Frjáls verslun - 01.11.1979, Síða 49
þáttur í starfseminni og árið 1932
fékk Fálkinn umboð fyrir „Necchi”
saumavélar og eru það einar mest
seldu saumavélar á íslandi síðustu
áratugi. Sem dæmi um það má
nefna að árið 1947 seldust hvorki
fleiri né færri en 2000 Necchi—
saumavélar hérlendis.
Árið 1928 fékk Fálkinn umboð
fyrir Dodge bifreiðar og á næstu 4
árum voru fluttar inn u.þ.b. 80 bif-
reiðar þeirrar tegundar, en þá tók
einkasala ríkisins á bifreiðum við.
I byrjun stríðsins hófst síðan
reiðhjólaframleiðsla Fálkans, en
þá hafði að mestu verið tekið fyrir
innflutning til landsins. Þessi
framleiðsla stóð yfir stríðs- og
haftatímabilið, allt til ársins 1954,
en þá opnaðist aftur innflutningur
til landsins. Á þessum 14 árum
voru framleidd um 18000 reiðhjól
undir merki Fálkans.
Árið 1948 var rekstrarformi
fyrirtækisins breytt í hlutafélag en
fram að þeim tíma haföi það verið
einstaklingsfyrirtæki í eigu Ólafs
Magnússonar. Um þetta leyti voru
starfsmenn fyrirtækisins um 20
talsins og sama ár flutti fyrirtækið í
nýtt húsnæði, aó Laugavegi 24, en
á þeirri lóð hafði starfsemi Fálkans
veriö, allt frá árinu 1910.
Véladeild Fálkans var stofnuð
árið 1956 og í dag er þar að finna
landsins mesta úrval af legum,
reimum, hjöruliöskrossum og ás-
þéttum, í allar gerðir véla og farar-
tækja.
Á 7. áratugnum efldist fyrirtækið
mjög og jókst starfsemin til muna.
Þrengsli í húsnæðinu á Lauga-
veginum stóöu fyrirtækinu mjög
fyrir þrifum og því var ráðist í
byggingu nýs húsnæðis við
Suðurlandsbrautina og þar fer nú
öll starfsemi fyrirtækisins fram,
sem áður segir.
Fleimilistækjadeild Fálkans var
stofnuð árið 1971 en þá hafði
fyrirtækið fengið umboð fyrir hin
heimsfrægu Hoover heimilistæki.
Síðan hafa margar gerðir heimilis-
tækja bætzt í hópinn auk hljóm-
flutningstækja.
Fjórar deildir
Reiðhjóladeild selur auk reið-
hjóla, barnavagna og -kerrur, auk
skyldra vara og nýlega hefur í
þessari deild verið tekin upp sala á
rafmagnshandverkfærum.
Hljómplötudeild hefur s.l. 3—4
ár veriö söluhæsta deild Fálkans.
Verslun Fálkans á stríðsárunum, en þá var mlklð selt af hljómplötum.
Amerísklr hermenn vlrða fyrlr sér nýjar hljómplötur árlð 1941. Vlð
afgrelðsluna er Haraldur V. Ólafsson.
Vlð relðhjólaframlelðslu árlð 1951.
Verslun Fálkans árlð 1935. Bak vlð afgrelðsluborðlð standa Haraldur
V. Ólafsson og Sigríður Ólafsdóttir.
49