Frjáls verslun - 01.06.1979, Síða 29
’V"' f i
»r • • >5 -; 's
um á móti fjölda viðskiptamanna,
sem hingað koma. Árlega svörum
viö þúsundum bréfa um utanríkis-
viðskipti okkar, þar sem við veitum
upplýsingar og komum á við-
skiptasamböndum. Okkur skrifa
stór fyrirtæki og skólabörn og allt
þar á milli. Við höfum tekið þátt í
viðskiptaviðræðum viö aðrar
þjóðir. Verzlunarráðið er ábyrgð-
araðili vegna útgáfu ATA skírteina,
sem heimila tímabundinn innflutn-
ing á vöru án greiðslu aðflutn-
ingsgjalda t.d. vegna sýninga.
Einnig höfum við innheimt kröfur
fyrir okkar félagsmenn erlendis.
„Viljum örva utanríkisviðskiptin
og gera þau frjálsari"
— Við fylgjum fríverzlun, viljum
örva utanríkisviðskiptin og gera
þau frjálsari. Við höfum því verið
andvígir þeim nýju aðflutnings-
gjöldum og haftaaðgerðum, sem
gripið hefur verið til síðustu árin.
Okkur hefur fundizt ótækt, að
vernda innlendan atvinnurekstur
vegna óviðunandi starfsskilyrða.
Við viljum að starfsskilyrðin verði
jöfnuð og fríverzlun haldin í heiðri.
— Hjá Verzlunarráðinu er rekin
Upplýsingaskrifstofa, sem veitir
erlendum fyrirtækjum upplýsingar
um fjárhag og rekstur íslenzkra
fyrirtækja. Einnig getum við veitt
íslenzkum aðilum sams konar
upplýsingar um erlend fyrirtæki.
Við höldum skrá yfir öll skrásett
fyrirtæki, afsagða víxla, dóma og
uppboð í viðskiptamálum. Nú ný-
lega tókum við einnig upp telex-
þjónustu fyrir okkar félagsmenn.
— Verzlunarraöið rekur margs
konar erindi fyrir félagsmenn sína
gagnvart stjórnvöldum. Við reyn-
um aö veita þær upplýsingar og
þjónustu, er félagsmenn þarfnast.
Einkum eru það spurningar um lög
og reglugerðir og túlkun kjara-
samninga, sem koma upp. Þá
reynum við að vinna þeim fram-
faramálum, er upp koma, brautar-
gengi.
— Umsagnir um lagafrumvörp
er stór þáttur í starfsemi ráðsins. í
auknum mæli höfum við fariö út í
að undirbúa tillögur um lagafrum-
vörp. Árlega tekur fjöldi félags-
manna þátt í þessu starfi. Hagdeild
ráósins hefur tengzt þessu starfi,
en hún safnar upplýsingum um
efnahags- og atvinnumál og vinn-
ur þær spár, áætlanir og greinar-
gerðir, sem þörf er á í þeim málum,
er til meðferðar eru hverju sinni.
— Við gefum reglulega út
fréttabréf um viöskiptamál. Einnig
höldum við ráðstefnur og fundi,
þar sem við kynnum nýjungar í
viðskiptalífinu, fjöllum um mál,
sem eru efst á baugi eða horfa til
framfara fyrir atvinnulífið. Þann 25.
júní s.l. héldum við t.d. kynningar-
fund um áhrif verðbólgu á reikn-
ingsskil fyrirtækja. Viðskiptaþingin
eru þó umfangsmesti þátturinn í
þessu starfi.
„Hefðu átt að hlusta á atvinnulífið
og reynslu þess“
Verzlunarráð íslands hefur
haldið þrjú Viðskiptaþing. Það
fyrsta var haldið 1975, og fjallaði
um verðmyndun og samkeppni.
Annað Viðskiptaþingið var haldið
1977 og tók fyrir nýskipan ís-
lenzkra fjármála, sérstaklega
lánamálin og fjárfestinguna. Nú í
vor var síðan haldið Viðskiptaþing
í þriðja sinn, og fjallaði það að
þessu sinni um gjaldeyris- og
utanríkisviðskiptin.
— Rétt fyrir þinglok, sagði Árni,
voru samþykkt frá Alþingi ný lög
um gjaldeyris- og viðskiptamál án
þeirrar umfjöllunar, sem æskileg
hefði verið. Þarna var um að
ræða breytingar á 20 ára gömlum
lögum, breytingar, sem ýmsir em-
bættismenn vildu fá ígegn. Menn í
atvinnulífinu voru hins vegar lítið
spurðir um reynslu þeirra af
gömlu lögunum. Ef það hefði verið
gert, hefðum við getað stigið stórt
framfaraspor á þessu sviði.
— Niðurstaðan á þessu við-
skiptaþingi nú, sagði Árni, var sú
m.a., aö við gerðum drög að lögum
um gjaldeyris- og utanríkisvið-
skipti. Við viljum að gjaldeyris-
verzlunin verði gefin frjáls og út-
flutningurinn frjálsari en nú er.
Nýju lögin snerta ekki á þessum
atriöum. Gjaldeyrisverzlunin verð-
ur í engu frjálsari en verið hefur og
útflutningurinn verður áfram alfar-
ið háður leyfum. Það er ekki beint í
okkar anda að hefta útflutning frá
landinu.
„Satt að segja rótuðum við anzi
mikið upp í þessum málum“
En hver hefur árangurinn af
starfi Verzlunarráðs (slands verið,
og þá sérstaklega Vióskiptaþing-
anna? — Þegar við tókum fyrir
verðmyndun og samkeppni á Við-
skiptaþinginu 1975, sagði Árni,
fjölluðum við um, hvernig mál-
unum var fyrir komið, og hvernig
við vildum hafa þau. Satt að segja
rótuðum viö anzi mikið upp í
þessum málum. Við vorum þarna
að leggja til frjálsa verðmyndun
samfara ítarlegri samkeppnislög-
gjöf, sem var ætlað að tryggja
heiðarlega og heilbrigða við-
skiptahætti. I framhaldi af Við-
skiptaþinginu var sett á laggirnar
nefnd, sem útbjó tillögur um ný lög
27