Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1980, Síða 48

Frjáls verslun - 01.10.1980, Síða 48
Hvernig þú getur náð árangri í sölumennsku Fyrsta boöorð sölumanns er að komast að því hvað fólk langar til að eignast og hjálpa því til þess að eignast það. Mörgum hefur reynzt erfitt að halda sig við þetta boðorð sölumennskunnar og fyrir bragðið haft það á tilfinningunni að starfið gengi frekar út á það að vera uppáþrengjandi og trufla fólk, í stað þess að sjá því fyrir þjónustu sem það hefur oftast þörf fyrir. Á nákvæmlega sama hátt er því farið með fyrirtæki eins og ein- staklinga. Þegar fyrirtæki eða stofnanir eiga í hlut byggist ár- angur sölustarfsins á því að kom- ast að því hvað fyrirtækin hafa þörf fyrir og útvega þeim það. Banda- ríska fyrirtækið AMP Products Corp. í Valley Forge í Pennsyl- vaniu hefur náö undraverðum ár- angri með því að kanna árangur hinna ýmsu aðferða við sölu. Fyrirtækiö framleiðir meira en 50 þúsund hluti sem notaðir eru í raf- búnaði á öllum sviðum iðnaðar. Niðurstaða þess var sú að aðferð- in sem skilaði langmestum árangri væri nokkurs konar formúla: Hafa samband + sýna vöru + selja = Söluárangur Hér eru nokkrar ábendingar sem AMP Products Corp. byggir á eigin reynslu og árangri. — Söluárangur byggist 90% á undirbúningi en aðeins 10% á vörukynningunni sjálfri. Sölu- maður ætti aldrei að hafa sam- band við væntanlegan kaupanda nema hann sé fyllilega undirbúinn og fær um að veita allar þær upp- lýsingar sem kaupandinn kynni að þurfa á að halda. Það er mun vænlegra til árangurs að sleppa tækifæri til viðræðna við kaup- andann, ef undirbúningur er ekki nægur.í stað þess að nota það til þess að spilla sölunni. — Seldu ekkert sem þú ert ekki sjálfur fyllilega ánægður með. Áhugi sölumanns fyrir þeirri vöru sem hann kynnir er lykillinn að því að honum megi takast að glæða áhuga kaupandans fyrir henni. Áhugi, sem byggist á trú sölu- mannsins á vörunni, skapar hon- um eðlilegt frumkvæði sem kaup- andanum finnst eðlilegt en ekki sviðsett. — Fyrstu orðin sem sölumaður segir við kaupandann geta ráðið úrslitum. Þegar gengið er á fund kaupandans eru fyrstu orð og háttalag sölumannsins líkleg til þess að skera úr um hvort af sölu verður eða ekki. Þeir hjá AMP leggja áherzlu á að fyrsta setning sölumannsins sé til þess fallin að vekja áhuga kaup- andans á viðskiptunum, — gera kaupanda forvitinn. Dæmi: ,,Góð- an daginn Björn, ég er hingað kominn til þess að sýna þér hvernig þú getur sparað peninga í öllum þínum innkaupum á raf- magnsþræði." Annað dæmi: „Hvernig litist þér á að tengja allar jarðlagnir án þess að þurfa að standa í að hita tjöru?" Aðalatriðið er að það komi strax fram hvað væntanlegi kaupandinn beri úr býtum ef af sölu veröur. Næst á eftir á að slá á léttari strengi, en ekki fara strax að búa sig undir að ganga frá sölu eða að draga upp myndaplögg og verð- lista. — Öll viðtöl ættu að bera árangur, — jafnvel þótt sala ekki takist. Hvert viðtal þarf að hafa markmið, jafnvel þótt það sé ekki sala. Á sama hátt ætti hvert viðtal að hafa skilað einhverjum árangri, jafnvel þótt sá árangur sé ekki sala eða sölusamningur. I þessu skyni er nauðsynlegt að sölumaðurinn hafi einhverja mælistiku til þess að meta árangurinn. Sé dæminu snúið við, má einnig segja, að árangurinn eigi að vera meiri en sala. Markmiðið ætti að vera að selja ákveðið magn, frem- ur en einungis að ganga frá sölu á einhverjum hlut eða hlutum. Þetta markmið verður að byggjast á könnun á þörfum viðkomandi kaupanda og vera beitt af raunsæi en ekki loftköstulum. Að fá fyrirtæki til þess að kaupa ákveðinn hlut og nota hann ein- ungis upp frá því, er t.d. varla raunsætt markmið. Hinsvegar væri ekki út í bláinn, að stefna að því markmiði með fyrsta viðtalinu, aö fyrirtækið keypti hlutinn og notaði hann eingöngu í ákveðinn tíma til reynslu. Mælanlegur árangur viðtals, fyrir utan sölu, er eitthvað sem leiðir til athafna eða breyttrar af- stöðu væntanlegs kaupanda. Með því aö beita þessari tækni verða viðtölin af sjálfu sér árangursrík- ari og þau vísa veginn að settu marki smám saman. Þótt sala tak- ist ekki eftir fyrsta viðtal eiga lík- urnar á því að hún takist í næsta skipti að hafa aukizt. Þetta er mjög mikilvægt atriði, sem gert hefur margan að mun betri og árang- ursríkari sölumanni þar sem óþol- inmæði hefur vikið fyrir markvissri sókn að takmarkinu. — Sjón er sögu ríkari. Ef því verður við komið að sýna það sem á að selja, í stað þess að segja frá þvi, þá eru töluvert meiri líkur á sölu. 48

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.