Frjáls verslun - 01.11.1980, Síða 10
Sundrung í Loft-
leiðaarmi
Svo virðist, sem hinn svo
kallaði Loftleiðaarmur Flug-
leiða sé að sundrast. Telja
margir gamlir Loftleiða-
menn að Alfreð Elíasson
hafi gengið of langt þegar
hann bar upp vantrauststil-
lögu á Sigurð Helgason,
forstjóra á stjórnarfundi í
Flugleiðum. Hlaut tillagan
ekki stuðning annarra
stjórnarmanna, ekki einu
sinni Kristins Olsen, sem
löngum hefur verið helsti
samherji og vinur Alfreðs.
Þvert á móti mun Kristinn
ásamt fleiri félögum þeirra
Alfreðs frá Loftleiðatím-
anum hafa lagt fast að hon-
um að bera ekki upp tillög-
una, en án árangurs. Fólk
Alfreðs telur hins vegar að
vinir hans hafi brugðist í
þessu máli og andar nú
köldu á milli.
Stanslaus
viðtöl
Ýmsum er farið að of-
bjóða hvað viðtalsþættir og
fréttatengdir þættir eru
margir í útvarpinu. Varla
verður svo á útvarpinu
kveikt þessa dagana, að
ekki sé verið að tala við ein-
hvern um eitthvað, af mjög
mismunandi kunnáttusemi. í
útvarpinu eru níu fréttatímar
á dag, þar af tveir sem eru
um hálftími. f þeim tveimur
er mikiö um viötöl. Þá eru
fréttatengdir þættir Morgun-
pósturinn, fimm daga vik-
unnar í 45 mínútur og Á
vettvangi, fjóra daga vik-
unnar í 25 mínútur. En þetta
er aðeins byrjunin. Þá eru
eftir búnaðarþættir, Verslun
og viðskipti, Iðnaðarmál og
Sjávarútvegur og siglingar.
Einnig eru fastir þættir úr
öllum landshlutum, Að vest-
an, Úr austfjarðaþokunni og
svo framvegis. Þættir nefn-
ast Úr skólalífinu, Félagsmál
og vinna, Innan stokks og
utan fjallar um fjölskylduna
og heimilið, og nýlega hófst
þáttur sem heitir Hreppamál
og á að fjalla um sveitar-
stjórnarmál. Þá er Kvöld-
skammtur, valið efni úr
Morgunpósti. Enn er eftir
að nefna staka viðtalaþætti,
svo sem ,,Þá var öldin önn-
ur", og „Þarsem kreppunni
lauk 1934", sem báðir hafa
verið á dagskrá nýlega. Allir
þessir þættir eiga það sam-
eiginlegt að vera að uppi-
stöðu til viðtöl.
Vandratað í út-
flutningnum
Vegur okkar íslendinga á
útflutningsmarkaði hefur oft
verið þyrnum stráður og
margur útflytjandinn hefur
orðið fyrir tjóni vegna mis-
skilnings og ónógrar þekk-
ingar á grundvallaratriðum
á sölumálum erlendis. Þrá-
inn Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Hildu h.f.
skýrði frá því nýlega á ráð-
stefnu Stjórnunarfélagsins
um útflutningsmál að menn
hafi komið glaðir heim frá
Norður-Ameríku með þá
vissu að smásalinn, sem
rætt var við, ætlaði að kaupa
vörur fyrir ákveðna upp-
hæð, til dæmis 300 þúsund
dali. Þegar svo til ætti að
taka hefði pöntunin ekki
verið nema 100 þúsunda
dala virði í augum kaupend-
ans. Ástæðan er sú að þeg-
ar smásalar í Bandaríkj-
unum tala um vörukaup tala
þeir alltaf um útsöluverð
varanna. Þegar um fatnað
er að ræða er það ávalt þre-
falt útflutningsverð frá ís
landi.
Oddviti
Framsóknar
Tekið hefur verið eftir því
að Eiríki Tómassyni, vara-
þorgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins í Reykjavík hafa
verið falin mikilvæg störf að
undanförnu, svo sem að
gæta hagsmuna flokks síns í
stjórnkerfisnefnd borgar-
stjórnar. Talið er að veg-
semd Eiríks í borgarstjórn
vaxi enn á næstunni og að
hann taki brátt við Kristjáni
Benediktssyni, sem oddviti
framsóknarmanna. Er álitið
að Kristján taki við embætti
fræðslustjóra af Kristjáni J.
Gunnarssyni, sem senn fer
á eftirlaun, en Kristján
Benediktsson er nú for-
maðurfræðsluráðs.
10