Frjáls verslun - 01.11.1977, Síða 33
karlmannaskóm er nú jafnari
en áður var. Tollur á skóm er
nú 20% frá EFTA löndunum,
en árið 1965 voru skór í 80%
tolli.
En hverjir móta skótískuna?
Ólafur sagði, að ítalir og Frakk-
ar stæðu framarlega á því sviði
sérstaklega í framleiðslu á
kvenskóm og féllu þeir skór
mjög inn í smekk Islendinga.
Um leið og blm. F. V. kvaddi
kaupmanninn í Skóhorninu
spurði hann Ólaf, hvernig væri
að vera skókaupmaður nú til
dags: — Það er ágætt, svaraði
Ólafur, en álagningin er allt of
lág miðað við sveiflur í skó-
tískunni og verðbólguna innan-
lands
Útilíf:
Sérstök skíðaþjónusta
I Útilífi eru leigð út skíði og skór. Margir notfæra sér þá þjónustu.
Útilíf er næst stærsta versl-
unin í Glæsibæ að fermetra-
fjölda, alls um 300 m , en
Bjarni Sveinbjarnarson, sem
rekur verslunina, rekur al-
menna sportvöruverslun uppi,
en sérverslun með skíði og
skíðavörur niðri. Yfir sumar-
tímann er hins vegar viðleg,uút-
búnaður seldur í sitað skíðáút--
búnaðarins.
Útilíf hefur ekki einungis
skíðavörur á boðstólum á neðri
hæðinni, heldur hefur verslun-
in einnig skíðaþjónustu, þá einu
hér á landi, sem annast allar
viðgerðir á skíðum, bindingum,
skíðaskóm o.fl. Það er Arnór
Guðbjartsson, sem rekur skíða-
verkstæðið.
Bjarni sagði, að verslunin
leigði einnig út skíði og skó,
sem væri fáheyrð þjónusta í
sportvöruverslun, og hefði þessi
þjónusta verið þó nokkuð not-
uð. Þjónustan við landsbyggð-
ina er mikil, og sagði Bjarni
að geysilega mikið væri sent út
á land af vörum í póstkröfu.
Flest allur almennur útbún-
aður til sportiðkana fæst í
versluninni á efri hæðinni, en
þó hefur verið lögð sérstök á-
hersla á búnað fyrir hestamann-
inn eins og fatnað og öll reið-
tygi.
Suðurver
í Suðiurveri, Sitigahlíð 45—47 er fjöldi verslana og fyrirtækja. Þar tóku fyrstu verslanirnar og
fyrirtækin til starfa fyrir rúmum 10 árum. Nú starfa þar yfir 20 fyrirtæki og verslanir. Stór
hluti beirra, sem þar versla er fólk sem er búselt utan hverfisins, en margir leggja bangað leið
sína, begar þeir eru á leið heim úr vinnu og keyra inn Miklubrautina, cnda eru þar næg bílastæði.
Fyrstu verslanirnar opnuðu fyrir rúmum 10 ármn, Nú eru þarna 20 verslanir og fyrirtæki.
FV 11 1977
33