Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 15

Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 15
Þannig fórust Magnúsi Hregg- viðssyni viðskiptafræðingi orð í upphafi viðtals við Frjálsa Verslun. Það vakti mikla athygli þegar eigendaskipti urðu á Frjálsu Framtaki hf. í maímánuði sl. Jó- hann Briem sem var stofnandi fyrir tækisins og aðaleigandi þess seldi Magnúsi Hreggvióssyni viðskipta- fræðingi fyrirtækið og hefur Mag- nús síðan unnið að endurskipu- lagningu þess, auk þess sem hann rekur áfram fyrirtæki sitt, „Tölvu- bókhald og Ráðgjöf" í Síðumúla 33, en það fyrirtæki stofnaði hann árið 1969, þá tæplega tvítugur að aldri og meðan hann var enn við nám í Verslunarskóla íslands. Frjálst Framtak hf. er eitt af stærri útgáfufyrirtækjum landsins og gefur út átta tímarit, auk við- skiptabókarinnar „Islensk Fyrir- tæki" og var það því að vonum að eigendaskiptin vektu umtal og at- hygli. Það er ekki algengt á Islandi að ungir menn ráðist í að kaupa starfandi fyrirtæki, heldur er hitt algengara að menn byrji frá grunni og reyni síðan að fikra sig áfram. Þá mun óþarfi að geta þess að út- gáfustarfsemi er óvenjulega fjöl- þættur og margbrotinn rekstur og því má segja að Magnús Hregg- viðsson hafi ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur. En hver er Magnús Hreggviðs- son? Islendingar vilja venjulega vita deili á mönnum, og því var Magnús beðinn aö segja frá ætt sinni og uppruna. — Ég er Reykvíkingur í húð og hár, svaraði Magnús. — Faðir minn var Hreggviður Magnússon sem átti og rak verslunina „Kjötog grænmeti" á Snorrabraut. Hann lést þegar ég var fimm ára. Móðir mín er Sesselja Jóna Magnúsdóttir frá Borgarnesi og stjúpfaðir minn, sem gekk mér í föður stað þegar ég var sjö ára, er Jón Guðmunds- son frá Nesi í Selvogi. Ég fór í Verslunarskóla íslands að loknu skyldunámi og lauk þaðan stúd- entsprófi. Meðan ég var í skólan- um stundaði ég sjómennsku á sumrin — var á hvalbátunum, og það var mér líka góður skóli og þar kynntist ég ágætum mönnum sem ég held enn sambandi við. Meðan ég var í Verslunarskólanum stofn- aði ég fyrirtækið „Tölvubókhald og Ráðgjöf" og vann þannig fyrir mér meðan ég var í viðskiþta- fræðináminu í Háskóla íslands. Fyrstu tvö eða þrjú árin starfaði ég einn við fyrirtækið, en eftir að ég gifti mig, hjálpaði konan mín, Bryndís Valgeirsdóttir mér, og síð- ar bættist fleira starfsfólk við. Við- skiptafræðináminu lauk ég 1975 og hef síðan starfað við fyrirtæki mitt í Síðumúlanum, allt til þess að ég tók við rekstri Frjáls Framtaks hf. Ég rek „Tölvubókhald og Ráð- gjöf" enn og hef því haft í mörg horn að líta að undanförnu. Það hefur hjálþað mér mikið að ég hef gott starfsfólk á báðum stöðum — fólk sem leggur sig fram og hefur orðiö mikla reynslu í störfum sín- um. En hvað vakir fyrir manni sem á traust fyrirtæki á allt ööru rekstr- arsviði að snúa sér að útgafustarf- semi, þegar sagt er að ekki ári alltof vel að auki? Þessari spurningu svaraði Mag- nús á þá leið, að hann hefði um nokkurt skeið íhugað að breyta til. Hann heföi verið búinn að starfa í 13 ár að bókhaldi, endurskoðun og rekstrarráðgjöf í fyrirtæki sínu og byggt það vel upp. — Satt