Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Qupperneq 10

Frjáls verslun - 01.11.1979, Qupperneq 10
STIKLAD Á STORU... Úrvinnsla íslensku ullarinnar Taliö er aö um 4000 bændur framleiði ull. Þessi ull er þvegin í þremur ullarþvottastöðvum og spunnin í tveimur spunaverksmiðj- um, auk þess sem nokkurt magn er flutt úr landi. Áætlað vinnuafl í ullarþvotti, spuna, vefnaði og prjónavöruframleiðslu var 710 árs- verk 1977, auk 980 ársverka í fata- gerð. Erfitt er að áætla ársverka- fjölda í útflutningi, en giskað er á, að hann hafi verið 6—7 hundruð á árinu 1977. Um 30 prjóna- og saumastofur framleiða ullarvörur til útflutnings og um 1500 konur prjóna í höndunum fyrir útflutn- ingsaðila, sem alls eru 15—20. Prjóna- og saumastofur dreifast vítt um landið. Flestar eru þó á Suövesturlandi og fæstar á Vest- fjörðum. Útflutningur á osti Ostaútflutningur hefur orðið töluverður nú í ár, en um 450 lestir af Óðalsosti hafa verið seldar á Bandarikjamarkað, og útflutningur af öðrum ostum nemur um 1700 lestum. Heildarútflutningur af ost- um það sem af er árinu er því farinn að nálgast 2200 lestir, og þar af hafa 1940 lestir farið til Bandaríkj- anna. Hins vegar er búizt við, að innflutningshömlur á ostum til Bandaríkjanna verði strangari á næsta ári, þannig að islendingar fái aðeins rúmlega 600 lesta kvóta þangað, það er fyrir 300 lestir af Óðalsosti og 315 lestir af venjuleg- um mjólkurosti. Til þessa hefur innflutningsheimildin náð yfir 315 lestir af mjólkurosti, auk þess sem hægt hefur verið að flytja inn Óðalsost án takmarkana, og líka hefur verið hægt að færa til og nýta heimildir sem önnur lönd áttu. Það hefur verið unnið að því að reyna að fá þessar heimildir rýmkaðar, en án árangurs til þessa. Ef það tekst ekki, þá mun það hafa mjög alvar- legar afleiöingar fyrir mjólkuriðn- aðinn í landinu, því að verðlag á ostum í Bandaríkjunum er mun hagstæðara heldur en þaö sem fá- anlegt er á öðrum mörkuðum. Utlánaþak Almenn útlán, eða þaklán við- skiptabanka og sparisjóða höfðu i ágústlok aukist um 46,4% frá ára- mótum, en aukningin yfir árið allt er oft lík aukningunni til ágústloka. I september var enn sérstaklega mikil aukning eða upp i 55,3% frá áramótum. I Ijósi þeirra viðhorfa, er þannig höföu skapast, fóru fram viðræður milli Seðlabankans og viðskiptabanka og sparisjóða. Varð að samkomulagi aö innlánsstofn- anirnar tækju sér fyrir hendur að koma aukningu þaklána yfir árið niður í 42%. Með hliðsjón af þvi má áætla, að aukning peningamagns muni verða um 40% frá upphafi til loka ársins. Viðskiptabankar og sparisjóðir þurfa að draga verulega úr útlánum til þess aö ná hinu nýja marki, eða úr 55,3% aukningu til september- loka í 42% aukningu yfir árið í heild. Þannig svarar nauðsynlegur sam- dráttur yfir mánuðina október-de- sember til 13,3% af almennum út- lánum án endurkaupa í upphafi ársins. Þess má ennfremur geta í þessu sambandi, að lausafjárstaða innlánsstofnana við Seðlabankann hefur versnað mjög, þaö sem af er árinu, og var komin niður í -r-9,2 milljaróa króna í septemberlok. Er það 6,4 milljörðum króna lakari staóa en á sama tíma í fyrra. Freðfiskur til Bretlands Eins og mönnum mun kunnugt er tiltölulega skammt síðan freðfisk- sölur til Bretlands hófust aftur eftir nokkurt hlé. Fyrstu níu mánuði þessa árs seldi Sjávarafurðadeild Sambandsins 1820 lestir af frystum bolfiski til Bretlands, á móti 1155 lestum sama tímabil á síðasta ári, sem samsvarar 58% aukningu. Þýðingarmesta tegundin, sem seld er á þessum markaði, eru þorskflök með roði. Markaðurinn er nokkuð sveiflukenndur, að jafnaði daufur að vori og sumri, þegar mikið berst á land af ferskum fiski, en lifnar svo og er beztur á haustin og fyrri hluta vetrar. Á þessu ári hefur Sjávaraf- urðadeild nokkrum sinnum sett fisk í geymslu í Bretlandi, bæði til þess að eiga fyrirliggjandi birgðir í sölu-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.