip Rosenthal
brotið blað í sögu postulínsiðn-
aðar og byrjaði sinn frægðar-
feril.
Starfsemi Rosenthal blómstr-
aði og ekki leið á löngu þar til
nokkur fyrirtæki hófu sam-
vinnu sín á milli og stofnuðu
hlutafélag. Eftir nokkurn tima
hafði Rosenthal nafnið hlotið
viðurkenningu og alheimsfrægð
fyrir fallegar og vandaðar vör-
ur.
Ekki er Philip Rosenthal ein-
ungis frægur fyrir framtak sitt
í þágu postulínsiðnaðar því
hann var einnig einn af fram-
kvöðlum og stofnendum Leip-
zige.r sýningarinnar og í dag
ber gata ein í Leipzig nafn
Rosenthals.
Árin liðu og árið 1948 tók
sonur Rosenthal, Philip Rosen-
thal M.A., við rekstri föður
síns, en einmitt á þeim tíma
leit út fyrir að postulínsiðnað-
urinn hefði staðnað og ætti
ekki afrakstursríka f.ramtíð fyr-
ir höndum. Rosenthal yngri var
Ijóst að nýjar hugmyndir og ný
form þurftu að taka við af
gamla húsgerðar- og rósaflúrs-
stílnum og hófst óspart handa
í leitinni að ungum listamönn-
um hvaðanæva að úr heimin-
um.
f dag prýða undirskriftir
frægra listamanna framleiðslu-
vörur Rosenthal og má t.d.
nefna Björn Vinblad sem
hannað hefur vinsælu „studio-
línuna“, en eins og flestum
mun vera kunnugt um er Björn
Viinblad frægu.r listamaður og
hönnuður í heimalandi sínu
Danmörku.
Fyrirtækið Rosenthal fram-
leiðir matar- og kaffistell, alls
konar drykkjarílát, kerta-
stjaka, ker og blómavasa úr
postulíni, gleri eða keramik, og
í flestöllum stórborgum er að
finna Rosenthal verzlun.
í lokin er vert að minnast á
að Rosenthal framleiðir nú
einnig jóladiska og var hinn
fyrsti framleiddur árið 1971.
Þessi jóladiskur hlaut verð-
skuldaða athygli lesenda í tíma-
ritinu Capital 1972 og var
þess getið m.a. að hann væri
örugg fjárfesting og þessu til
rökstuðnings má minnast á að
jóladiskurinn frá 1971 er í ár
metinn á DM 2.789 eða um það
bil ísl. kr. 220.000.
Umboð fyrir Rosenthal hér á
landi hefur Á. Einarsson og
Funk Laugavegi 85.
94
FV 11 1976