Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Side 41

Frjáls verslun - 01.11.1977, Side 41
Verzlanahöllin Verslanahöllin, sem er í alfaraleið á Laugaveginum, nánar tilfekið nr. 26, hefur verið starfrœkt einna styst af heim verslanamiðstöðvum, sem eru í Reykjavík, en hún var opnuð 10. september á síð- asta ári. Þar eru þegar reknar 11 verslanir, en tvær eru senn að bætast í hópinn, auk bess sem Olympía rekur á neðri hæð hússins saumastofuog er með skrifstofu. Það er Hjörtur Jónsson, kaupmaður, sem leigir verslununum út verslunarplássið. Það sem háir verslanamiðstöðvum í miðbænum er hve erfitt er að fá bílastæði við 'þær. í Verslanahöllinni eru eftir- farandi verslanir: Kosta Boda verslunin, sern selur m.a. heimsþekktar krist- alsvörur, Srnja tískuverslun fyrir konur, Olympía með und- irfatnað kvenna o.fl. Barnafata- verslunin Lillý, Plötuportið, sem er plötuverslun eins og nafnið gefur til kynna. Elle tískuverslun, Tískuverslunin Mata Hari, Bókabúð Braga, blöð og bækur, GullhöHin, og á efri hæðinni er Sloppabúðin auk byggingavöruverslunar, en einnig eru að bætast við tvær nýjar verslanir á efri hæðinni. Kosta Boda búðin: Handunninn kristall Mjög mikið úrval er af kristalvörum í Kosta Boda búðinni. Ein er sú verslun í Verslana- höllinni ,sem vakti sérstaka at- hygli blm. F. V., en það er Kosta Boda búðin, og fór blm. því þangað inn í klingjandi kristalinn til að ná tali af eig- andanum Guðrúnu Steingríms- dóttur. Hún fræddi okkur á því að Kosta væri elsta starfandi krist- alverksmiðjan í Svíþjóð, stofn- uð 1742, en Boda verksmiðjan er stofnuð 1874. í Kosta Boda versluninni er sérstaklega glæsilegt úrval af kristalvörum frá Kosta Boda í Svíþjóð. Sagði Guðrún, að allir hlutirnir væru handunnir og sérhannaðir af þekktum lista- mönnum. Á hverju ári framleiða Kosta Boda verksmiðjurnar 130—150 ný stykki, auk hundruð ann- arra, sem framleidd eru. Svo gefin sé mynd af úrvali Kosta Boda verslunarinnar má nefna kertastjaka, sem notið hafa mikilla vinsælda, en hver einasti hlutur, sem Kosta Boda framleiðir hefur ákveðið heiti. Þannig eru til kertastjakar, sem heita sólrós, snjóboltar o.s.frv. Einnig er mikið til af vösum, skrautskálum, óróum og glugga- skrauti, öskubökkum, kerta- krónum, glösum og fjölmörgu fleiru. Einnig er mikið úrval af glerdýrum og skrautmunum sem ætlaðir eru til skreytinga á jólum. FV 11 1977 41

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.