Frjáls verslun - 01.11.1977, Síða 54
íþrófttamiðstöð Vestmannaeyja
Eitt glæsilegasta íþrótta-
mannvirki landsins
Almenn framlög til tækjakaupa nema 14 milljónum króna
Hinn 11. september 1976 tók til starfa ný íþróttamiðstöð í Vestmannaeyjum. Rúmlega 13 mánuði
tók að reisa þetta glæsilega mannvirki, sem stendur í svonefndri Brimhólalaut. Gólfflötur hússins
er um 3.300 fermetrar. Þar er sundlaug 25x11 metrar, íþróttasalur 20x40 metrar, hvort tveggja af
alþjóðlegri stærð kcppnisstaða, auk gufubaðs, kaffiteríu, fundarsala og þrekþjálfunardeildar.
Framkvæmdastjóri íþrótta-
miðstöðvarinnar er Vignir
Guðnason. Hann sýndi okkur,
blaðamanni og ljósmyndara
húsið, fræddi okkur um skipu-
lag þess og starfsemi auk þess
sem hann svaraði nokkrum
spurningum.
íþróttamiðstöðin er hönnuð
af danska arkitektinum Poul
Kergárd og reist af dönsku
byggingafyrirtæki sem bauð í
verkið á sínum tíma. Eftirlit
með byggingu þess önnuðust 4
danir sem voru í Eyjum allan
byggingartímann, en iðnaðar-
menn úr Eyjum unnu verkið og
voru 50 manns við byggingu
þess á tímabili.
Vignir Guðnason sagði að
allir væru mjög ánægðir með
húsið og á einu máli um að það
hefði tekist alveg sérstaklega
vel. Húsið er afar skemmtilegt
og fallegt þótt enginn sé þar
óþarfa íburður. Burðavirki eru
úr límtrésbitum, sem gefa hús-
inu mjög sérkennilegan og
skemmtilegan svip, auk þess
sem allir innanstokksmunir eru
smekklegir og aðlaðandi.
Við báðum Vigni að lýsa hús-
inu í grófum dráttum:
LÝSING A HÚSINU
Sundlaugin er af alþjóðlegri
keppnisstærð en hún er 25x11
metrar. Búningsklefar eru rúm-
góðir og tvöfalt sauna-gufubað,
fyrir karla og konur. Auk þess
eru í þeirri álmu hússins tvö
kennaraherbergi, skrifstofa og
kaffistofa starfsfólks.
Þá er álma með miðasölu,
geymslum, þvottahúsi, fundar-
sölum og þrekþjálfunardeild. í
austurenda er kaffitería fyrir
gesti hússins.
íþróttasalurinn er einnig af
alþjóðlegri keppnisstærð, 20x40
metrar. í tengslum við hann
eru sex aðskilin búningsher-
bergi. Salnum er hægt að
skipta niður í þrjá smærri sali
sem hver um sig 'hefur tvö
búningsherbergi.
f norðurenda hússins mun
verða sérstakt dómaraherbergi
fyrir kappleiki á knattspyrnu-
vellinum, sem er hér smáspöl
frá húsinu.
í vor mun verða foyrjað á að
gera heita potta utanhúss fyrir
sundgesti auk þess sem í ráði
er að koma þar upp sólbaðs-
aðstöðu.
Við spyi’jum Vigni hvernig
rekstri hússins sé hagað:
A veturna nota skólarnir
sundlaugina til kennslu frá
9—17, 6 daga vikunnar, en al-
menningstími er á morgnanna
frá 7—9, í hádegi-nu og frá kl.
17 til 21.30 á kvöldin alla daga
vikunnar. Sunddeildin hefur
æfingatíma á kvöldin frá 21.30
til 22.30,
54
FV 11 1977