Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Side 36

Frjáls verslun - 01.11.1979, Side 36
ættmennis ásamt símanúmeri. Svona formsatriði eru ekkert afskaplega uppörvandi fyrir flugferðir og þaðan af síður skilmálar hersins um tjónabætur. En svona lagað lætur fólk ekki á sig fá enda er ferðazt ókeypis í þessu leiguflugi hersins til Bergen, Bardufoss, Lakselv og Kirkenes næst landamærum Sovétríkjanna. Af brottfarartöflunni í biðsalnum má lesa að norski herinn heldur uppi reglubundnu áætl- unarflugi með sitt fólk á degi hverjum milli stöðvanna syðst í landi eins og Sola við Stafangur og norðlægu herbækistöðvanna í Bardufoss og Kirkenes. Þetta flug fer fram með leiguvélum af gerðinni Boeing 737 frá Braathen eða DC-9 frá SAS og ennfremur Fokker-Friendshipvélum frá leigufélaginu Air Executive. Næstum fullhlaðinn heldur ,,Hálfdán svarti", ein af Boeingvélum Braathens, frá Osló til Bergen. Sumir samferðamennirnir frá Osló fara af en enn fleiri koma í staðinn. Það mátti halda að þarna kæmi hvert handboltaliðið af öðru um borð. Menn um tvítugt voru mest áberandi, ungir hermenn að koma úr leyfi úr ..siðmenningunni" suður í landi en drífa sig nú að nýju í herbúðirnar langt fyrir norðan heimsskauts- baug þar sem aldimmt er þegar orðið um hálfþrjú- leytið á daginn og nóttin á eftir að verða miklu lengri þegar kemur fram á veturinn. „Hálfdán svarti" þræðir strandlengju Noregs til norðurs, framhjá Bodö og Narvik og dembir sér síöan niður í fjallaskörð og þrönga dali í aðflugi að her- flugvellinum í Bardufoss. Herstööin Bardufoss Þotugnýr ætlaöi alla að æra þegar stigið var út úr flugvélinni. Tvær orrustuþotur voru í lágflugi yfir flugvallarsvæðinu og þeystu síöan í átt til snævi þak- inna fjallstinda sem voru rétt að hverfa í húminu. Samferðafólk okkar í flugvélinni átti flest áfangastaö hér en för okkar var heitið lengra norður, — alla leið til Kirkenes. Smábið varð á því að Fokker Friendship-- vélin, sem flytja átti okkur þangað gæti haldið ferðinni áfram, því að hún var í selflutningum milli herstöðva í nágrenninu. Á meðan beðið var í Bardufoss gafst okkur tækifæri til að litast dálítið um í þessum norð- lægu herbúðum. Og þaö fór ekkert á milli mála, þetta var raunveruleg herbækistöð. Hermenn voru hvar- vetna á verði við byggingar á flugvellinum og tilsýndar mátti greina stórar, rammgerðar járnhurðir á kletta- veggjum handan flugbrautarinnar. Þar inni leynast orrustuþotur Norðmanna. Alls á norski flugherinn 115 flugvélar, þar af nærri 50 Starfighter-orrustuvélar, smíðaóar í Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir dyrum stendur aö endurnýja flugflotann aö verulegu leyti og hafa Norðmenn pantað 72 orrustuþotur af gerðinni F-16, sem nokkur NATO-lönd ákváðu að kaupa í Bandaríkjunum. í flota könnunarvéla, sem Norðmenn hafa til eftirlits m.a. á hafsvæðinu fyrir norðan og vestan Noreg eru fimm skrúfuþotur af gerðinni Orion, eins og þær sem bandaríska varnarliðið á Keflavíkurflugvelli notar til kafbátaleitar. Fyrirhugaö er að hinar háþróuðu eftir- lits- og könnunarflugvélar Bandaríkjahers, sem nefndar hafa verið AWACS og hafa bækistöð hér á Keflavíkurflugvelli, verði í auknum mæli notaðar í námunda við Noreg og munu þá fá aöstööu í her- stöðinni á Andöya til að taka eldsneyti og vegna við- halds. Það er víðar en í Bardufoss, sem Norðmenn hafa grafið út fjöll og kletta sem skýli fyrir hernaðartæki sín. Suður í landi eru heilar skipaviögerðastöðvar inni í fjöllum við ströndina og lægi fyrir þá 15 kafbáta, sem norski sjóherinn ræður yfir, eru þannig gerð. Birgða- stöðvar og hersjúkrahús eru sömuleiðis falin á þenn- an hátt undir yfirborði jarðar. Vígbúnaðurinn á Kola-skaga Norðmenn eru staðráðnir í að verja land sitt, ef til ófriðar dregur og njóta til þess tilstyrks annarra herja Atlantshafsbandalagsins. Öll skipulagning norska hersins ber það með sér að honum er ætlað að verjast en ekki sækja fram til árása á önnur ríki. Hnattstaða Noregs, milli risaveldanna, gerir þaö að verkum að landið gegnir mjög þýðingarmiklu hlutverki í sam- eiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins, þar sem það liggur að Sovétríkjunum skammt frá stærsta vopnabúri þeirra, — á Kola-skaganum — og viö út- siglingarleið Norðurflota Sovétríkjanna á Barentshaf og suður um Atlantshaf. Á síðustu árum hefur farið fram feiknaleg uþp- bygging hernaðarmáttar Sovétríkjanna á þessum norðlægu slóðum. Talið er að 70% allra sovézkra kafbáta, sem búnir eru kjarnorkueldflaugum fyrir mismunandi miklar vegalengdir, allsum 170skip, hafi bækistöövar á Kola-skaga. Á sömu slóðum eru heimahafnir 60 stórra herskipa, flugbækistöðvar fyrir u.þ.b. 320 flugvélar, 80 þyrlur og í kringum 50 flutn- ingaflugvélar, sem tilheyra Norðurflotanum. Til við- bótar þessu koma svo sveitir landgönguliða, búnar öllum nýtízku vopnabúnaði. Mannafli Norðurflotans er áætlaður um 220 þúsund manns og á heimaslóö- um hans eru skipasmíðastöðvar og skipaverkstæði. Á síöari árum hefur veriö fylgzt með hluta Norður- flotans að æfingum allan ársins hring á hafsvæðinu undan Kola-skaganum. Jafnan eru allmörg herskip og tugir kafbáta úr Norðurflotanum á hafinu fyrir vestan Noreg. Orion-könnunarvélar norska hersins fara næstum daglega í eftirlitsferðir yfir Noregshaf, út á svæðið milli íslands, Færeyja og Skotlands eða umhverfis Jan Mayen. í þessu eftirlitsstarfi gegna könnunarvélar bandaríska flotans á Keflavíkurflug- velli einnig lykilhlutverki þannig að norskum kynn- ingarritum um skipulag varna á N-Atlantshafi er það sagt hafa afgerandi þýðingu í þessari heildarmynd. í Ijósi hraðvaxandi hernaðarstarfsemi Sovét- manna á norðurslóðum, við norðurmörk bandalags- svæðis NATO , gefur auga leið að Norðmenn hljóta að leggja megináherzlu á varnarmátt sinn í Norður— Noregi. Stærsti hluti fastahers Norðmanna hefur bækistöðvar þar. Um er að ræða 450 manna stór- skotaliðssveit, sem staðsett er í Suður-Varangri, við landamæri Sovétríkjanna, 1000 manna liö í Porsang- er og 5000 manna meginher í nokkrum bækistöðvum í Bardufoss og fleiri herstöðvum í Troms. Það er stefna Norðmanna að forðast spennu í landamæra- 36

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.