Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Síða 55

Frjáls verslun - 01.11.1977, Síða 55
SALTVATN OG ÖLDU- BRJÓTUR Aðsóknin að lauginni hefur verið gífurlega mikil. Sund- gestir eru orðnir 38 þúsund á þeim 13 mánuðum sem húsið hefur verið í notkun og rétt eftir að laugin var opnuð komu 1329 manns í sund á einum degi, en það er met fram að þessu. Að tvennu leyti er þessi sundlaug frábrugðin flestum öðrum: í henni er saltvatn og er það af öryggisástæðum, þar sem mun meiri líkur eru á því að bjarga megi fól'ki frá drukknun, þar sem lífgun er möguleg eftir allt að 5 mínútna meðvitundarleysi í saltvatni en einungis 2 mínútna í fersk- vatni. Þá er athyglisverð nýjung fólgin í því að rennurnar við laugarbarmana eru þannig 'hannaðar, að þeim má líkja við öldubrjóta. Vegna þessarar hönnunar orsaka öldur sund- manni ekki frákast af laugar- bakkanum, en í venjulegum laugum skellur frákastið á sundmanninn og dregur þann- ig úr ferð hans. Af þessum sök- um er laugin þegar orðin vin- sæl meðal keppenda í sund- greinum og búast má við að þar verði sett einhver met i framtíðinni. Vignir sagði að Sundmeistaramót íslands sem haldið var í september s.l., hefði tekist vel en þar voru 300 keppendur. Þá hefði sund- deild Ægis verið í æfingabúð- um í Eyjum um páskana og nættis og að sögn Vignis er varla hægt að nýta salinn bet- ur. Þegar við spurðum Vigni Guðnason að því hvaða áhrif opnun Lþróttamiðstöðvarinnar hefði haft á bæjarlífið sagði hann að þau væru mikil. Þessi góða aðstaða væri lyftistöng fyrir bæði íþrótta- og félagslíf í bænum. Geysilega mikill í- þróttaáhugi væri meðal æsku- fólks auk þess sem <á)hugi bæj- arbúa almennt væri mikill fyrir íþróttaviðburðum. Þegar landsleikur í handbolta við dani var í desember 1976 komu 800 áhorfendur og 500 áhorf- endur komu til að sjá leik Týs og Þórs í handbolta nú í des- emlber. íþrótta- salurinn er mjög mikið notaður alla daga. í afgreiðslu í fordyri miðstöðv- arinnar. væru þeir búnir að panta tíma aftur um næstu páska. Ohætt er að segja að sund- laugin sé vinsæl meðal krakk- anna og margt fólk notar sér þrekþjálfunaraðstöðuna í hús- inu í tengslum við sauna-baðið og sundlaugina. Á síðastliðnu sumri kom einnig mikið af er- lendu ferðafólki í laugina, sem ekki er fjarri að verði með tímanum vinsæll viðkomustað- ur ferðamanna í Eyjum. ÍÞRÓTTASALURINN ER VEL NÝTTUR íþróttasalurinn er notaður til leikfimikennslu frá 8 til 17 alla skóladaga. Síðan er han<n til afnota fyrir íþróttafélögin fram til 23.30. Um helgar er salurinn í notkun frá morgni til mið- ÍÞRÓTTAFÉLÖGIN SLÁST UM KRAKKANA Vestmannaeyingar hafa löng- um verið harðir í knattspyrn- unni og nú má ef til vill fara að búast við stærri tíðindum hvað úr hverju. Iþróttabanda- lag Vestmannaeyja, ÍBV, hefur nú hluta af sinni æfingaaðstöðu í íþróttamiðstöðinni, bæði bún- ingsherbergi og böð og hefur æfingaaðstaða knattspyrnuliðs- ins aldrei verið betri. Um þess- ar mundir er félagið að semja við enska þjálfarann Skinner um að koma til Eyja, en hann hefur verið þar áður og gert þar marga góða hluti. Vignir sagði að það væri án efa aðstöðunni að þakka að körfuboltaliðið þeirra hefði unnið sig upp úr 3. deild í fyrra í 2. deild eftir fyrsta ár íþróttamiðstöðvarinnar. Nú starfa 4 íþróttafélög af fullum krafti í Eyjum, íþrótta- félagið Þór, Knattspyrnufélagið Týr, körfuboltafélag og bad- mintonfélag og mætti næstum segja að félögin slægjust um áhugasömustu krakkana og öll hafa þau sína æfigaaðstöðu í húsinu. LYFTINGAKLÚBBUR — FRÚARLEIKFIMI Segja má að innan veggja íþróttamiðstöðvarinnar séu FV 11 1977 55

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.