Frjáls verslun - 01.06.1979, Qupperneq 55
næðismálastofnun nánast komist
algerlega hjá því að hafa afskipti af
tæknimálum byggingariðnaðar-
ins. Einstöku ölmusu hefur verið
slett í Iðnþróunarstofnun og
Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins til þess að styrkja
rannsóknir eða stöðlun. Um frum-
kvæði í rannsóknum eða tækni-
kynningu hefur ekki verið aö ræða
af hálfu stofnunarinnar.
Leiðbeiningar til almennings
varðandi byggingarmál hafa lítið
verið meiri en útgáfa smárits um
„Skipulagningu og áætlanagerö
við íbúðabyggingar" eftir Kjartan
Jóhannsson núverandi sjávarút-
vegsráðherra. Ritiö hefur meira
fræðilegt en praktískt gildi og
hjálpar hinum almenna húsbyggj-
anda lítið í erfiðri baráttu hans við
aó byggja yfir sig einstaka íbúð
eða hús. Ritið nýtist betur stærri
byggingaraðilum, og þá sem
fræöilegur bakgrunnur.
Húsnæðismálastofnun hefur
alls ekkert farið inn á þá braut að
setja tæknileg skilyrði fyrir lánveit-
ingum, sem aftur hefur haft í för
með sér að hversu lélegt, dýrt og
óhagkvæmt húsnæði sem menn
byggja, þá fá þó allir húsnæðis-
málalán út á bygginguna og sóa
þannig almanna fé. Slíkt við-
gengst ekki á Norðurlöndunum
eins og áður er getið.
Húsnæðismálastofnun starf-
rækir tæknistofu eins og lögin
gera ráð fyrir. Gallinn er þó sá, að
stofnunin hefur farið inn á þá braut
að fara út í beina samkeppni við
sjálfstæða hönnuði með því að
ráða til sín arkitekta og tækni-
menn, sem teikna týpuhús fyrir
stofnunina og selja teikningarnar
á mun lægra verði í samkeppni við
hinn frjálsa markað. Fyrir þetta
hefur stofnunin margoft verið
gagnrýnd.
Tæknideild Húsnæðismála-
stofnunar sinnir einkum tvenns
konar verkefnum. Annars vegar
rekur hún teiknistofu eins og áður
er sagt, en hins vegar annast hún
eftirlit með byggingarframkvæmd-
um, sem fyrst og fremst miðar að
því að fylgjast með því, hvort
byggingaraðilar reyni að svindla á
þeim stærðarreglum, sem í gildi
eru.
Telja verður, að Tæknideildin sé
meö þessu alfarið á rangri braut.
Markmið löggjafans um eflingu
tækniþróunar í iðngreininni nást
aldrei með þeim aðferðum, sem
Tæknideildin nú beitir.
Jafn bersýnilegt er, að væri vilji
fyrir hendi, gæti Húsnæðismála-
stofnun breytt starfsvettvangi
Tæknideildar þannig, að hlutverk
deildarinnar yrði í meira samræmi
við texta laganna.
Starfsvettvangi teiknistofu
mætti breyta þannig, að í stað
þess að teiknistofan teikni einstök
hús, þá taki hún saman rit eða
bækling meö yfirliti yfir allar fáan-
legar húsateikningar á hinum al-
menna markaði með grunnriss-
myndum, útlitsteikningum og
helstu upplýsingum um bygging-
arkostnað og gæði viðkomandi
húsnæðis.
Teiknistofan gæti einnig boðið
út lausnir á ýmsum almennum
vandamálum byggingariðnaðar-
ins. Svo sem því að finna hentug-
ustu yfirborösmeðhöndlun stein-
steyptra húsa, að finna hagkvæm-
ustu notkun einangrunar í íbúðar-
Spónaplötur - harðviður
Fleatur þykktir af spónaplötum eru nú fáanlegar í
nýju byggingavörudeildinni, auk allra algengustu
harðviðartegunda. Viðarspónn ímiklu úrvali. Vanti
þig timbttr til stníða í heimahúsi leysir bygginga-
vörtideildin vandann á fljótlegan og þagilegan hátt.
Byggingavörudeild
Jbn Loftsson hf
Hringbraut 121 Simi 10600
49