Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1979, Síða 74

Frjáls verslun - 01.06.1979, Síða 74
ti/ umrædu Póstur og sími — ríki í ríkinu Hinn reglubundni fagnaðarboðskap- ur Pósts og síma hefur nýlega verið birt- ur þjóðinni. Enn ein hækkun á afnota- gjöldum síma og póstburðargjöldum í anda verðstöðvunar og aðhalds vegna viðureignar við verðbólguófreskjuna! Það er merkilegt hvernig þessi tiltekna ríkisstofnun hefur æ ofan í æ gengið á undan með kröfur um mjög umdeilan- legar hækkanir á þjónustugjöldum sín- um þvert ofan í allar yfirlýsingar ríkis- stjórnar um hemil á verðlagsþróunina. En Pósti og síma hefur tekizt þetta einu sinni enn og kemur það kannski fáum á óvart, sem á annað borð hafa fylgzt með því hvernig þessi stofnun hefur hagað sér um áratugaskeið eins og ríki í ríkinu. Hún hefur farið sínu fram, hvað sem Alþingi og ráðherrar hafa annars viljað meina um álögupólitík opinberra stofnana. Útgáfufyrirtæki þessa blaðs hefur ekki farið varhluta af íþyngingarað- gerðum Pósts og síma. Þær koma af- skaplega þungt niður á einstaklingum og ekki síður fyrirtækjum, sem þurfa nauð- beygð að eiga áframhaldandi viðskipti við þetta ríkiseinokunarfyrirtæki og taka óviðbúin á sig útgjaldaaukningar er skipta verulegu máli fyrir afkomu þeirra. Það er fróðlegt að rifja upp breytingar á burðargjöldum Pósts og síma vegna dreifingar tímarita síðustu 16 mánuðina. í febrúar 1978 kostaði 40 kr. að senda hvert eintak af tízkublaðinu Líf til áskrifenda. Um áramótin síðustu var gjaldið hækkað í 60 kr. Þann 1. marz sl. varð hækkun enn á ný. Þá í 90 kr. Og núna 1. júní kostaði það 108 kr. að senda hvert eintak þessa vinsæla tízkublaðs til kaupenda. Þetta er ískyggileg þróun, reyndar glæfraleg. Nú má geta þess að fyrirhöfn Pósts og síma vegna þessarar dreifingar er sáralítil. Blöðin hafa verið flokkuð eftir póstnúmerum hjá útgefanda sjálf- um og afhent póstinum þannig. Með þessu síðasta skrefi gengur Póst- ur og sími of langt. í ljós kemur að stór hluti dreifingar tízkublaðsins, á höfuð- borgarsvæðinu, verður ódýrari og hag- kvæmari með aðstoð blaðburðarfólks. Þannig hefur stofnunin gengið of langt í verðlagningu, misst af viðskiptum og skapað grundvöll fyrir sjálfstætt blað- dreifingarfyrirtæki, sem tæki að sér dreifingu fyrir ýmsa útgáfuaðila. Hækkanagleðin hjá Pósti og síma er grunsamleg. Hún er komin út í öfgar og ástæða er fyrir stjórnvöld að bregða smásjánni yfir starfsemi stofnunarinnar. Það er líka fjári hart að ráðherra menntamála, sem að auki fer með sam- göngumál í ríkisstjórninni, skuli leggja blessun sína yfir að hækkunarpostular Pósts og síma bregði þannig fæti fyrir innlenda tímaritaútgáfu á sama tíma og erlend blöð af ýmsu tagi, að langmestu leyti fjármögnuð með áfengis- og tó- baksauglýsingum, ná stöðugt betri fót- festu á íslenzkum blaðamarkaði. 66

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.