Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 9
Einar Ingi Halldórsson, hefur verið ráðinn
bæjarstjóri í Hafnarfirði og tekur hann viö
starfinu af Kristni Ó. Guömundssyni, sem verið
hefur bæjarstjóri um margra ára skeið. Tekur
Einar Ingi við bæjarstjóraembættinu 1. júlí n.k.
Einar Ingi Halldórsson er fæddur 5. júní 1947
í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Verslunar-
skóla íslands vorið 1968, en stundaði síðan
nám við lagadeild Háskóla íslands, og lauk
þaðan embættisprófi vorið 1974.
Frá því aö Einar lauk prófi frá lagadeild hefur
hann starfað hjá Tryggingu hf. sem lögfræð-
ingur fyrirtækisins.
Bæjarstjórinn er framkvæmdastjóri bæjar-
stjórnarinnar í Hafnarfirði og sér um að
ákvörðunum og samþykktum bæjarstjórnar-
innar sé framfylgt.
I' Hafnarfirði búa nú rúmlega 12 þúsund
manns. í bæjarstjórninni sitja 11 manns, fjórir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, tveir fulltrúar fél-
ags óháðra borgara, tveir fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins, tveir fulltrúar Alþýöuflokksins og
einn fulltrúi Framsóknarflokksins.
í Hafnarfjarðarbæ verða helstu framkvæmdir
í sumar viðbygging við Lækjarskólann, bygging
Engidalsskólans, sem verður lokið á þessu ári,
bygging 12 íbúða fyrir aldraða, sem einnig
verður lokið við á þessu ári og fleira.
Gatnagerðarframkvæmdir verða töluverðar í
bænum í sumar, og má meðal þeirra nefna
gatnagerðarframkvæmdir í nýju íbúðarhúsa-
hverfi, Hvammahverfi, gatnagerðarfram-
kvæmdir í nýju iönaðarhverfi og lagning slit-
laga á götur í bænum.
Dr. Guðmundur K. Magnússon, prófessor í
viðskiptadeild Háskóla Islands var kjörinn
rektor Háskóla íslands í rektorskosningunum 3.
apríl s.l. Tekur hann við embættinu 15. sept-
ember í haust.
Guömundur K. Magnússon er fæddur 21.
apríl 1937 í Reykjavík. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1957. Að námi
loknu lagði hann stund á þjóðhagfræði í
Stokkhólmi og Uppsölum og var einnig um tíma
við nám í Bandaríkjunum við MIT háskólann.
Guðmundur lauk doktorsprófi frá háskólanum í
Uppsölum 1969.
Árið áöur, eöa 1. mars 1968 var hann skip-
aður prófessor við Háskóla íslands og hefur
hann gegnt prófessorsembætti við viðskipta-
deildina síðan.
— Aðalverkefni rektors Háskóla íslands,
sagði Guðmundur er aö sjálfsögðu að stýra
skólanum, og ég lít á rektorsstarfið sem fram-
kvæmdastjórastarf. Það er háskólaráð sem
tekur helstu ákvarðanir í málefnum Háskóla ís-
lands, og rektor á aö framfylgja þeim sam-
þykktum og koma fram fyrir hönd skólans út á
við.
— Brýnustu verkefnin sem framundan eru í
málefnum háskólans eru byggingamálin og
skipulag á háskólalóð, einnig mál varðandi
rannsóknir og kennslu í Háskólanum, sagði
Guðmundur.
Guðmundur K. Magnússon er lesendum
Frjálsrar verzlunar vel kunnur. Hann hefur í
mörg undanfarin ár skrifað reglulega greinar
um viðskipta- og efnahagsmál í blaðið.