Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 83
Á þjóðhátíð, í sólbað eða
í Evrópuferð
Ferðaskrifstofan Atlantik býður upp á margvísleg-
ar ferðir til útlanda í sumar, þar á meðal ferð á þjóð-
hátíðina á eynni Mön, Mið-Evrópuferð, ferð um
Benelux-löndin og Frakkland, Florida-ferðir sem
farnar verða í allt sumar og einstaklingsferðir til eyj-
arinnar Jersey, sem rómuð er sem sumarleyfispara-
dís.
Atlantik, sem nú hefur starfað frá því í janúar 1978,
mun í sumar auk þess sem hún stuðlar að ferðum
íslendinga til útlanda, taka á móti erlendum ferða-
mönnum, aðallega Þjóöverjum, sem hingað koma
með ýmsum skemmtiferðaskipum í sumar, alls um
8000 manns. Stærsta skemmtiferðaskipið, sem hing-
að kemur á vegum Atlantik er Maxim Gorki, en meö
því verða 950 farþegar. Það mun hafa viökomu hér á
landi nokkrum sinnum í sumar.
Jersey og Mön sumarleyfiseyjar.
Ibúar eyjarinnar Mön, sem er úti fyrir vesturströnd
Stóra-Bretlands, í hafinu milli Bretlands og írlands,
halda hátíölegt 1000 ára afmæli þingsins og minnast
þess með þjóðhátíð í sumar. íslendingar hafa ekki
mikið sótt þangað, þó hún hafi verið vinsæll sumar-
leyfisstaður meðal Breta.
Atlantik skipuleggur ferð á þjóðhátíðina á Mön 22.
júní til 6. júlí, en þá minnast eyjaskeggjar sérstaklega
síns norræna uppruna. Á þessum tíma er forseti ís-
lands þar einnig í heimsókn.
Auk þess að taka þátt í hátíöahöldunum er margt
annað boðið upp á, þar er hægt að spila golf, synda,
veiöa, sigla, leika tennis, skoða náttúruna meö því að
fara í gönguferðir og fjöldamargt fleira auk þess sem
þar er góð baðströnd. Þarna eru góð hótel.
Miklu sunnar, syöst í Ermasundi úti fyrir strönd
Noröur-Frakklands, er breska eyjan Jersey, sem fyrir
löngu hefur getið sér orð sem sumarleyfisparadís
sökum þess hve sólrík hún er, vegna fagurs lands-
lags, mikillar gróðursældar, góðra hótela og veit-
ingastaða. Til þessarar eyjar hafa Islendingar sótt í æ
ríkara mæli. Atlantik hefur boöið upp á skipulagöar
einstaklingsferðir til Jersey. Flogið er um London,
þannig aö kostur er á að dvelja þar. Fjölskylduaf-
sláttur gildir alla leiö til Jersey. Á sunnanverðri Jersey
nálægt St. Helier, höfuðborginni, eru góðar bað-
strendur.
Fljúgið — takið bílaleigubíl.
Fljúgið — akið, segir í auglýsingu frá Atlantik.
Ferðaskrifstofan er í sambandi við bílaleiguna
Budget, sem er stórfyrirtæki með yfir 1400 skrifstofur
um allan heim. Hjá þessari bílaleigu er hægt aö fá litla
Frá
eynni
Mön
og stóra bíla. Ef bíllinn er tekinn í Kaupmannahöfn
kostar 4-5 manna bíll frá kr. 56 þúsund á viku, kíló-
metrafjöldi er ótakmarkaður, verðlagið er aðeins
lægra í Bretlandi, og ef tekinn er bílaleigubíll, 4-5
manna í London kostar hann frá kr. 50 þúsund. Fólk
getur ekið hvert sem verða vill, og í flestum tilfellum er
hægt að skila bílnum annars staðar en hann var tek-
inn, t.d. má taka bílinn í Kaupmannahöfn, aka til
Luxemborgar og skila bílnum þar og fljúga síðan
þaðan heim.
Atlantik er einnig í sambandi við bandarískt fyrir-
tæki Trailways, sem skipuleggur ökuferðir með lang-
ferðabílum um Bandaríkin þver og endilöng. Þessar
ferðir er hægt að panta hjá Atlantik. Flogiö er til New
York, en þaðan ekið með langferðabílum, hvert sem
vill . . .
ökuferð um Evrópu
Skipulagðar hafa verið tvær ferðir í sumar á vegum
Atlantik, önnur er Miö-Evrópuferð en í hinni ferðinni
er ekið um Benelux-löndin og Frakkland.
Fyrri ferðin er um miðjan júlí. Flogið er til Luxem-
borgar, en ekið þaðan til Þýskalands. I ferðinni er ekið
um eða komið til fimm höfuðborga, Luxemborg,
Bonn, Haag, Brussel og Parísar. Komið er víða við og
margir staðir skoöaðir. Langferöabíllinn sem ferðast
er með er loftklædur, og gist er á mjög góðum ferða-
mannahótelum. Áætlað er að þessi ferð kosti um 355
þús. pr. mann.
Mið-Evrópuferðin er í ágúst. Þá liggur leiðin um
Þýskaland, Sviss, Lichtenstein, Austurríki og (talíu og
heim frá Luxemborg, en þangað er einnig flogið,
þegar út er farið. Á þessum stöóum er landslag ein-
staklega fagurt, og margt að sjá og skoða.
75