Frjáls verslun - 01.05.1977, Síða 54
í því að skipuleggja ferðalög
íslendinga til útlanda. Æski-
legt væri að þar skapaðist
meira jafnvægi en nú er fyrir
hendi, en óhætt er að fullyrða
að viðbrögð ferðaskrifstofu-
manna í þessum efnum voru
jákvæð og er ástæða til að ætla
að hér geti skapast góð sam-
vinna við alla aðila, sem þess-
um málum tengjast.
— Að hverju er stefnt hjá
íslenzkum ferðamálayfirvöld-
um varðandi uppbyggingu
ferðamannaaðstöðu, fjölda er-
lendra ferðamanna og tekjur
af þeim?
— Mjög margt er á dagskrá
hjá Ferðamálasjóði, sem tengist
slíkri uppbyggingu. Þar er fyrst
og fremst um að ræða frum-
kvæði heimamanna á viðkom-
andi stöðum. Mikill fram-
kvæmdahugur er víða í tengsl-
um við uppbyggingu ferðamál-
anna, en eins og stundum áður
er eftirspurnin eftir lánsfé
margfalt meiri en framboðið.
Ekki er hægt að segja að um
neina sérstaka stefnumörkun sé
að ræða í sambandi við fjölda
erlendra ferðamanna. Miðað
við 8% aukningu á ári má ætla
að fjöldi erlendra ferðamanna
eftir tvö til þrjú ár fari yfir
100.000 og er þá gert ráð fyrir
því, að okkur takist að auka
gistirými til að mæta þeirri þró-
un. Varðandi tekjurnar er
minnsta kosti að því stefnt að
okkur takist að afla meira en
við nú eyðum sjálfir í ferða-
lögum til útlanda — það hlýtur
að vera mikilvægt takmark að
hlutfail breytist jafnt og þétt
okkur í hag.
— Er ekki hætt við að hinn
innlcndi ferðamaður verði eins
konar hornreka í skipulagningu
og athyglin beinist um of að
útlendingunum með erlenda
gjaldeyrinn?
— Aukin þjónusta og skipu-
lagning ferðamála hér á landi
á að koma bæði innlendum og
erlendum ferðamönnum til
góða. Það er tvímælalaust
stefna Ferðamálaráðs, að hér
sé báðum aðilum gert jafnt und-
ir höfði, sbr. 1. gr. nýrra ferða-
málalaga.
— Hvað er fyrirhugað af
framkvæmdum á einstökum
verkefnum, sem mælt var með
í skýrslu erlendu ráðgjafanna,
er gerðu athugun á íslenzkum
ferðamálum hér um árið?
— Það er í verkahring ríkis-
stjórnar íslands, að taka á-
kvai’ðanir um þær framkvæmd-
ir og verkefni sem erlendir ráð-
gjafar hafa tjáð sig um. Ferða-
málaráð hefur nýlega fjallað
um þessar tillögur sem um-
sagnaraðili og var umsögn þess
jákvæð í megin atriðum.
Ferðamálaráð mun að öðru
levti ekki taka afstöðu til þess-
ara verkefna. nema því verði
sérstaklega falin framkvæmd
þeirra.
®BÚNM)ARBANKINN
BREYTl AFGREIÐSI MiÐBÆJARÚTIBÚ UR .UTÍMI ÚTIBÚ GARÐABÆ
MELAÚTIBÚ 9.30-12 & 13-15.30
HAALEITISUTIBU 9.30-15.30 & 17.00-18.30 17.00-18.30
54
FV 5 1977