Frjáls verslun - 01.11.1979, Qupperneq 46
Sérhæfing erfið
á fréttastofu
Mjög er misjafnt hvernig ýmsum þjóðfélagsþáttum
er sinnt. Það fer meöal annars eftir áhugamálum
fréttamanna og þekkingu á hverjum tíma. Sérhæfing
er mjög erfið, þar sem unnin er óregluleg vaktavinna,
eins og óhjákvæmilegt er, þegar dreifa þarf tíu
mönnum yfir tímabilið frá sex á morgnana til mið-
nættis, nær alla daga ársins. Til viðbótar þeim eru
fréttastjóri og varafréttastjóri. Þá eru auk þess tvö
svið, þar sem sérhæfing er fyrir hendi. Sérstakur
þingfréttaritari er við fréttastofuna að vetrinum og
íþróttafréttaritari allt árið.
Fréttamönnum er ábyrgð sín Ijós og engin ástæða
til að draga úr henni. Hlustendum er aftur á móti ekki
eins Ijóst við hvaða vandamál er að stríða. Þau eru
flest í eðli sínu þau sömu og blaðamenn hafa við að
stríða, að viðbættu því að fréttamenn verða að vinna á
miklum hraða, þegar fréttatímar nálgast. En að auki
búum við í glerhúsi, þar sem hlustendum finnst, með
nokkrum rétti, að við séum þeirra starfsmenn, með
öðrum hætti en hugsað er um starfsmenn dagblaða.
Látið fagmenn sjá
um ferðina
— Hvort sem þér ætlið í vetrarfrí
eða viðskiptaferð
Útsýn hefur á að skipa sérþjálfuðu kunn-
áttufólki
LONDON
Vikuferðir
7 nætur á einu eftirsóttasta hóteli Lundúna,
Cumberland viö Oxfordstræti. Bezta stað-
setning með tilliti til veitinga, verzlana, og
skemmtistaða. Einnig Clouchester Hotel,
Russel Hotel og Regent Palace.
VERÐ FRÁ KR. 168.500.
Vörusýningar — einstaklingsferðir
ÚTSÝN leggur heiminn að fótum þér.
[ v : •
'i'jf ifim sm
LONDON
5 daga helgarferðir
Fimmtudagur til þriðjudags. Verð með gist-
ingu á þekktu hóteli í hjarta borgarinnar,
enskur morgunverður og flugvallarskattur.
VERÐ FRÁ KR. 145.800.
Helgarferðir til
GLASGOW
Brottför: 9., 23. og 30. nóv. og 7. des. Hótel
Ingram. Verð frá kr. 110.200.—
London
Hinar sívinsælu Útsýnarferðir nú fáan-
legar tvisvar í viku á lækkuðum far-
gjöldum.
Austurstræti 17,
II. hæð,
sími26611.