Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 58
ríkja, prinsar og greifar búa á
d’Angleterre þegar þeir eru í
Kaupmannahöfn. En það hefur
fækkað í þessum stéttum á síðustu
áratugum og forráðamenn
d'Angleterre hafa orðið að grípa til
sinna ráða til að skapa fyrirtækinu
eðlilegan rekstursgrundvöll í sí-
harðnandi samkeppni. Því hefur
aukin áherzla verið lögð á að
kynna d’Angleterre sem fyrsta
flokks hótel, baðað í Ijóma minn-
inga löngu liðinna ára í þessum
gamla hluta Kaupmannahafnar en
þó opið öllum, sem kunna að meta
rólegt umhverfi, góöa þjónustu,
stór og rúmgóð herbergi með
miklum gluggum, skrautlegar
setustofur og hótelganga, — og
það án þess að verðið sé neitt
hærra en gengur og gerist á beztu
hótelum Kaupmannahafnar eins
og Royal, Scandinavia eða Shera-
ton. Herbergin eru 144 í þremur
mismunandi verðflokkum og þar
að auki eru 13 svítur. Verð á eins
manns herbergi, sem að sjálf-
sögöu er með baði, er frá 325 d.kr.
upp í 400 en tveggja manna her-
bergi frá 400 d.kr. upp í 640 d.kr.
Vilji menn leigja svítu stendur hún
til boða fyrir upphæðir á bilinu
770-1500 d.kr. yfir sólarhringinn. í
öllum þessum verðum er þjón-
ustugjald og skattur innifalinn.
Samdráttur í túrisma — of mörg
hótel
Eigil Hummelgaard, hótelstjóri á
d’Angleterre, tjáði okkur, aö hótel í
Kaupmannahöfn væru oröin of
mörg nú til að geta sýnt sæmilega
afkomu. Samdráttur hefði orðið í
ferðamálum og sérstaklega hefði
heimsóknum Bandaríkjamanna
fækkað á síðustu sjö árum. Hins
vegar væri nokkur aukning í ráð-
stefnuhaldi.
í heild var samdráttur í komum
ferðamanna til borgarinnar milli
ára 1977 og ’78, 3,5% og nýting á
hótelum minnkaði um 8-10% síð-
ustu átta árin.
Hummelgaard sagði að Hotel
d’Angleterre mætti sæmilega vel
við una enda væri mikið um föst
viðskipti við opinbera aðila eins og
danska utanríkisráðuneytiö, sem
gjarnan býöur gestum sínum gist-
ingu þar. Þá eru kvikmyndastjörn-
ur eins og Gina Lollobrigida meðal
„fastagesta” og svo fjöldinn allur
af forstöðumönnum fyrirtækja
víðaumheim.
Fólk kemur aftur og aftur á
d’Angleterre og í hópi „fasta-
gesta” þar hafa verið nokkrir ís-
lendingar eins og Hörður Bjarna-
son, fyrrverandi húsameistari rík-
isins og Ludvig heitinn Storr, stór-
kaupmaður. Hummelgaard gat
þess einnig að forseti íslands hefði
verið gestur á d’Angleterre, ís-
lenzkir ráðherrar og ráöuneytis-
stjórar.
Sértilboð í Reine Pédauque.
Eins og áður segir hefur hótelió
á síðustu tímum lagt áherzlu á aö
ná betur til hins almenna ferða-
manns, og ennfremur til hins
venjulega borgara í Kaupmanna-
höfn með ákveðnu nýmæli í veit-
ingastarfsemi sinni. Fyrir þremur
árum var veitingasalnum á jarð-
hæð hótelsins breytt nokkuð og
honum gefið nafnið Reine
Pédauque. Þar er hægt að velja
sér af köldu borði í hádeginu fyrir
90 d.kr. en á kvöldin eru þar fram-
reiddir fjölbreyttir réttir samkvæmt
matseðli. Þó ber að vekja sérstaka
athygli á eins konar „tilboði" á
matseðlinum, en það er þríréttuð
máltíð með eins miklu af hvítvíni og
rauövíni og menn vilja á föstu
verði: 136 d.kr. allt innifalið. Hefur
gesturinn líka tvo eða þrjá valkosti
um hvern rétt. Fyrir rúmar 160 kr.
er svo hægt að fá fjölbreyttara úr-
val rétta. Þessi nýjung hefur mælzt
mjög vel fyrir og koma menn þarna
gjarnan til að halda upp á afmæli
eða af öðru tilefni og stíga dans
eftir málsverðinn því. að dans-
hljómsveit leikur í Reine
Pédauque. Veltan hefur aukizt um
54% eða um 1,5 milljónir danskra
Eigil Hummelgaard (í miðju) og starfsmenn hans bjóða gesti vel-
komna á Reine Pédaugue veitingasalinn.
Hestaui*ant Hoint' I V'dauqiK
56