Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Side 34

Frjáls verslun - 01.11.1979, Side 34
actutan Noregur er mikiö land — miklu stærri, eða öllu heldur lengri, en mann rennur grun í fljótt á litið. Sé landabréfið skoðað grannt verður víst ekki um villzt. Fjarlægðirnar innan Noregs eru geysilegar og umhverfi og lífsskilyrði öll mjög ólík eftir því hvort búið er syðzt í landinu eða nyrzt. Enda varla við öðru að búast þegar þess er gætt að vegalengdin frá Líðandisnesi, syðsta odda Noregs, norður til Nord Kap er jafnmikil og frá Líðandisnesi suður til Rómaborgar. Og það hljómar kannski undarlega í eyrum að austustu svæði Noregs, við landamæri Sovétríkjanna í norðri liggja jafnaustarlega og Istanbul eða Kairó. En satt engu að síður. Við hér á íslandi gerum okkur almennt ekki hug- myndir um Noreg sem herveldi. Miðað við vígbúnað stórþjóðanna og annarra smærri sem af brýnum öryggisástæðum eða metnaðargirnd valdhafa standa gráar fyrir járnum, verður Noregur ekki talinn meðal helztu víghreiðra heimsins. En það er ástæðulaust að vanmeta hernaðarmátt þessa nágranna og frænd- þjóðar. Við íslendingar höfum tilhneigingu til að setja norskt þjóðlíf í samband við eitthvað allt annað en hernaðarviðbúnað. Skrúögöngur á þjóðhátíðardag- inn 17. maí, fiskirí við Lofot og Jan Mayen, olía eða sællegar og bústnar sveitastúlkur í þjóðbúningum og hljómar Harðangursfiðlunnar standa nær sem ímynd Noregs heldur en hljóðfráar Starfighter-orrustuþotur eða skröltandi skriðdrekar. Norskur samtími er þó blanda af þessu öllu og þar kemur að sjálfsögðu miklu fleira til. Með „Hálfdáni svarta" norður á bóginn Llti á Fornebu-flugvelli við Osló skynjar maður strax Norður-Noregur: Þar er norski herinn í viðbragðsstöðu — en menn skála líka fyrir friði og vináttu á landa mærunum við Sovét 34

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.