Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1979, Side 69

Frjáls verslun - 01.06.1979, Side 69
Um 30 ráðstefnur á Hótel Loftleiðum í sumar Stærsti hluti ráðstefnugesta, sem hingað koma eru Norðurlandabúar. Töluvert fleiri ráðstefnur í ár, en síðasta ár. Emil Guðmundsson og Kristín Norðmanm starfa við undirbúning ráð- stefnanna. Um 30 ráðstefnur verða haldnar á Hótel Loftleiðum í vor og sumar, en það eru töluvert fleiri ráðstefn- ur en verið hafa undanfarin ár. Á næsta ári hafa verið bókaðar 19 ráðstefnur á Hótel Loftleiðum, þrjár ráðstefnur 1981 og ein á ár- inu 1982. Flestar ráðstefnurnar, sem haldnar verða hér í sumar eru norrænar, en einnig verða nokkr- ar ráðstefnur með þátttöku breskra aðila, þ.á.m. hélt ICI, eitt stærsta lyfjaframleiðslufyrirtæki heims, ráðstefnu í lok maí og byrjun júní, og er það í fimmta skipti sem breska deild þessa risafyrirtækis heldur ráðstefnu á hótel Loftieiðum. Þátttakendur á þessari ráð- stefnu, sem fjallaði um háþrýsting, þ.e. háan blóðþrýsting, voru aðal- lega ungir hjartasérfræðingar um 95 þátttakendur, og var einn fyrir- lesara á ráðstefnunni hinn heims- frægi hjartasérfræðingur Mr. Mal- oney. Stærsta ráðstefnan sem haldin verður á Hótel Loftleiðum á þessu ári var í maí en það var norræn sálfræðiráðstefna. Þátttakendur í þeirri ráðstefnu voru 315. Stærsti hluti ráðstefnugesta sem koma til landsins eru Norður- landabúar. Af hálfu Hótel Loftleiða hefur Emil Guömundsson, aðstoðarhót- elstjóri, séð um allt skipulag fyrir ráðstefnurnar, sem snýr að hótel- inu, en honum til aðstoðar er Kristín Norðmann. Af hálfu mark- aðsdeildar Flugleiöa hefur Helga Bjarnason séð um ýmsan undir- búning í tengslum við ráðstefn- urnar m.a. prentun gagna sem til þarf fyrir slíkar ráðstefnur, afþrey- ingu fyrir ráðstefnugesti þ.á.m. skoðunarferðir og fleira. Emil Guðmundsson hefur kynnt sér sérstaklega skipulagningu ráðstefnuhalds erlendis og hefur hann haldið námskeið í, hvernig halda eigi ráðstefnur. Hafa þessi námskeið verið fyrir starfsfólk ið í gestamóttöku og veitingadeild Hótel Loftleiða og Samband veit- inga- og gistihúsaeigenda. Grein sú er birtist í síðasta tölublaði Frjálsrar verzlunar um undirbún- ing ráðstefnu með alþjóðlegri þátttöku var einmitt úr þessum námskeiðum Emils. Frá því að hóteliö var opnað fyrir 13 árum hafa verið haldnar þar ráðstefnur. Eftir að byggt var við hótelið og ný álma tekin í notkun 1971 jókst ráðstefnuhald á hótel- inu mikið. Á Hótel Loftleiðum eru 13 salir, litlir og stórir, sem notaðir eru til ráðstefnuhalds. Öll aðstaða til ráðstefna á hótelinu er mjög góð. Þar er m.a. prentsmiðja, þýð- ingarkerfi og öll þau tæki er til þarf til að halda ráðstefnu. ísland er vaxandi ráðstefnuland. Hingað hafa aðallega komið gestir frá Norðurlöndunum og Bretlandi til ráðstefnuhalda eins og komið hefur fram. Ýmis samtök á Norð- urlöndum hafa haldið ráðstefnur oftar en einu sinni hér á landi. Norrænir skurðlæknar hafa t.d. haldið ráðstefnur tvisvar sinnum að Hótel Loftleiöum og hafa bókað þriðju ráðstefnuna á hótelinu 1981. Emil sagöi, að í mörgum til- vikum tækju Norðurlandabúarnir. með sér fjölskyldur sínar til (s- 61

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.