Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 85
Franska eyjan Korsíka
og Benidormstrendur
íslensku ferðaskrifstofurnar leita margar hverjar á
nýjar slóðir í sumar, og bjóða íslenskum ferða-
mönnum upp á að heimsækja staði, sem ekki hafa
verið skipulagðar hópferðir til áður af íslenskri
ferðaskrifstofu. Ferðaskrifstofan Olympo hefur leitað
fanga á eyjunni Korsíku, og hyggst bjóða upp á
hópferðir þangað í sumar.
Hugmyndin er að bjóða upp á tvær til fjórar ferðir
til Korsíku íjúlíog ágúst, en komið verður vió í London
í bakaleiðinni. Einkum verður dvalist í Ajacico, þar
sem góöar baðstrendur eru og í borginni Bastia.
Frá Islandi til Korsíku . . .
Korsíka er frönsk eyja úti fyrir vesturströnd Ítalíu.
Hún er m.a. þekkt fyrir það í veraldarsögunni, að þar
fæddist Napóleon hinn mikli Frakkakeisari, og verða í
ferðinni skoðaðar ýmsar minjar um hann, m.a. fæð-
ingarstaður hans.
Helsta lífsviðurværi sitt hafa íbúar Korsíku af fisk-
veiðum og vínyrkju. Korsíka er fjöllótt eyja með skógi
vöxnum hlíðum, en jafnframt eru víða góðar bað-
strendur. Gísli Maack hjá Olympo sagði, að Korsíka
væri ákaflega skemmtilegur staður að dveljast á og
umhverfið væri rólegt. Hann sagöi einnig, að hótelin
sem dvalist yrði á væru mjög góð.
. .. eða á hreinar strendur Benidorm.
Allt frá seinni hluta maímánaðar og fram til 5. sept-
ember verða farnar ferðir til Benidorm á vegum
Olympo. Ströndin við Benidorm hefur orð á sér fyrir,
hversu hreinleg hún er og allt umhverfi bæjarins
einnig, að sögn Gísla.
Benidorm er á Costa Blanca ströndinni, í Valencia
héraði, en borgin Valencia er í 140 km fjarlægð, en til
Alicante er 40 mínútna akstur suður á boginn. Gestir
geta gert sér ýmislegt til skemmtunar meðan á dvöl-
inni stendur, að sjálfsögðu sleikt sólina, en einnig
tekið þátt í skoðunarferðum sem farnar verða m.a. til
sérkennilegs fjallaþorps sem heitir Guadalest, skoð-
að dropasteinshella, farið með börnin í tivolí, sem þar
hefur nýlega verið sett upp, tekið þátt í næturklúbba-
ferðum og séð burtreiðar.
„Vínalegasta gestahús Englands"
Olympo hefur einnig lagt áherslu á ferðir til Florida,
en þangað bjóða þeir upp á einstaklingsferðir, og
sagði Gísli Maack, að fjölmargir hefðu fariö utan á
þeirra vegum frá áramótum. í þessar ferðir veröur
farið á þriggja vikna fresti í allt sumar. Flogið er frá
New York til Tampa, en þaðan fara flestir farþeganna
til St. Petersburg, en Disneyland er skammt þaðan.
Sagði Gísli, að þarna í St. Petersburg, í Sarasota og
Clearwater Beach m.a. væru mjög góðar baðstrend-
ur.
Ákaflega margir íslenskir ferðamenn hafa áhuga á
heimsborginni London og koma þar jafnvel aftur og
aftur. Olympo selur ferðir til London allt árið um kring,
auk þess sem ferðaskrifstofan selur farmiða til allra
áætlunarstaða Flugleiða. Gísli sagðist sérstaklega
vilja benda þeim sem ætla til London, og hafa ef til vill
komið þar nokkrum sinnum áður, og gist þá á hótel-
um í Oxford Street, á vinalegt gestahús í Maidenhead
26 km frá London, sem íslandsvinurinn Alan Dixon og
kona hans reka, en hann þekkja margir íslendingar.
Hjá Dixon er boðin ódýr gisting í „vinalegasta
gestahúsi Englands" eins og hann auglýsir þaö sjálf-
ur, og akstur á ódýru verði þurfi gesturinn að bregöa
sér inn í London og akstur til og frá Heathrow.
Gísli sagði einnig, að Dixon byði viðskiptamönnum
sérstaka þjónustu, með því að hafa milligöngu eða
aöstoða þá í viöskiptaerindum.
Frá
eynni
Korsíku