Frjáls verslun - 01.03.1982, Blaðsíða 78
HAGNYT VERSLUNAR-
OG SKRIFSTOFUSTÖRF
Litið inn hjá Námsflokkum
Reykjavíkur í Laugalækjarskóla
Námsflokkar Reykjavíkur starfrækja deild, þar sem
kennd eru hagnýt verslunar- og skrifstofustörf. Þar
er kennd: bókfærsla, enska, íslenska, tölvutækni,
verslunarreikningur, vélritun o. fl. Til að kynnast
deild þessari nánar, fór blm. FV niður í Laugalækjar-
skóla og tók forstöðumann, nokkra nemendur og
kennara tali.
„Upplagt fyrir fólk sem fer út í
smáatvinnurekstur“
Guðrún Halldórsdóttir, forstöðu-
maður Námsflokka Reykjavíkur.
- Hvernig stóð á því að hafin
var kennsla í hagnýtum verslunar-
og skrifstofustörfum?
,,Ég tók við stjórn Námsflokk-
anna árið 1972. Þá ræddum við
Jónas B. Jónsson, þáverandi
fræðslustjóri um það í hvaða formi
hægt væri að komastarfsnámi inn.
Þá var mjög mikið um frístunda-
nám án prófa. í samráðum við
hann var þessi deild svo stofnuð.
Hún hefur breyst mjög mikið síðan
þá. Sem dæmi má nefna að fyrst
var kennt á reiknistokk. Nú er
kennd tölvuforritun."
- Hvenær voru Námsflokkarnir
stofnaðir?
,,Þeir voru stofnaðir árið 1939.
Fyrstu árin voru karlmenn [ mikl-
um meirihluta. Ætli þeir hafi ekki
verið u. þ. b. 2/3 nemenda. Nú eru
þeirinnan við 1/3. Þetta sýnirvissa
þróun á vinnumarkaði. Nú ermikið
af konum hjá okkur sem eru búnar
að koma upp sínum börnum og
vilja fara aftur út á vinnumarkað-
inn. Svo er þetta líka upplagt fyrir
fólk sem er að fara út í smáat-
vinnurekstur."
— Hvað er kennt hér auk versl-
unar- og skrifstofustarfa?
,,Það eru ýmistungumál, handa-
vinna, forskóli fyrir sjúkraliða og
prófadeildirnar með grunnskóla-
prófi o. fl. Þar fyrir utan eru mjög
stór námskeið fyrir dagmömm-
ur og Sóknarkonur, sem veita
fræðslu, réttindi og 7-11% kaup-
hækkun. Ég álít að öll verkalýðs-
félög ófaglærðs fólks ættu að
koma því í sína samninga að svona
námskeið yrðu haldin fyrir félags-
menn sína. Það myndi lyfta menn-
ingarstaðli þjóðarinnar. Störf
þeirra eru jú undirstaða þjóðar-
búsins. Þá værum við eina landið í
heiminum, sem veitti þetta. Við er-
um nefnilega svo fá, að við getum
það vel.“
— Hvaða munur er á Náms-
flokkunum og venjulegum skóla?
„Fullorðna fólkið kemur hingað
fyrst og fremst til þess að læra og
hefur fast markmið. Það er mjög
ólíkt að kenna þeim eða ungling-
um. Krakkar eyða allt of mikilli
74