Frjáls verslun - 01.06.1979, Blaðsíða 27
Akureyri — iðnaðarbær. Eignarbaldsfyrirtæklnu bæri að taka upp
samvinnu við sveitarfélög um stofnun til nýs iðnrekstrar.
miðstöðvar iðnaðarins og stjórn-
arformaður Iðntæknistofnunar ís-
lands. Aðrir í nefndinni voru;
framkvæmdastjóri Rannsókna-
ráðs ríkisins, framkvæmdastjóri
Byggðadeildar Framkvæmda-
stofnunar ríkisins, formaður
Landssambands iðnverkafólks og
stjórnarformaður Framleiðslu-
samvinnufélags iðnaðarmanna.
Þess má einnig geta að þegar
hugmyndin var kynnt í ríkisstjórn-
inni í vor, þá var mjög vel undir
hana tekið.
Það er Ijóst, m.a. af því dæmi
sem sett er fram á öðrum stað í
greininni, um viðskipti Stálfélags-
ins við embættismannakerfið, að
nauðsynlegt er að endurskipu-
leggja frá grunni ákvörðunartöku-
ferilinn í íslenska embættis-
mannakerfinu hvað varðar fyrir-
greiðslu gagnvart íslenskum iön-
aði. í viðtali sem dagblað eitt átti
við Davíö Scheving Thorsteinsson
nýlega, kemur fram að skilningur á
þörfum íslensks iðnaöar er mestur
í því ráðuneyti, sem minnst völd
hefur í reynd, þ.e. Iðnaðarráðu-
neyti, þar sem iðnrekendur þurfa
venjulega að sækja fyrirgreiðslu
sína í hendur Fjármálaráðuneytis-
ins og Viðskiptaráðuneytisins. Þá
kemur einnig fram í þessu sama
viðtali, að á meðan stjórnkerfið,
þ.e. emþættismannakerfi, Alþingi
og ríkisstjórn, afgreiðir milljarða-
fyrirgreiöslu að kröfu hagsmuna-
samtaka í landbúnaði og sjávarút-
vegi, á örskömmum tíma, þá þurfa
iðnrekendur jafnan að bíða, svo
árum skipti, um fyrirgreiðslu sem
stundum nemur ekki nema örlitlu
broti af því sem fjármagnstilfærsla
til annarra atvinnugreina nemur.
Leitandi að stofnun
með slíkt vald
Spurningin hvort eignarhalds-
fyrirtækinu, ef á fót yrði sett, væri
fært of mikið vald í hendur er
spurningin sem vafalaust verður
glímt mest um, þar sem ekki er
hægt að búast við mikilli andstöðu
við hugmyndina sjálfa frá aöilum
iðnaðarins. Það er engum ofsög-
um sagt, að hér er verið að setja á
fót ráðuneytisígildi, ef ekki þá
hreint nýtt ráðuneyti, sem er fært
meira vald en gengur og gerist
meðal ráðuneyta í okkar stjórn-
kerfi. Eignarhaldsfyrirtækinu er
gert að vera ákvöröunaraðili, sem
þarf ekki að vera svo háóur, sam-
kvæmt hugmyndinni, stefnu og
vilja Alþingis, þó svo viðkomandi
ráðherra á hverjum tíma geti
markað fyrirtækinu ákveðna
stefnu. Eignarhaldsfyrirtækið mun
verða með sjálfstæðan fjárhag og
því ekki undir fjárhagslegu aöhaldi
Alþingis. Þannig er fyrirtækið
bæði ákvörðunar- og fram-
kvæmdaaðili. Eignarhaldsfyrir-
tækið á einnig að vera eins og
fram kemur í þeim markmiðum
sem sett voru fram hér að framan,
rannsóknaraðili, eftirlitsaðili með
ríkisfyrirtækjum og þjónustuaðili
gagnvart þeim. Hér er því fimm
stórbrotnum verkefnum safnað
saman í eina stofnun, verkefni sem
hvert um sig gefa tækifæri til
feiknalegra áhrifa. Það er leitandi
að stofnun í íslenska stjórnkerfinu,
sem safnað hefur um sig jafn miklu
valdi og gert er ráð fyrir að eignar-
haldsfyrirtækið hafi, samkvæmt
megin hugmyndinni um það. Það
ætti því að vera auðvelt að gera því
skóna að bardaginn um þetta
fyrirtæki muni vera háður á þess-
um vígvelli, þar sem togastt munu
á öfl, sem krefjast gerbreyttra
stjórnunar- og ákvörðunartökuað-
ferða í embættismannakerfinu og
öfl sem vilja vernda ítök og áhrif
Alþingis til ákvörðunar- og stefnu-
mótunar í þjóðfélaginu. Þá má
einnig geta þess að í hugmyndinni
að stofnun slíks fyrirtækis er ekki
gert ráð fyrir að hagsmunasamtök
í iönaði hafi nein ítök í stjórnun
fyrirtækisins, né sveitarfélög, en
eins og kemur fram hér að ofan þá
mun fyrirtækið eiga að hafa sam-
ráð við sveitarfélög um fjármögn-
un nýrra iðnaðartækifæra. Því má
setja fram þá spurningu í lokin,
hvort fulltrúar samtaka iönaðarins
og Byggðadeildar framkvæmda-
stofnunarinnar í samstarfsnefnd-
inni, hafi ekki verið full fljótir á sér
aö skrifa undir þessa hugmynd og
hvort þeir hafi skoðað hana niöur í
kjölinn, en hafa ber í huga að
hugmyndin er enn á hreinu
fósturstigi og kemur vafalaust til
með að breytast mikið í meðförum,
þegar um hana verður fjallaö af
fullri alvöru.
25