Frjáls verslun - 01.05.1979, Qupperneq 19
tölvuvæðingar. í síðasta lagi er
það verðbólgan og harðnandi
samkeppni sem skapar þörf fyrir
tölvur. Á sama tíma og fjármagnið
verður sífellt dýrara, launakostn-
aður hækkar og reyndar allur
rekstrarkostnaður atvinnulífsins,
hefur hver afkastaeining í þeim
tækjum sem mestri framleiðni-
aukningu geta valdið, tölvum,
lækkað svo mikið aó það sem var
ekki á færi meðalfyrirtækis fyrir 5
árum getur venjuleg dagvöru-
verzlun aflað sér nú.
Framleiðni og tölvur
Þótt íslenzki markaðurinn kunni
aö þykja lítill í augum stórfyrir-
tækja erlendis, þá verður ekki vart
við að tölvuframleiðendur ætli að
leiöa ísland hjá sér. Staðreyndin er
sú, að ísland er kjörinn vettvangur
til hreinna markaðstilrauna á
tölvusviðinu. Ástæðurnar eru
margar en þær helstu eru þær að á
íslandi er kaupmáttur verulegur,
almenn menntun og tæknivæðing
er á háu stigi og síðast en ekki sízt
er hér rekinn fiskiðnaður með
mestu framleiðni í heimi. Verð-
bólga gerir það að verkum að ár-
angur tölvunotkunar kemur mjög
fljótt í Ijós og um leið er þörf fyrir
skjótvirkari upplýsingamiðlun í
rekstri en annars staðar þekkist
auk þess sem mjög auðvelt er að
fylgjast með markaðsþróun hér-
lendis.
Erlendir tölvuframleiðendur
hafa því áhuga á íslandi og þeir
hafa sýnt það í verki. Viö þurfum
því ekki að hafa neina minnimátt-
arkennd gagnvart útlendingum á
þessu sviði fremur en í okkar fisk-
iðnaði.
Með tæknistöðu og framleiðni
fiskiðnaðarins í landinu í huga er
Ijóst að í íslenzku þjóðfélagi er
brýn þörf fyrir heildarstefnumörk-
un í málefnum sem snerta tölvu-
væðingu og tölvutækni. Við eigum
í landinu tækniþekkingu sem hægt
er að virkja til stórra hluta á þessu
sviöi, sérstaklega í fiskiðnaði þar
sem ísland gæti á fáum árum orðið
leiðandi land í framleiðniaukandi
tölvutækni og selt slíka tækni-
þekkingu dýru verði erlendis.
Það sem er að gerast í fiskiön-
aðinum þessa stundina er tækni-
legt kraftaverk sem byggist á að-
fenginni tölvutækni og íslenzkri
tækniþekkingu. Það tölvukerfi
sem nú er verið að byggja upp á
eftir að auka framleiðni frystihús-
anna á næstu árum og sú fram-
leiðniaukning á eftir að skila
þjóðarbúinu virðisauka sem nem-
ur tugum milljarða króna.
Tölvuvæðingin
Þeim sem ekki eru tengdir störf-
um á sviði tölvunotkunar kemur
mjög á óvart hve tölvunotkun er nú
mikil á íslandi. Sú þróun hefur ekki
haft mjög hátt, ef þannig má að
orði komast, en hún hefur verið að
sama skapi hröð og jaðrar við
byltingu. Þrátt fyrir það fullyrða
kunnugir aðilar að íslenzki mark-
aðurinn sé einungis að byrja að
taka við sér, hann sé óplægður,
eins og einn komst að orði.
( greinunum hér á eftir kemur
margoft fram, að forsenda þess að
tölvunotkun skili hámarkshag-
kvæmni sé að hugbúnaður fyrir
íslenzkar aðstæður sé til staðar. Á
því sviði hefur gífurlegt starf verið
unnið af íslenzkum kerfisfræðing-
um á tiltölulega fáum undanfar-
andi árum og er IBM þar í farar-
broddi. Þegar litið er fram á veginn
verður ekki annað sagt en að við
blasi áframhaldandi tölvuvæðing
og að notendamarkaðurinn á ís-
landi sé að vöxtum uppá hundruð
milljóna króna á næstu árum.
Það er áberandi að ákveðin
hugarfarsbreyting meðal fólks
hefur átt sér stað þegar tölvunotk-
un er annars vegar. Fyrir nokkrum
árum var sú skoðun útbreidd, að
tölvur myndu koma í stað fólks. Nú
er sú skoðun aftur á móti ríkjandi,
að tölvur séu fyrst og fremst hjálp-
artæki og geti gert okkur kleift að
inna af hendi störf, sem áður voru
okkur ofviða. Hræðslan við tölvur,
t.d. í sambandi við öflun persónu-
bundinna upplýsinga er ógrunduð
að því leyti að án mannsins getur
tölvan nákvæmlega ekki neitt.
Tölva í höndum misindismanns er
jafn hættuleg og byssa í höndum
óvita. Af þeim sökum hafa mörg
lönd markað sér stefnu í tölvumál-
um og jafnvel sett sér lög og
reglugerðir um notkún þeirrar
tækni sem að baki býr. Allt bendir
til að slík stefnumörkun sé nauð-
synleg á íslandi, en hún þarf um-
fram annað að taka mið af þörfum
atvinnulífsins í stað mismunandi
stjórnmálalegrar afstöðu til tölvu
eða tækninnar yfirleitt.