Frjáls verslun - 01.11.1977, Blaðsíða 66
hutléni
Nauðsyn bættra
stjórnunarhátta
Því verður tæpast mótmælt, að stjórnun
er víða ábótavant í íslenzkum fyrirtækjum.
Sé litið yfir sögu fyrirtækja hér á landi kem-
ur í ljós, að stórhuga framkvæmdamenn
hafa unnið mikil þrekvirki með því að ráð-
ast í nýjungar og byggja upp umfangsmikla
og hina þarflegustu starfsemi. Framhaldið
hefur svo oltið á því, hvort skipulag stjórn-
unar hefur verið í samræmi við kröfur tím-
ans eða ekki.
Þau eru mörg dæmin um atorkumenn-
ina, sem þannig hafa fengið snjallar hug-
myndir, og fá þær kannski enn, en hafa
látið skipulag fyrirtækja sinna og yfirsýn
yfir rekstur þeirra frá degi til dags reka á
reiðanum. Mörgum hefur reynst erfitt að
átta sig á þeirri staðreynd, eða sætta sig við
hana, að ekki fer alltaf saman frjótt hug-
myndaflug, áræðni og dugnaður og góðir
stjórnunarhæfileikar í blíðu og stríðu. Þeir
eru ekki öllum athafnamönnum meðfæddir.
Enn er áberandi, að forsvarsmenn margra
einkafyrirtækja gera sér ekki grein fyrir
þýðingu bókhalds sem stjórnunartækis.
Bókhaldið er sums staðar aukaatriði, sem
hlaupið er í þegar nauðsyn rekur menn til
að gera reikningsskil í stað þess að hafa
það ávallt fyrirliggjandi sem gleggstu vís-
bendingu um stöðu fyrirtækisins á hverjum
tíma. Mörgum hefur reynzt ofviða að koma
slíku lagi á bókhaldsmál sín af eigin ramm-
leik og þá ekki gripið til þess sjálfsagða ráðs
að leita aðstoðar 1 því efni.
Tölvuvæðing síðustu ára hefur boðið upp
á ný tækifæri í bókhaldsþjónustu við fyrir-
tæki. Ýmsir aðrir þættir stjórnunarmála
hafa einnig komið til kasta tölvunnar þann-
ig að til hennar hefur verið hægt að leita
með upplýsingar um hinar mismunandi
hliðar á rekstrinum.
Sérhæfð þjónustufyrirtæki hafa tekið til
starfa og eru reiðubúin til aðstoðar. Það ber
vissulega að fagna þeirri þróun, sem tví-
mælalaust er mjög hagkvæm þjóðhagslega.
Og þjónusta af þessu tagi flokkast ekki til
neinna hlunninda fyrirtækja á höfuðborg-
arsvæðinu, því að hún er fyrir hendi víða
um land. Eins og sjá má af frásögn í þessu
blaði af rekstri eins slíks fyrirtækis í Vest -
mannaeyjum má gera ráð fyrir að tölvu-
þjónusta eigi í stöðugt vaxandi mæli eftir
að koma við sögu frystihúsa í landinu og
sjávarútvegsins í heild.
Starf Stjórnunarfélags íslands hefur, sem
kunnugt er, beinzt mjög að því að kenna
ábyrgðarmönnum í fyrirtækjum nýjustu
stjórnunarfræði og hefur félagið efnt til
fjölmargra námskeiða í því skyni. Slíkt
námskeiðshald er einmitt í gangi nú. 1
þessu sambandi er ennfremur rétt að benda
á að stjórnunarfræðsla á ekki einvörðungu
erindi til æðstu yfirmanna fyrirtækjanna
heldur þarf hún að ná miklu lengra inn i
starfsmannahópinn og verða almennari en
hún hefur verið hingað til. Það er ómældur
tími sem betur nýtist, bæði hjá yfirmönnum
og undirmönnum í fyrirtækjunum, ef menn
hafa lagt sig fram um að afla sér stjórnun-
arþekkingar á námskeiðum eins og þeim,
sem Stjórnunarfélagið beitir sér fyrir.
Aukin stjórnunarfræðsla er ekki aðeins
nauðsyn hjá einkafyrirtækjunum. Ríkis-
fyrirtækin eiga margt, og kannski miklu
meira, ólært á þessu sviði. Vekja verður
forráðamenn þeirra til skilings á þörf
góðrar stjórnunar og hefur það reyndar
verið gert í umræðum um umsvif opinbers
rekturs. Krafan um aðhald hjá opinberu
fyrirtækjunum verður sífellt meira áber-
andi. Borgararnir vilja að hjá hinu opinbera
sé gætt ráðdeildar og góðs skipulags á allri
stjórnun. Mikill misbrestur hefur verið á
þessu og full þörf á að senda margan opin-
beran embættismanninn á byrjendanám-
skeið eða í endurhæfingu í stjórnunarfræð-
um.
66
FV 11 1977