Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 23

Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 23
kúnnann verður bæði skjótvirkari og öruggari, mun minni líkur eru á rangfærslum í birgðaskrá og þannig mætti halda áfram að telja upp næstum endalaust." ,,Mér telst til“, segir Steinar, ,,að tölvan muni borga sig á 2 árum. Þá hef ég ekki reiknað með þeim sparnaði sem felst í minni staðalbirgðum, markvissari sölu og virkari stjórnun í fyrirtækinu. Þessi tölvubún- aður kostaði okkur það sama og einn Range Rover kostar nú og af því getur hver og einn vegiö og metiö hve góö þessi fjárfesting er. Hvenær á að kaupa tölvu? Að okkar áliti, og það byggjum við á reynslu okkar undanfarin ár, þá er ekki ástæða til þess að kaupa tölvu ef einungis er um það að ræða aö færa og vinna fjárhagsbókhald, það hefði verið okkur hagstætt að láta vinna það áfram hjá sérhæfðum aðila utan fyrir- tækisins. Þegar birgðabókhald er annars vegar gegnir öðru máli. Það er einfaldlega ekkert millistig til á milli handfærðu spjaldskrárinnar og tölvu. Þess mætti einnig geta, að þegar kröfur um skriffinnsku eru orðnar jafn miklar og í okkar þjóðfélagi, þá er hægt að létta verulega á stjórnendum með því að láta tölvu vinna úr hinum ýmsu upplýsingum sem hún er mötuð á, þannig fær stjórnandinn aukinn tíma til þess að einbeita sér að því sem telst raunverulega stjórnun en ekki snúningur fyrir einhvern opinberann Pétur eða Pál. Hvað þarf að hafa í huga? Að lokum báðum viö þá Steinar og Guðmund að gefa lesendum ráð um hvernig ætti að standa að tölvuvæðingu að fenginni reynslu þeirra. Steinar: Það er auðvitað ekki hægt að gefa nein ráð um það, hvert fyrirtæki er með sín séreinkenni og sérþarfir. Af okkar reynslu að dæma, sem er góð enn sem komið er, og á ég ekki von á öðru en að hún haldi áfram að vera það, þá er þó eitt sameiginlegt með öllum fyrirtækjum, sem hyggjast fara að breyta til: Tölvubúnaðurinn er nánast aukaatriði, það er hug- búnaðurinn sem mestu máli skiptir. Ég mundi ekki ráðleggja neinum að kaupa tölvu nema henni fylgi þau forrit sem nauðsynleg eru til þess að hún geti komið að notum. Ég tel að á þessu hafi verið mis- brestur, fyrirtækjum hafa veriö seld tæki án þess að forrit hafi verið fyrir hendi og afleiðingar þessara ,,slysa“ tel ég vera hve afstaða margra er hikandi í þessum efnum. Hér hjá okkur var enginn starfsmaður með sérþekkingu á tölvum eða tölvuvinnslu. Við rek- um framleiðslu og heildsölufyrirtæki, — ekki tölvu- fyrirtæki, við ætluðum ekki að ráða hér kerfisfræðing til þess að annast okkar tölvuvinnu. Við keyptum því ,,pakka“ þar sem allur hugbúnaður var innifalinn, enda reyndist það einungis taka nokkra daga fyrir okkar starfsfólk að læra á þetta og þannig á það að vera. Þessvegna er mitt ráö einfaldlega það að benda fólki á að kaupa ekki tölvubúnað nema það sé öruggt að honum fylgi tilbúin forrit og síðan sú þjónusta sem nauðsynleg er til þess að aðlaga forritin að þörfum fyrirtækisins. Guðmundur: Eg tel að það hafi einnig auðveldað okkur þessa skipulagsbreytingu, að við höfum áður látið tölvuvinna bókhaldið, starfsfólkið þekkti því vel til þeirra vinnubragða. Við þurftum ekki að senda neinn á námskeiö, öll kennslan fór fram hér hjá okkur samhliða því að kerfisfræðingur frá Heimilistæki sf setti tölvukerfið upp. Það er einnig töluvert atriði að tölvan er þannig forrituð að hún getur leiðbeint not- andanum, bæði er hægt að spyrja hana og hún spyr, þannig er hægt að fikra sig áfram að hagkvæmustu lausninni. Þá má einnig benda á, að tölvuvæóingin hefur leitt til þess, að ýmis hagræðing hefur verið tekin upp án þess að það tengist henni beint. Tölvuþjónustan Kaupvangsstræti 4 Pósthólf 735 602 Akureyri Sími: 96-21505 Tökum að okkur kerfissetningu og forritun. Höfum tilbúin forrit fyrir: FJÁRHAGSBÓK- HALD LAUNABÓKHALD LAGERBÓKHALD FÉLAGASKRÁR BETRI UPPLYSINGAR BÆTTUR REKSTUR 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.