Frjáls verslun - 01.06.1979, Blaðsíða 33
neöst eru. Átök á vinnumarkaði
hafa einkennt efnahagsmál á
Ítalíu, Bretlandi og íslandi. Stjórnir
þessara landa hafa hvað eftir ann-
að reynt að koma á fastmótaðri
launastefnu, en þær tilraunir hafa
alltaf runnið út í sandinn.
í Austurríki og Noregi hefur
stefnan í efnahagsmálum verið
mynduð af samráði milli launþega,
vinnuveitenda og stjórnvalda. Þar
hafa kjarasamningar tryggt
stöðugleika efnahagslífsins,
gagnstætt því sem við þekkjum.
Norðmenn hafa að vísu í skjóli
olíunnar farið of geyst í hagvexti,
þannig að samkeppnisgeta þeirra
hefur versnað. En nú eru þeir á
góðri leið með að lækka kostnað
með samningum um tekjustefnu.
Útkoman úr samanburði sem
þessum veltur auðvitað á hvenær
hann er geröur. Sum landanna
eru á vendipunkti, eins og Svíþjóð,
Danmörk og Finnland, þar sem
hagvöxtur fer vaxandi. I öðrum
löndum eins og Bandaríkjunum
dregur úr hagvexti án þess að
verðbólga minnki. En hvenær sem
reynt er að gera slíkan samanburð
eru mestar líkur á því að „átaka-
löndin" sitji áfram á botninum með
lítinn hagvöxt og mikla verðbólgu.
Aöeins finnskir framkvæmdastjórar
fá lægri laun en íslenskir
Svo viröist sem íslenzk fram-
kvæmdastjóralaun séu með þeim
lægstu í heiminum. Samkvæmt því
sem Frjáls verzlun kemst næst eru
laun íslenzkra framkvæmdastjóra
fyrirtækja, sem velta allt að tveimur
milljörðum króna árlega um það bil
900 þúsund krónur á mánuði. Að-
eins finnskir forstjórar hafa lægri
laun, eða um 750 þúsund krónur.
Sviss, Vestur-Þýzkaland og
Belgía eru þau lönd þar sem fram-
kvæmdastjórar smáfyrirtækja bera
mest úr býtum, með meir en tvær
milljónir á mánuði. Að bandarískir
framkvæmdastjórar séu einnig
með þeim hæst launuöustu kemur
fæstum eflaust á óvart, en að
Danir, sem reyndar byggja afkomu
sýna að mestu á smáfyrirtækjum
meti framkvæmdastjóra smáfyrir-
tækja svo mikið, sem raun ber
vitni, vekur meiri athygli.
Ljóst er að íslenzkir fram-
kvæmdastjórar standa í lægra
þrepi launastigans en kollegar
þeirra í flestum öðrum löndum.
Ýmsar stéttir njóta hærri launa hér
á íslandi en framkvæmdastjórar,
s.s. stjórnmálamenn, tannlæknar,
læknar, flugmenn, margir verk-
fræöingar, arkitektar og iönaðar-
menn. Þá er ekki óalgengt í ís-
lenzkum fyrirtækjum að undir-
menn framkvæmdastjóra (sem
ekki fær greitt fyrir yfirvinnu) fari
með eftirvinnu yfir yfirmenn sína í
útborguðum launum.
Ein af röksemdum flugmanna
fyrir háum launum er að þeir séu
nokkurs konar framkvæmdastjór-
ar um borð í sinni flugvél. Þessi
launasamanburður virðist sýna að
þessi röksemd á ekki við, né held-
ur að raunhæft sé fyrir einstaka
stéttir að miða launakröfur við það
sem er erlendis.
Inn í þennan samanburð vantar
skattaáhrif og framfærslukostnað
en engin ástæða er til að ætla að
samanburðurinn breytist íslenzk-
um framkvæmdastjórum í hag þótt
slík atriði séu tekin inn í myndina.
Laun framkvæmdastjóra í fyrir-
tækjum með allt að 2 milljarða
króna veltu. Þúsundir kr.
Land á mánuði
Sviss 2.390
V-Þýzkaland 2.140
Belgía 2.110
Bandaríkin 1.830
Danmörk 1.710
Frakkland 1.550
Holland 1.490
Svíþjóð 1.430
Spánn 1.150
Noregur 1.090
Ítalía 1.055
Bretland 1.025
ísland 900
Finnland 750
áh
ÁHALDALEIGAN SF.
Tjarnarstíg 1, Seltjarnarnesi,
sími 13728.
Leigjum út verkfæri meðal annars:
• STEYPUHRÆRIVÉLAR
• VÉLSAGIR
• RAFSUÐUVÉLAR
• BORVÉLAR
• STIGA
• RAFSTÖÐVAR
• MÚRHAMRA
• HITABLÁSARA
• VÍBRATORA í STEYPU
• FRÆSARA
• FLÍSASKERARA
• SLÍPIVÉLAR
31