Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1979, Blaðsíða 73

Frjáls verslun - 01.06.1979, Blaðsíða 73
meö Colin og fær fyrsta laxinn. Hann hrópar upp, hvað hann eigi aö gera, þegar hann var búinn að landa fiskinum. Colin kallar til hans: Dreptu fiskinn. Hvernig segir þá útlendingurinn. Taktu stein og lemdu hann í hausinn, segir Colin, en þá segir útlending- urinn ákveðinn: ,,1’m not going to kill this beautiful fish with a dirty stone." Laxinn þæfir og það fylgja honum margir aðrir laxar — í Þverá hef ég orðið fyrir því að gráta yfir laxi, sagði Guðlaug- ur. — Ég var að veiða í Réttarhyl og það var óskaplega fallegt veður snemma morguns. Ég er að kasta flugunni, og stend við skúta. Ég sé fisk á eftir flugunni og verð heltek- inn löngun til að ná þessum fiski. Hann bítur á og ég fer að þreyta hann og næ honum inn í skútann. Fiskurinn dettur af, ég hendi stönginni frá mér og hendi mér á fiskinn, og þarna stóð bardagi milli mín og fisksins. Ég lamdi á laxin- um og gat að lokum drepið hann, en var orðinn blóðugur. Þegar ég stóð þarna á þessum fallega morgni, og hampaði fiskinum, þetta var falleg 12 punda hrygna, blóóugur eftir átökin gat ég ekki annað en grátið yfir þessari hrygnu, sem var komin alla þessa leið til að hrygna. — I annað skipti var ég að veiða í mjög frægum hyl, Rauðabergs- hyl. Ég var að kasta með flugu, og stór lax bítur strax á. Laxinn þæfir, þetta var efst í hylnum og ég sé, að það fylgja honum margir aðrir lax- ar, línan var langt úti og þeir reyna að synda á línuna til að hjálpa honum. Þá missti ég hann út úr hylnum, en laxarnir fylgja á eftir niður flúðirnar. Loksins þegar ég landa honum, sá ég aó hinir lax- arnir eru enn syndandi fram og aftur við bakkann. Þetta var þriðji laxinn, sem ég fékk, var 20 pund, hinir voru 19 og 18 pund. Ég hef aldrei fyrr né síðar lent í atviki eins og þessu, sagöi Guðlaugur. Erlendir laxveiðimenn teknir fram fyrir þá íslensku Guðlaugur Bergmann hafði ákveðnar skoðanir á ýmsum mál- efnum varðandi laxveiðar, m.a. á veiðum útlendinga í ám hér. — Ég er á móti þeirri afstöðu stangveiðimanna, sem vilja láta ríkið taka eignarrétt af bændum. Ég er á móti því að taka eigur af mönnum, þetta eru réttindi, sem þeir hafa átt mann fram af manni. Og hvað útlendingana varðar, mér finnst, að bændur ættu að vera þjóðlegri. íslenskir stangveiði- menn eru tryggari viöskiptavinir en útlendingarnir, það hefur þegar komið í Ijós af áratuga reynslu af veiðum útlendinga hér. Annað sem ég vildi segja, sagði Guölaugur Bergmann, — er að það á að ganga jafnt yfir íslenska sem útlenda laxveiðimenn. Það erum við sem höfum ræktað upp árnar. Útlendingarnir þurfa ekki að greiða sömu skatta og skyldur og við. Það er orðin hefð á mörgum stöðum að láta útlendingana sitja fyrir veiðileyfum á besta tíma, og þótt íslenskir laxveiðimenn vildu borga þaö sama, fengju þeir ekki veiðileyfið, sagði Guðlaugur Bergmann, forstjóri Karnabæjar að lokum. Verzlunin er flutt úr Hafnarstræti 22 í Hafnarstræti 5 — Tryggvagötumegin Getum nú boðið viðskiptavinum okkar enn betri þjónustú en áður í stærra og betra plássi. Hafnarstræti 5, sími 16760. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.