Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 7

Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 7
tekjur umfram samsvarandi gjöld voru 2,1 millj. kr. og var því heildarhagnaður Reykjavíkurhafnar 1981 um 3 millj. króna. Gjaldskrá hafnarsjóðs hækkaði þrisv- ar á árinu, en þó skorti 42,7% á að hafnargjöld hefðu fylgt byggingarvísi- tölu á tímabilinu 1977—1982. Þrátt fyrir að heildarskipakomum hafi fækkað nokkuð á árinu, þá jukust almennir flutningar um 13% frá fyrra ári, og námu flutningar nú 1,7 millj- onum tonna. Stafar aukn- ingin einkum af því að skipakomum frá útlöndum fjölgaði nokkuð. Bættur hagur Ríkisútvarpsins í ársreikningum Ríkisút- varpsins, kemur fram að hagur stofnunarinnar hefur batnað mjög á síðasta ári. Rekstrarhalli Sjónvarpsins 1981 var "aðeins" 923.642 kr. samanborið við 11.379.904 árið áður. Tekjur af auglýsingum jukust mest, eða um 117,7% en aukning afnotagjalda var nokkurn veginn ( samræmi við verð- bólguþróun á árinu. Alls jukust tekjur sjónvarps um 74% en gjöldin jukust að- eins um 36.3%. Hjá Hljóð- varpinu var svipuð þróun. Þar breyttist niðurstaðan úr 2.030.538 kr. halla árið 1980 í 4.069.813 kr. rekstrar- hagnað árið 1981. Hjá Hljóðvarpinu jukust tekiur um 68,75% en gjöld um 43,31%. f stuttu spjalli við Frjálsa Verslun sagði Hörð- ur Vilhjálmsson fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins að þessi bætta afkoma væri merki um það að stofnunin væri að aðlaga sig hinum gífurlega missi tekna sem hús hefði mátt þola síðan árið 1979, er Ríkisútvarpið fékk aðeins um þriðjung af þeim aðflutningsgjöldum sem henni er ætlað af sjón- varpstækjum. Arin 1980 og 81 fékk stofnunin hins vegar ekki krónu af þessum tekju- stofni, en 1981 voru að- flutningsgjöldin um 23,4 millj. kr. Einnig sagði Hörður að mikil hagræðing hefði átt sér stað innan stofnunar- innar og hefði áætlanagerð aukist. Ný álma Hótels Sögu Nýlega voru hafnar fram- kvæmdir við mikla stækkun á Hótel Sögu. Hin nýja álma mun koma þvert á norður- enda núverandi Hótelbygg- ingar, og mun hún verða 6 hæðir og kjallari. A fyrstu þremur hæðunum verða verslanir og skrifstofur, en í kjallara verður ýmis þjón- usta við hótelgesti. A fjórðu, fimmtu og sjöttu hæð verða um 100 ný gistiherbergi og er það um tvöföldun á gisti- rými Hótels Sögu. í stuttu spjalli við FV sagði Konráð Guömundsson hótelstjóri á Sögu að ætlunin væri að steypa upp hið nýja hús á tveimur árum, en síðan taka það í notkun eftir þörfum. Upphaflega var ætlunin að stækka Súlnasalinn mjög, þannig að hann yrði um 1200 m2, en með tilkomu Broadway og annara staða á síðustu árum hefur verið horfið frá því, og verður stækkun hans því mun minni. Rekstur Hótels Sögu hefur gengið vel að undan- förn, og var mjög góð nýting á gistirými þess á síðasta ári. Einnig voru fyrstu fjórir mánuðir þessa árs hag- stæðir enda jókst þá koma erlendra ferðamanna hing- að til lands. Hins vegar sagði Konráð Guðmunds- son að nýtingin hefði dottið niður í maí og hugsanlega myndi það hafa einhver á- hrif á byggingu nýju álm- unnar. 7

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.