að segja langaði mig til þess að starfa hinum megin viö borðið, ef svo má að orði komast, sagði Magnús. — Sjálfsagt hefur líka blundað í mér þörf til þess að takast á við eitthvað nýtt, og enn- fremur má nefna sem ástæðu þess að ég fór út í þetta, að ég hef óbil- andi trú á möguleikum þess að gefa út góð tímarit á íslandi, eins og ég sagði áðan. I viðtalinu við Magnús á skrif- stofu hans hjá Frjálsu Framtaki hf., beindist talið að umskiþtum í kjöl- far breytinganna á eignarhaldi í fyrirtækinu og afleiðingum þeirra. Magnús var sþurður að því hvort markverðra nýjunga mætti vænta í útgáfustarfseminni, útliti blaðanna og öðru því sem að lesendunum snýr. — Útgáfan á blöðunum var orðin dálítið á eftir áætlun, sagöi Magnús,— og fyrst í stað munum við einbeita okkur að því að vinna upp tímatapið og koma útgáfunni í fastar skorður á ný. Það tekur væntanlega nokkurn tíma og vel ég nota tækifærið til þess að biðja kaupendur blaöanna að sýna okk- ur biðlund, og jafnframt að afsaka þann drátt sem orðið hefur á út- komu sumra blaðanna. En þegar þessu marki er náð og jafnvel fyrr mun farið að vinna að breytingum á blöðunum. Hverjar þær verða er erfitt að segja á þessu stigi máls- ins, en ég get nefnt sem dæmi að ég hef mikinn áhuga á að Frjáls Verslun sem sérrit færist nær mönnum í viðskiptalífinu hvað efnisval og efnismeðferð viðkemur — verði betur í stakk búin til að sinna þörfum þeirra fyrir ferskar upþlýsingar og hagnýta fræðslu. Ég geri mér vitanlega grein fyrir því að þetta verður erfitt nema með því að útgáfa blaðsins verði aukin, tölublöðunum fjölgað. Þá er einnig fyrirhuguð breyting á Tískublaðinu Líf. Áform eru um að gera tískuþætti blaðsins betri skil en verið hefur til þessa en jafnframt auka fjölbreytni efnis í blaðinu og gera það að vönduðu heimilisblaði. Þá eru áformaðar breytingar á Iþróttablaðinu með haustinu — ætlunin er að auka enn fjölbreytni efnis í blaðinu, og ennfremur mun lögð áhersla á að efla tengsl blaðsins við íþrótta- hreyfinguna í landinu og gera samstarfið við íþróttasamband (s- lands virkara. Iðnaðarblaðið, Sjávarfréttir og barnablaðið ABC munu veröa með óbreyttu sniði fyrst um sinn. Frjálst Framtak hf. hefur haft samvinnu við félög og fyrirtæki um útgáfumál á liðnum árum. Þannig hefur Iþróttablaðið verið gefið út í samvinnu við íþróttasamband ís- lands, Bílablaðið Öku-Þór unnið í samstarfi við Félag íslenskra bif- reiðaeigenda og barnablaðið ABC unnið í samstarfi við skátahreyf- inguna. Öll þessi blöð þjóna að vissu leyti sem félagsblöð. Þá er blaðið ,,Við Sem Fljúgum" tímarit sem dreift er ókeypis til farþega Flugleiða í innanlandsflugi og sér Frjálst Framtak hf. um útgáfu þess. Magnús var spurður um framhald þessa samstarfs eftir að hann tók við rekstri Frjáls Framtaks hf. — Eitt af fyrstu verkefnum mín- um hjá fyrirtækinu var að taka uþp samninga við alla þessa aðila, og ég hef mikinn áhuga á að af á- framhaldandi samstarfi geti orðið, svaraði Magnús. — Samingar um það samstarf hafa ýmist verið gerðir nú þegar, eða eru á loka- stigi. Hjá Frjálsu Framtaki hf. hafa að undanförnu starfað um 20 manns 15

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.