Frjáls verslun - 01.11.1979, Blaðsíða 29
ekki heyrt um gjaldþrot íslands-
banka1931?
Að öðru leyti tel ég að nauðsyn-
legt sé að halda uppi reglubundnu
eftirliti með innlánsstofnunum. Ég
tel að reynslan hafi sýnt það þó ég
eigi erfitt með að skýra það út með
því að fara út í einstök atriði.
Á það má benda að í frumvörp-
um til laga um banka og sparisjóði,
sem hafa verið samin og sum lögð
fram og verða væntanlega lögð
fram aftur á næsta Alþingi, er síður
en svo ætlunin að leggja niður
bankaeftirlitið. í þeim frumvörpum
er gert ráð fyrir afskiptum banka-
eftirlitsins af fjölmörgum einstök-
um rekstrar- og öryggisþáttum
þeirra stofnana auk almennra
ákvæða um eftirlit."
„Ætti að vera óháð
Seðlabankanum.“
Er nauðsynlegt að bankaeftirlit-
ið sé deild innan Seðlabankans?
,,Nei, það er ekki nauðsynlegt.
Það mætti færa rök fyrir því að
annað fyrirkomulag væri heppi-
legra. Ég er persónulega á þeirri
skoðun að eftirlitið ætti að vera
óháð öllum peningastofnunum
þar með talið núverandi skipulagi.
Ég er einnig þeirrar skoðunar að
starfsemi bankaeftirlitsins þurfi að
taka til endurskoðunar þannig að
heimildir þess og skyldur verði
ákveðnar skýrar. Slíkt er heppilegt
að gera nú jafnhliða endurskoðun
á lögum um banka og sparisjóði."
Eftirlit með reiknistofu
bankanna
Hefur bankaeftirlitið með hönd-
um einhver önnur verkefni en þú
hefur þegar greint frá?
,,Eftirlitsaóilarnir eru í dag 84
talsins (útibú banka og sparisjóða
ekki meðtalin). Auk þess má nefna
að með tilkomu Reiknistofu bank-
anna hefur eftirlit með þeirri
stofnun verið framkvæmt af
bankaeftirlitinu. Reiknistofan er
liður í bókhaldskerfi bankanna og
sparisjóðanna og háð eftirliti á
sömu forsendum og þær stofn-
anir. Þar með hefur eftirlitsskyldan
færst inn á tiltölulega nýtt svið sem
er tölvuvinnsla, skipulag tölvu-
bókhalds og eftirlit með öryggi
þeirra kerfa sem í slíkri vinnslu eru
fólgin.
Bankaeftirlitið hefur með inn-
heimtu á bindiskyldu innláns-
stofnana að gera, en bindingar-
hlutfallið er nú 28% af heildarinn-
stæðum. Auk þess hefur deildin
með að gera útibúamál, aðild að
gjaldskrármálum o.fl. verkefni sem
of langt yrði upp að telja ''
Menn eiga að kvarta
Hvað með samskipti við ein-
staklinga í viðskiptum við inn-
lánsstofnanir?
,,Það hefur færst í vöxt á und-
anförnum árum, að einstaklingar
og fyrirtæki hafi snúið sér til
bankaeftirlitsins með ýmsar fyrir-
spurnir og jafnvel kvartanir vegna
viðskipta við innlánsstofnanir. Við
sinnum ekki slíkum kvörtunum
nema þær komi til okkar skriflega.
Menn hætta gjarnan við þegar þeir
heyra það að þeir þurfi að kvarta
skriflega, því menn vilja ógjarnan
spilla fyrir sér um áframhaldandi
viðskipti. Ég tel slíka hræðslu
óþarfa, því ef kvörtun á rétt á sér
eru innlánsstofnanir tilbúnar að
leiðrétta hugsanleg mistök.
STOLT MÚLALUNDAR
OG SÓMI HVERRAR SKRIFSTOFU
«flla
mulalundur ARMÚLA 34 105 REYKJAVlK SlMI 38400
BRÉFABINDI
★ Sterk og hatidhceg
★ Standa óstudd
★ Spara 20% hillurýnti
★ Bjartir litir
★ Skemtna ekki hillur
★ Verðið hagstœtt
Ný höntiun sem stenst fyllilega ströngustu
kröfur vandlátra
29