Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 29
„Hjá okkur er nú unnið launabókhald rúmlega 60 fyrirtækja", sagði Kristján Sigurgeirsson, rekstrar-
tæknifræðlngur.
Rekstrartækni sf:
Tölvudeildin hefur vaxiö ótrúlega
Um árabii hefur Rekstrartækni
sf rekið tölvuþjónustu fyrir fjöl-
mörg fyrirtæki. Fyrirtækið hefur
nýlega komið sér fyrir í vistlegum
húsakynnum að Síðumúla 37.
Frjáls verziun leitaði til þeirra
Gísla Erlendssonar og Kristjáns
Sigurgeirssonar, sem báðir eru
rekstrartæknifræðingar og stofn-
endur Rekstrartækni sf, og bað þá
að fræða lesendur um þá þjón-
ustu sem þeir hefðu á boðstólum.
Fyrirtækinu er skipt þannig að
sérstök deild annast tölvuvinnslu
og önnur deild tæknileg verkefni
svo sem bónusskipulagningu,
skipulagningu framleiðslu og
fyrirtækja auk ýmissa hagræð-
ingarverkefna. Starfsmenn fyrir-
tækisins eru nú 25.
Stærsti þátturinn í tölvuþjónust-
unni er bókhaldsvinnsla fyrir fjöl-
mörg fyrirtæki og endurskoöendur
sem Rekstrartækni vinnur á IBM
System 34 en fyrir dyrum er
stækkun á tölvubúnaði og verður
tekin í notkun ný samstæða í haust
en það er IBM System 38. Stór
þáttur í tölvuvinnslunni er bókhald
og bónusútreikningur fyrir frysti-
hús, en á því sviði hefur fyrirtækiö
sérhæft sig á undanförnum árum.
Auk launa- og bónusútreiknings
fer ennfremur fram vinnsla á fram-
legð og nýtingu í frystihúsunum
auk gerðar skýrslna fyrir Fiskifé-
lagið. Einnig hefur Rekstrartækni
unnið sérstök launabókhöld fyrir
útgerðarfélög þar sem launa-
reikningar eru meira í formi við-
skiptamannabókhalds, t.d. vegna
úttekta áhafna á togurum.
Með stærri tölvusamstæðum.
Vélakostur Rekstrartækni, sem
er IBM System 34 er með stærstu
tölvum hérlendis af þeirri gerð. Við
tölvusamstæðuna eru tengd 7 inn-
sláttarborð, 3 skermar og hrað-
virkur aukaprentari. Þannig er
hægt að slá inn á 10 stöðum sam-
tímis ef því er að skipta. Þar fyrir
utan eru útstöövar tengdar við
tölvusamstæðuna hér í Reykjavík
og fara boð á milli um símalínu.
Þeir Gísli og Kristján voru sam-
mála um það að ótrúlega vel gengi
að nota símann í þessu sambandi
jafnvel út á land. Sú samstæöa
sem tekin verður í notkun í haust
er verulega stærri og öflugri tölva
IBM system 38.
Hvaða þjónusta er í boði?
Við spuröum þá félaga, Gísla og
Kristján, hvaða þjónustu þeir byðu
fyrirtækjum t.d. í sambandi við
tölvuvinnslu.
Kristján: Það er staðreynd að
mikið af þeim verkefnum, sem
tölvudeildin vinnur eru til komin
vegna þess að við erum einnig
með tæknideild. Það er verulegt
atriði að geta boðið tækniþjónustu
og tölvuþjónustu jöfnum höndum,
slík verkefni eiga iðulega saman
auk þess sem það er hagkvæmt
fyrir okkar viðskiptaaðila að geta
fengið þessa þjónustu hjá einum
og sama aðilanum.
29
L