Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 38
Stærri tölvusamstæða frá Digital. VAX-11 /780 System. Kristján Ó. Skagfjörð hf. Tölvur eru ekki aðeins fyrir bókhald Aðalstöðvar Kristjáns Ó. Skag- fjörð hf eru í veglegri byggingu að Hólmsgötu 4 úti í Örfirsey. Þar er verið að ganga frá nýrri aðstöðu fyrir tölvudeild fyrirtækisins á annarri hæð. Verður hún bæði rúmgóð og hentug. Frosti Bergs- son veitir tölvudeildinni forstöðu, en sú deild hefur vaxið hröðum skrefum á stuttum tíma. Skagfjörð er með Digital tölvubúnað og sagði Frosti að það væri stefna fyrirtækisins að binda sig ekki eingöngu við eina tegund heldur nota hana sem undirstöður og þróa síðan alhliða framboð á tölvubúnaði og jaðartækjum auk hugbúnaðar fyrir fjölbreytta notkun. Sagðist Frosti vera þeirrar skoðunar að kominn væri tími til þess að íslendingar færu að taka sína eigin stefnu í tölvumálum, vinna að aðlögun tölvubúnaðar fyrir þarfir atvinnulífsins og þá án þess að vera háðir erlendum aðil- um í einu og öllu á þeirri braut. Hér væri tvímælalaust grundvöllur fyrir íslenzkan tölvuiðnað. Digital hefur vaxið mest allra tölvuframleiðenda Digital fyrirtækið bandaríska varð upphaflega til á rannsókna- stofum MIT-háskólans og þeir framleiddu fyrstu tölvuna sem kostaði innan við 1 millj. dollara, á sínum tíma. Á þeim tíma tíðkaðist það að byggja sérstök hús utan um tölvur. Fyrirtækið hefur mjög sterkar rætur í tækni og rann- sóknastarfsemi og hefur lengi sérhæft sig í framleiðslu á tölvum fyrir slíka aðila auk þess sem þeir hafa boðið tölvur fyrir viöskipti, t.d. bókhald. Frosti sagði að nú væri komin upp tölva hjá Loftskeytastöðinni í Gufunesi. Þar láta loftskeytamenn Digital tölvu um aó flokka þau skeyti sem þeir annast og senda þau inn á viðkomandi telextæki hjá fyrirtækjum hérlendis og erlendis. Þegar kerfið í Gufunesi verður komió upp verða þar 4 tölvur í gangi. ,,Við seljum tölvur bæði fyrir vísindastarfsemi og ekkert síður fyrir viðskipti", sagði Frosti Bergs- son, ,,en það sem mér finnst áhugaverðast er hvað okkar tölvur eru notaðar til margra hluta hér- lendis, það gefur ef til vill góða mynd af möguleikunum, ef talin væru upp nokkur þeirra fyrirtækja og lýst í hverju notkunin felst.“ Á sviði verkfræði- og raunvísinda „Háskóli íslands er með stóra Digital tölvu frá okkur og eru tengdar viö hana um 20 útstöðvar auk sérstaks teiknara. Hluti af þessum útstöðvum er tengdur um símalínu við tölvu Háskólans. Þannig eru útstöðvar hjá stofn- unum eins og Seðlabankanum, Þjóðhagsstofnun, Hafrannsókna- stofnun, Rannsóknastofnun land- búnaðarins, Tækniskólanum og Verzlunarskólanum. Þannig notar Háskólinn þessa tölvu til þess að vinna fjölbreytt verkefni fyrir þess- ar stofnanir og þetta er brautryðj- endastarf sem Háskólinn er að vinna með þessu. Allir þessir aðilar geta unnið samtímis að mismunandi verkefn- um og má því segja, að þar með sé Háskólinn búinn að veita yfir 20 aðilum aðgang að fullkominni tölvu, sem annars hefði kostað hvern aðila verulegt fé að öðrum kosti. Annar aðili sem notar Digital tölvu er Vegagerð ríkisins. Þeir nota sína tölvu til verkfræðilegra útreikninga, reikna út vegbygg- ingar, efnisgæði, magn og gera verkáætlanir og kostnaðaráætl- anir. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík hefur aðgang að tölvu Vegagerðarinnar um útstöð. Þá má nefna Landsvirkjun sem er með Digital PDP 11/34. Þeir nota sína tölvu jöfnum höndum fyrir bókhald og verkfræðilega út- reikninga. Landsvirkjun er með útstöð við sína tölvu og er hún hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Póstur og sími er með Digital tölvur uþpi í Gufunesi, eins og áður var sagt frá, þar verða 4 tölv- ur þegar kerfið er komið í gang. Síminn er einnig með Digital tölvu sem notuð er í sambandi við síma- skrána, (einkum til að svara fyrir- spurnum þegar hringt er í 03.) Þaö er PDP 11/34 og með henni er einnig hægt að færa inn allar breytingar á sfmaskránni jafnóð- um og þær gerast auk þess sem 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.