Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 61

Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 61
Fisltiðjan hf.: Fá fisk af fjórum togurum en bátaafli hefur minnkað Rætt við Guðmund Karlsson, framkvæmdastjóra Guðmundur Karlsson framkvœmdastjóri Fiskiðjiunnar hf. er landskunnur athafnamaður. Þegar blaðamenn Frjálsrar verzlun- ar bar að garði í Eyjum var prófkjöri sjálfstæðismanna nýlokið eftir snarpa og viðburðaríka kosningabaráttu þar sem Guðmundur fór með sigur af hólmi. Eftir að hafa óskað Guðmundi til ham- ingju með glæsilegan sigur lögðum við fyrir hann nokkrar spum- ingar sem hann leysti úr greiðlega. — Hvernig hefur uppbygging Fiskiðjunnar gengið fram að þessu? — Það má segja það að upp- byggingin eftir gosið gekk nokkuð vel og það var rösklega unnið í byrjun. Svo komu nátt- úrlega ýmsir vankantar í Ijós eins og gengur. Þegar farið var að reka fyrirtækið aftur, en það er um 25 ára gamalt, kom í ljós að ýmsar vélar og tæki sem orðin voru allt að 20 ára göm- ul, t.d. aflvélarnar 'hjá okkur, höfðu ekki þolað flutningana og þá meðferð sem þær urðu fyrir og brotnuðu niður. Við höfum þvi þurft að endurnýja aflvélar fyrirtækisins og því verki erum við eiginlega að ljúka þessa stundina. Það kom einnig i ljós að ýmis frystitæki, sem við höfum notað, höfðu ekki þolað að standa svona lengi ónotuð og þessvegna höf- um við orðið að endurnýja frystitækin að miklu leyti. Þetta er því gífurlega mikil uppbygging á skömmum tíma og miklu meira heldur en það að taka eitt frystihús niður og setja það upp aftur. Við höfum ekki lokið endur- byggingu húsakostsins ennþá, en það brotnaði niður hluti Austurhússins, sem við köllum. Hraunið þrengdi sér þarna á milli húsanna. Þetta verðum við að byggia upp aftur þótt ég viti efcki nú hvar við fáurn fé til þess. — Nú gerði Fiskiðjan út báta hér áður fyrr, hvernig er út- gerð ykkar háttað nú? — Jú við gerðum eitt sinn út 6 fiskibáta en seldum þá alla. Nú er fyrirtækið aðili að útgerð þriggja skuttogara. Við eigum útgerðarfélagið Klatok hf. með ísfélagi Vestmannaeyja og Vinnslustöðinni. Ennfremur er- um við aðilar að Fiskimjöls- hefðbundnu mið sem áður, þeir verða að fara hér út i djúp- kantana og sarga þar upp það sem þeir fá. — Er þetta sökum ofveiði? — Ég býzt við því að það sé ofveiði sem sé orsökin, — á ekki von á öðru. 'Hér áður fyrr nutu Vestmannaeyingar ákveð- innar fjarlægðarverndar á þess- um miðum hér í kring, þá sóttu menn ekki eins langt. Nú hefur allur floti suðurstrandarinnar sótt á þessi mið í mörg ár, mið sem við vorum lengst af einir um. Nú má segja að hér sé Guðmund- ur Karls- son í skrifstofu sinni. verksmiðjunni hf., en hún keypti tvo skuttogara á þessu ári. Við höfum því fisk, að hluta, af fjórum togurum því togarinn Vestmannaey leggur einnig upp hjá okkur. Bátaafli hefur dregist allmikið saman hér í Vestmannaeyjum á síðari árum, t.d. dróst bátaaflinn sam- an um 30% milli tveggja síð- ustu vertíða, og við erum ekki mjög bjartsýnir á næstu vertíð hvað snertir bátana. — Hvað telur þú valda þess- um samdrætti hjá bátunum? — Ja, það er miklu minni fiskgengd en áður var, t.d. þýð- ir ekkert fyrir netabátana leng- ur að leggja á þessi gömlu, eða netagirðing fram með allri ströndinni frá því snemma á haustin og alveg fram á vor. — Talandi um ofveiði, nú hafa þau boð út gengið að þeg- ar hafi verið keyptir 17 skut- togarar sem koma eigi til lands- ins á árinu 1978. Á sama tíma er verið að tala um hættuna á að þorstofninum verði útrýmt og stjórnvöld farin að gera ráð- stafanir í því efni. Er þetta ekki þversögn í sjálfu sér og eru plássin á landsbyggðinni ekki að nota skuttogara til að gera út á eitthvað annað en þorsk, t.d. ríkissjóð? —- Jú víst er þetta þversögn. FV 11 1977 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.