Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1979, Síða 62

Frjáls verslun - 01.11.1979, Síða 62
Fólk mætti spara meira og leggja fé sitt á banka — er álit útibússtjóra Búnaðarbankans í Stykkishólmi „Annars er atvinnuástandið hér til sóma, jatnt og þétt unnið allan ársins hring að heita má. Skelin er hér stór liður, tveir til þrír mánuðir á vertíð, og grásleppan á vorin. Þá má líka benda á að iðnaður er að verða talsvert öflugur hér í Hólm- inum. Stór skipasmíðastöð, Skipavík h.f. og tvær stórar tré- smiðjur, Ösp h.f. og Trésmiðja Stykkishólms h.f ", sagði Guð- mundur. ,,Hér er líka heilmikið gert í bæjarmálunum, einkum hefur nýja félagsheimilið og hótelið verið mikið átak. Þar finnst mér þó að rekstrargrundvöll vanti enn sem komið er. Hóteliö þarf meiri við- skipti utan við þessa 2—3 mánuði á sumrin, þegar traffíkin er hvað mest. Við þyrftum að fá hingað ráðstefnur og hópa utan feröa- mannatímans til að nýta þessi glæsilegu húsakynni betur". Við spurðum Guðmund hvort Hólmarar væru sparsamir og legðu fé sitt á banka. ,,Ekki get ég nú sagt það. Inn- lánaaukningin er talsverð, en þar spilar verðbólgan inn í. Auðvitað eru bankamenn aldrei ánægðir með innlánsaukninguna og finnst að fólk ætti að leggja inn í banka í stað þess að eyða fénu í sólar- landaferðir og annað þvíumlíkt. En staðreyndin er að hér hefur fólk ágætis tekjur og algengt að hjón vinni bæði úti og afli búi sínu mik- illa tekna." Guðmundur Eiðsson er Eyfirð- ingur og hefur starfað í Stykkis- hólmi síðustu 5 árin. Hann kvaðst kunna vel við sig í Hólminum, enda einróma álit allra að það sé fal- legur og sérstæður bær og nátt- úrufegurð mikil. Hinsvegar kvaðst hann alltaf kunna bezt við eyíirzka veðurfarið, en síður við það veðurfar sem íbúar á suðvestur- og vesturlandi búa við. „Það verður ekki annað sagt en að hér sé ágætis ástand á flestum málum. Að vísu er bátunum lagt núna í desember og fram yfir áramót þangað til nýr kvóti verður ákveðinn í hörpu- disknum. Á meðan eru sjómennirnir að flikka upp á bátana sína og verða tilbúnir til að veiða áfram“, sagði Guðmundur Eiðs- son, útibússtjóri Búnaðarbanka íslands í Stykkishólmi í viðtali við FV. Þjóðverjar tiðir gestir 62

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.