Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Side 21

Frjáls verslun - 01.03.1982, Side 21
Fyrsta Aðalskipulag Reykjavíkur tók gildi árið 1962, og skyldi þaðgilda Í20 ár, eða til ársins 1983. Nú í lok skipulagstímabilsins er athyglisvert að líta til baka og meta hvernig til hefur tekist. I heildina verður vart annað sagt en skipulaginu hafi verið vel framfylgt. Sérstaklega hafa íbúðahverfin byggst upp í samræmi við skipulagið, jafnvel enn hraðar en gert var ráð fyrir. Ný iðnaðarhverfi hafa risið, mikil íþróttamannvirki hafa verið reist í Laugardal og nýtt hafnarsvæði hefur byggst upp í Vatna- görðum. I umferðarmálum má nefna að nær allar götur eru nú malbikaðar og helstu umferðaræðar hafa verið bættar til að taka við aukinni umferð. En það er engu líkara en aðalskipulagið hafi alls ekki náð yfir miðbæ Reykjavíkur. Þar er flest eins og það var fyrir 20 árum, nema hvað nokkur hús hafa horfið án þess að ný hafi risið í þeirra stað. Grjótaþorpið er enn á sínum stað þrátt fyrir áætlanir um annað.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.