Frjáls verslun - 01.05.1979, Síða 31
Frystiiðnaðurinn
Gísli: Við erum með tölvuþjón-
ustu fyrir 17 frystihús eins og
stendur. Við reiknum út bónus fyrir
þau daglega. Síðan söfnum við
framleiðslutölum frá þeim vikulega
og reiknum út lykiltölur í sambandi
við afköst og nýtingu, einnig vinn-
um viö framlegð sem þau hafa til
að bera saman reksturinn viku fyrir
viku.
Þetta er síðan dregið saman
einu sinni í mánuði og í því sam-
hengi höfum við komið á sérstöku
kerfi sem felst í því að stjórnendur
frystihúsanna hittast hér einu sinni
í mánuði og bera saman bækur
sínar. Það hefur sýnt sig að það
fyrirkomulag hefur leitt af sér
ákveðna samvinnu á milli þessara
aðila og hún auðveldar þeim að ná
betri árangri og leiöir jafnvel til
þess að ýmis vandamál eru leyst í
samvinnu.
Kristján: Viö höfum einn starfs-
mann í því að safna saman tölum
frá frystihúsunum hér á Reykja-
víkursvæðinu og afhenda úr-
vinnslugögn. Svo notum við Akra-
borgina, Umferðarmiðstöðina og
flug fyrir þau frystihús sem eru
utan svæðisins.
Gísli: Á Vopnafirði er frystihús-
ið með útstöð sem tengd er um
símalínu viö tölvumiðstöðina hér
hjá okkur þannig aö frá þeim er allt
fjarunnið og mjög auðvelt í meö-
förum. í þessu sambandi er rétt að
benda á að það er mikið að gerast
á tölvusviðinu í frystihúsunum og
áður en langt um líður tel ég að
flest húsanna verði komin með
litlar vinnslutölvur, eöa skermtölv-
ur, sem skrá jafnóðum upplýsingar
úr framleiðslunni og jafnvel vinna
úr þeim að einhverju leyti. Slíkar
útstöðvar yrðu svo tengdar
kjarnatölvum, t.d. hér í Reykjavík
og þá má segja að tölvuvæðingin
sé hafin að fullu. Þegar hagræðiö
af slíkum búnaði er metið þá verð-
ur kostnaðurinn við tækjabúnað-
inn sjálfan nánast aukaatriði, þá á
ég við útstöðvar með takmarkaðri
vinnslugetu. Það er einnig rétt að
benda á í þessu samhengi að með
þeim stöðluðu forritum sem viö
bjóðum, verður öll vinna í frysti-
húsunum sjálfum í sambandi við
tölvunotkunina, mjög auölærð og
fljótunnin. Viö höldum námskeiö
fyrir starfsfólkið og þau taka yfir-
leitt ekki meira en einn til tvo daga.
Iðnaðurinn — verzlun
Kristján: Hjá okkur er nú unnið
launabókhald rúmlega 60 fyrir-
tækja. Við reiknum launin út og
ávísanir eru skrifaðar út um leið. í
Fjárhags- og viðskiptabókhaldi
eru í vinnslu hjá okkur um 200
fyrirtæki í ýmsum greinum, sum
þeirra eru hjá okkur í vinnslu í
gegnum endurskoðunarskrifstof-
ur, t.d. er stærsti endurskoðand-
inn með um 40 fyrirtæki hjá okkur
en er þó sjálfur með innsláttar-
borð.
Gísli: Ef við lítum á iðnfyrirtækin
þá þjóðum við þeim ákveðinn
„pakka". Sú þjónusta innifelur þá
bókhald og launaútreikning, fram-
legðarreikning og fyrir sum þeirra
vinnum við viðskiptaskrá þannig
að þau fá yfirlit yfir stöðu við-
skiptavina um hver mánaðamót.
Fyrir iðnfyrirtæki getum við einnig
tölvuunnið allan bónusreikning og
ennfremur unniö lagerbókhald og
birgðaeftirlit.
Nú sem stendur er í gangi hjá
okkur sérstakt verkefni sem geng-
ur út á það aó búa til forrit sem
síðan yrði notað í sambandi við
margs konar áætlanagerð í fyrir-
tækjunum, viö erum einnig að
vinna aö verkefni fyrir lífeyrissjóði
og sveitarfélög. Við tökum einnig
að okkur forritagerð fyrir hvern
sem er.
Kristján: Það má nefna að síð-
ustu, að við erum að vinna að
skipulagningu á nýrri þjónustu við
okkar viðskiptaaðila. Hún felst í því
að bjóöa þeim tölvuskerma sem
tengdir verða tölvumiðstöðinni
hérna og verða þeir þá notaðir til
sölustarfa í tengslum við þirgða-
skrá sem unnin er hér fyrir fyrir-
tækin. Skermarnir verða þá í stöð-
ugu símasambandi við tölvuna og
þannig er hægt að selja vörur
beint af skerminum og skrá
birgðahreyfingu samtímis sölu.
Þar að auki opnar þetta möguleika
fyrir fyrirtækin á sérstöku pant-
anaeftirliti, sem verulegt hagræði
er af og ekki má gleyma þeirri
staöreynd að á þennan hátt geta
fyrirtækin tryggt að ávallt séu fyrir
hendi lágmarksbirgðir. I verðbólg-
unni er of stór lager eitt af því sem
gerir mörgu fyrirtækinu erfitt um
vik en á þennan hátt má tryggja
lágmarksbirgðir um leið og há-
marksráðstöfunarfé.
Hvert skal halda,
kannske í vesturátt?
Takið eftir HÖTEL
BJARG, Búðardal.
Við bjóðum
ykkur vel-
komin.
Dalirnir bjóða upp á
náttúrufegurð, marga
sögustaði og fallegt
landslag.
Dekkja viðgerðir
Sími 95-2161.
31