Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 25
„Ein aðalástæðan tyrir vinsældum Wang-tölvanna er sú, að Heimilistæki hafa fullkominn hugbúnað á
boðstólum", sagði Ólafur H. Ólafsson.
HeimiHstæki sf:
Wang-tölvurnar henta
íslenzkum aöstæðum
Wang Laboratories, Inc. er
bandarískt tölvufyrirtæki sem
Heimilistæki sf hefur haft umboð
fyrir og selt tölvur frá í nokkur ár.
Þessar tölvur hafa reynst vera
mjög hentugar fyrir íslenzka stað-
hætti og hafa selst mjög vel.
Ólafur H. Ólafsson viðskipta-
fræðingur er deildarstjóri tölvu-
deildarinnar hjá Heimilistæki sf.
Ólafur fræddi okkur á því að Wang
Laboratories, Inc. hefði verið
stofnað árið 1951 og hefði fyrir-
tækið alla tíð lagt áherzlu á að
framleiða ódýrar tölvur sem
sniðnar væru að þörfum notenda.
Tvennt væri einkennandi fyrir
Wang. Annarsvegar eins konar
einingakerfi þannig að hægt er aö
byggja tölvukerfi fýrirtækja upp
smátt og smátt með því að bæta
við tækjakosti, án þess að þurfa að
losa sig við þau tæki sem keypt
voru í upphafi. Hinsvegar sú mikla
einföldun sem Wang fyrirtækið
hefði þróaö í meðferð tölvanna þar
sem þær væru svo rökrétt upp
byggðar að einungis einn eða tveir
dagar færu íað kenna fólki að nota
þær.
Ólafur sagði að það hefði frá
upphafi verið kjörorð Wang, að
þar sem væri þörf hefði Wang
lausn. Wang fyrirtækið sé nú ann-
aö stærsta í Bandaríkjunum í
framleiðslu smátölva fyrir við-
skiptalífið og eitt af þeim 5 banda-
rískum fyrirtækjum sem óx mest á
árinu 1977.
Hægt að byrja smátt og stækka
Eins og áður sagði er það eitt af
stefnumiðum Wang að gera tölvu-
notendum kleift að byggja upp
tölvukerfi í einingum. Við báðum
Ólaf H. Ólafsson að lýsa þessu
nánar: ,,Wang tölvurnar voru upp-
haflega hannaðar fyrir tæknileg
verkefni, þ.e. afmörkuð verkefni
t.d. við verkfræöi, rannsóknir,
læknaþjónustu og við kennslu.
Tölvurnar eru afturámóti notaðar
að mestum hluta til viðskiptalegra
verkefna núorðið þótt Wang fram-
leiði að sjálfsögðu bæði tölvukerfi
og hugbúnað fyrir tæknileg verk-
efni eftir sem áður. Aöalatriðið er
að Wang getur boðið tækjaein-
ingar sem eru færar um aö vinna
öll þau verkefni sem upp kunna að
koma, standa fyrir sínu mörg ár
fram í tímann og síðast en ekki sízt
eru tækin þannig upp byggð að
það sem keypt er í upphafi nýtist
áfram sem liður í framtíðarupp-
byggingu tölvukerfisins. Þetta er
töluvert atriði þegar það er haft í
huga, að tölvukerfi margra ann-
arra framleiðenda eru þannig að
þegar ákveðnu stigi er náð, verður
að skipta um tæki, selja það eldra
og kaupa nýtt með meiri afköstum.
25