Frjáls verslun - 01.06.1979, Blaðsíða 62
Bifreiðaþjónustan í Borgarnesi gerir við bíla Borgnesinga, íbúa uppsveita héraðsins og ferða-
manna.
Stjörnuna frá því 1967 og er Bragi
verzlunarstjóri. Verzlunin Stjarnan
er í eigin húsnæði og sögðu þeir
félagar að eins og málefni verzl-
unarinnar hefðu þróast á síðustu
árum, væri ekki hægt að stofna
nýtt verzlunarfyrirtæki með til-
heyrandi húsbyggingu. Álagning
hefur verið minnkuö verulega á
sama tíma og reksturskostnaður
og fjármagnskostnaður hefur rok-
ið upp úr öllu valdi.
Hjá Stjörnunni er mikið vöruúr-
val, mest í húsgögnum og skóm.
Aðrár vörur eru leikföng, bús-
áhöld, gjafavörur, hljómplötur og
hljómflutningstæki.
Húsgögnin eru frá ýmsum fram-
leiðendum svo sem 3K, TM,
Sedrus, HM-húsgögn, Stáliðjunni
og Trésm. Víði. Fólk fer gjarnan til
Reykjavíkur til þess að skoða hús-
gögn en oft kemur fólkið aftur og
kaupir húsgögnin í Stjörnunni
vegna þess að verzlunin er með
mjög mikið úrval auk þess sem
flutningur húsgagna til Borgar-
ness er kaupendum aö kostn-
aöarlausu.
Bragi Jósafatsson sagöi aö nýja
Borgarfjarðarbrúin mundi án efa
auka verzlun hjá Borgnesingum
og nefndi í því sambandi að aukin
umferð þeirra sem dvelja yfir sum-
arið t.d. í Munaðarnesi eða
Svignaskarði, muni auka viðskipti í
Borgarnesi.
Bifreiðaþjónustan Borgarnesí
Hörður Jóhannsson hefur rekið
dekkjaverkstæði í Borgarnesi í 16
ár. Hann rekur nú smurstöð jafn-
hliða dekkjaviðgerðunum og leigir
aðstöðuna af Olíufélaginu hf.
Smurstöðin er ný og glæsileg
bygging, en húsnæði dekkjaverk-
stæðisins hafði Hörður byggt
sjálfur en seldi síðan Olíufélaginu
fyrir nokkrum árum.
Það er nóg að gera hjá Bifreiða-
þjónustunni, markaðurinn er
Borgarnes og uppsveitir auk tölu-
verðra viðgerða fyrir feröafólk.
Höröur sagði að sú þróun hefði
verið á undanförnum árum í verð-
lagsmálum verkstæða, að nú væri
ekki hægt að bjóða þá þjónustu
sem áður þótti sjálfsögð. Sem
dæmi nefndi Höröur að fólki fynd-
ist sjálfsagt að geta gengið aö
dekkjaverkstæði opnu á kvöldin
og um helgar, eins og reyndar
tíðkaðist fyrir nokkrum árum, en
núorðið væri það ekki hægt,
vegna þess aö enginn nætur-
vinnutaxti sé fyrir dekkjaviðgerðir
og því botnlaust tap af því að hafa
opið utan dagvinnutíma. Hörður
sagöist ekki vera í nokkrum vafa
um, að bíleigendur væru reiðu-
búnir að greiða fyrir þessa þjón-
ustu eðlilegt verð utan dagvinnu-
tíma í stað þess að fá hana ekki, en
þeir væru einfaldlega ekki spurðir
og þessvegna færi þjónustan viö
þá minnkandi. Starfsmenn Bif-
reiðaþjónustunnar í Borgarnesi
eru 4—6.
Iðnaður í Borgarnesi
Það er mikil gróska í iðnaði í
Borgarnesi. Fyrirtæki ganga þar
yfirleitt vel og eru í töluverðum
vexti. Hreppurinn hefur lagt
áherzlu á að hafa iönaðarlóðir til
reiðu og byggist fólksfjölgun í
kauptúninu að öllu leyti á nýráðn-
ingum í iðnaöi. Verktakastarfsemi
er mikil í Borgarnesi. Loftorka sf er
meö umfangsmikla starfsemi sem
felst í rekstri steypustöðvar, fram-
leiðslu á steyptum rörum og milli-
veggjaplötum, auk þess sem fyrir-
tækið leigir út vinnuvélar og flutn-
ingatæki. Framkvæmdastjóri Loft-
orku sf. er Konráð Andrésson.
Starfsfólk hjá Loftorku sf. er 17
manns. Borgarverk hf. er annað
verktakafyrirtæki en því stjórnar
Sigvaldi Arason og vinna við fyrir-
tækið 8—12 manns. Borgarverk
hf. leigir út vinnuvélar, Bröyt gröf-
56