Frjáls verslun - 01.03.1982, Síða 11
urinn illræmdi. hefur um
margra ára skeið ráðið lög-
um og lofum á þessu svæði
í fisksölu, og hefur því sem
næst verið um algjöra ein-
okun að ræða. A síðustu
tveimur árum hefur farið
fram mjög ítarleg rannsókn
á þessum málum af hálfu
lögreglunnar í New York, og
í kjölfar þeirrar rannsóknar
hafa fjölmargir aðilar verið
handteknir og sakfelldir.
Rannsóknin hefur einkum
beinst að fiskmarkaði
nokkrum sem nefnist “Ful-
ton fish market", en um
þann markað fer lang-
stærstur hluti alls fiskjar
sem seldur er á New York
svæðinu á hverjum degi.
Völd mafíunnar byggjast á
ítökum hennar innan verka-
lýðsfélaga, en henni hefur
Hugmyndaríkum
hjálpað af stað.
Samstarfshópur um iðnráð-
gjöf í landshlutunum hefur í
undirbúningi að halda sér-
stakt námskeið í stofnun og
rekstri lítilla iðnfyrirtækja. Er
námskeiðið ætlað þeim sem
hafa að dómi Samstarfs-
hópsins, góðar hugmyndir
um ný iðnverkefni, og hæfi-
leika til að framkvæma þær.
Námskeiðið verður haldið í
samvinnu við norskt ráð-
gjafafyrirtæki og samkvæmt
norskri fyrirmynd. Seinna í
sumar verður auglýst eftir
þátttakendum, og verða
engar sérstakar kröfur
gerðar um menntun eða
starfsréttindi. Síðan verða
valdir 20 til 25 þátttakendur
úr hóþi umsækjenda. Ætl-
unin er að fyrsti hluti nám-
skeiðsins fari fram á Egil-
stöðum í nóvember eða
desember og mun standa í
eina helgi. Alls mun hópur-
inn hittast um fjórar eða
fimm helgar á eins árs tíma-
bili. Vonast forráðamenn
námskeiðsins til að í lok
þess verði einhverjir þátt-
takendur búnir að stofna
fyrirtæki og munu þá iðn-
ráðgjafar í hverjum lands-
hluta fylgjast með gangi
þess og vera eigendunum
innan handar eftir að nám-
skeiðinu lýkur.
hlngaó til lands. Meö því
fyrirkomulagi væru slegnar
tvær flugur í einu höggi.
Markaður okkar í Nígeríu
yrði öruggari og gengiö væri
til móts við kröfur Portúgala
um aukinn innflutning okkar
frá þeim.
tekist sérstaklega vel að
hreiðra um sig í félögum
hafnarverkamanna á aust-
urströnd Bandaríkjanna. í
áðurnefndum fiskmarkaði
er málum svo háttað að ein-
ungis félagar ákveðins
verkalýðsfélags mega vinna
þar, m.a. við að losa og
ferma bíla fiskheildsalanna
sem koma til að kauþa fisk.
Verkamennirnir gera hins
vegar ekki handtak nema
viðkomandi heildsali sé
"samþykktur" af stjórn
verkalýðsfélagsins. Slíkt
samþykki mun kosta offé og
ófáar gjafir til forystumanna
félagsins. Engin þorir þó að
segja til þeirra, því þá er
dauðinn vís. Ótti heildsal-
anna við að kjafta frá hefur
torveldað rannsókn málsins
mjög. Er lögreglan gekk á
einn þeirra í yfirheyrslu
brast hann í grát og sagðist
eiga konu og þrjú börn, þess
vegna vildi hann frekar fara í
fangelsi en veita lögreglunni
upplýsingar. Hann var því
úrskurðaður í 6 mánaða
fangelsi fyrir að neita að
vinna með lögreglunni. Þrátt
fyrir þessa örðugleika hefur
þó tekist að afla nægra
sönnunargagna til að senda
nokkra forystumenn verka-
lýðsfélagsins ífangelsi. Þeir
eru allir náskyldir og forríkir
og fæstir þeirra hafa nokk-
urn tíma unnið verka-
mannavinnu.
Breytingará tékkaviðskiptum
í bígerð
( október sl. skipaöi Sam-
vinnunefnd banka og spari-
sjóða sérstaka undirnefnd
til að endurskoða reglur um
tékkaviðskipti. (framhaldi af
því fékk nefndin síðan það
verkefni að endurskoða all-
ar hliðar tékkaviðskipta og
koma með tillögur til úrbóta.
Nefnd þessi er nú að ganga
frá lokaskýrslu sinni og
verður hún lögð fyrir bank-
ana til umfjöllunar. Hefur
nefndin haft samráð við
Verslunarráð og önnur
hagsmunasamtök og fengið
þeirra sjónarmið. Niður-
stöður nefndarinnar eru
mjög athyglisverðar og
leggur hún til ýmsar breyt-
ingar á tékkaviðskiptum.
Meðal annars hefur nefndin
rætt um aukna notkun á
svonefndum bankakortum
og einnig leggur hún til að
viðurlög við tékkamisferli
verði hert og þeim beitt í
auknum mæli.
Til gamans má geta þess
hér að í ársskýrslu Seðla-
bankans fyrir síðasta ár
kemur fram að heldur færri
tékkar voru gefnir út árið
1981 helduren áriðáður. Er
fækkunin um 413 þús tékk-
ar, en það er þó ekki nema
um 0.4% fækkun miðað við
að upphæð 41.215 millj. kr.
Er því meðaluþphæð hvers
tékka 4.240 kr. Það er nokk-
uð mikil hækkun frá 1980,
en þá var meðalupphæð
hvers tékka 2.478 kr.
11